Fréttablaðið - 18.02.2023, Qupperneq 50
Ástin þroskast og breytist
á ólíkum æviskeiðum.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Merkisatburðir |
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
Jóhanna Kristín
Guðbergsdóttir
lést að Hrafnistu Hraunvangi,
fimmtudaginn 9. febrúar. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 23. febrúar kl. 11.00.
Steinunn G. Ástráðsdóttir
Ágúst Ástráðsson
Guðbergur Ástráðsson
og fjölskyldur
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
Sólarhringsvakt: 581 3300 & 565 5892
Komum til aðstandenda og ræðum skipulag sé þess óskað
Sverrir Einarsson
S: 896 8242
Jón G. Bjarnason
S: 793 4455
Jóhanna
Eiríksdóttir
Útfararstofa Íslands
www.utforin.is w Auðbrekku 1, Kópavogi
Útfararstofa Hafnarfjarðar
www.utfararstofa.is w Dofrahellu 9b, Hafnarfirði
Sigurvin Lárus Jónsson, prestur
við Fríkirkjuna, segir mikilvægt
að forgangsraða ástinni því ann-
ars týnist hún í hversdeginum.
arnartomas@frettabladid.is
Það verður varla þverfótað fyrir ástinni
í fríkirkjunum á sunnudag sem bjóða
pörum af öllum kynjum að kíkja til
sín á stefnumót. Þar verður boðið upp
á ástarlög, almenn kósíheit auk þess
sem pörunum býðst að strengja ný, eða
endurnýja, heit sín.
„Það eru tvær áminningar um það að
rækta ástina í vikunni, annars vegar Val-
entínusardagurinn og hins vegar konu-
dagurinn,“ segir Sigurvin Lárus Jónsson,
prestur við Fríkirkjuna í Reykjavík. „Við
ákváðum þess vegna að grípa tækifærið
og búa til stundir sem eru til þess að
rækta ástina. Við erum að bjóða öllum
en sérstök pör eru sérstaklega velkomin
til að koma og hlusta á ástarlög og heyra
ástarsögur.“
Fjölmörgum pörum, mishoknum
af reynslu, hefur verið boðið á stefnu-
mótið.
„Við erum með ólík hjónabönd sem
hafa varað mislengi,“ segir Sigurvin
Lárus. „Ein hjónin eru með fimmtíu ára
hjónaband að baki, önnur með tuttugu
og fimm ár og ein eru nýgift og falleg.
Hugmyndin var að leita að ástarsögum
úr hversdeginum.“
Tónlist á viðburðunum verður í hönd-
unum á tónlistarfólki kirknanna undir
stjórn Gunnars Gunnarssonar, organista
Fríkirkjunnar í Reykjavík, og Arnar Arn-
arssonar, tónlistarstjóra Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði. Söngkonan Kirstín Erna
Blöndal syngur einsöng ásamt tónlistar-
fólki kirknanna.
Ástin þroskast og breytist
Eins og fram hefur komið býðst gestum
að strengja ný eða endurnýja heit sín á
stefnumótinu. Er mikið um að fólk sé að
endurnýja heit sín almennt?
„Já, það er alveg töluvert um það, þegar
fólk á einhvers konar sambands- eða
brúðkaupsafmæli þá vill fólk gjarnan
gera það,“ segir Sigurvin. „Maður á auð-
vitað að gera þetta sem oftast. Það vitum
við öll en það þarf að forgangsraða ást-
inni, annars týnist hún í hversdeginum.
Meira að segja hjón sem eru samstíga og
samrýnd í verkefnum lífsins þreytast og
þurfa að minna sig á að ástin er meira en
verkefni hversdagsins.“
Þannig segir Sigurvin að ástin sé ekki
fasti sem fangi mann og síðan sé lifað
„hamingjusöm til æviloka“.
„Ástin þroskast og breytist á ólíkum
æviskeiðum. Þess vegna er mikilvægt
að endurnýja hug sinn til ástarinnar og
að segja við maka sinn hvað þú elskar í
fari maka þíns. Að játa ást þína í orði og
verki,“ segir hann.
Mikil forréttindi
Að mati Sigurvins eru mikil forréttindi
að vera prestur en hann hefur gefið fólk
saman við alls konar aðstæður – undir
fossi, á strönd, í fjósi og í kirkju.
„Ein eftirminnilegasta athöfn sem
ég hef upplifað var í samstarfi við Pink
Iceland. Menn frá Kanada sem komu til
Íslands til að gifta sig og völdu kirkjuna
á Árbæjarsafni til þess,“ rifjar hann upp.
„Þeir höfðu upplifað það í lífi sínu að ást
þeirra var ekki velkomin í þeim kirkjum
sem þeir ólust upp í en voru þrátt fyrir
það mjög trúaðir. Þeir báðu um alt-
arisgöngu í hjónavígslunni og fengu að
heyra að Guð elskaði þá og vildi blessa
ást þeirra og líf. Það var sterk og heilandi
stund sem ég gleymi aldrei.“
Aðför að piprinu
Nú gætu einhleypir litið á þennan við-
burð sem aðför að menningu sinni.
Stendur til að gera eitthvað fyrir fólk
utan sambands? Ætlið þið að vera með
hraðstefnumót næst?
„Það er mjög góð hugmynd! Ég er
aldeilis til í að vera með hraðstefnumót
í kirkjunni,“ svarar Sigurvin og skelli-
hlær. „En brúðkaup eru auðvitað besti
staðurinn til að kynnast maka og þessi
viðburður er svona hversdagslegt brúð-
kaup þar sem gæti verið hægt að finna
ástina.“
Stefnumótin hefjast klukkan 14 í Frí-
kirkjunni í Reykjavík og klukkan 20 í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði. n
1145 Evgeníus III. verður páfi.
1229 Friðrik II. nær völdum í Jerúsalem, Betlehem og
Nasaret með vopnahléssamningi við Al-Kamil sol-
dán.
1875 Eldgos í Sveinagjá á Mývatnsöræfum.
1878 Alþýðuskólinn í Flensborg stofnaður í Hafnarfirði.
1885 Snjóflóð fellur á fjórtán íbúðarhús á Seyðisfirði og
24 farast.
1910 Tuttugu farast í snjóflóði á Hnífsdal.
1930 Clyde Tombaugh finnur Plútó.
1934 Sjúkrahús Hvítabandsins í Reykjavík vígt.
1954 Vísindakirkjan stofnuð í Los
Angeles.
1959 Vitaskipið Hermóður ferst
við Reykjanes með tólf
manna áhöfn.
1965 Gambía fær sjálfstæði frá
Bretum.
1967 Golfklúbburinn Keilir stofnaður.
2010 WikiLeaks birtir fyrstu gögnin frá Chelsea Manning.
Ástin er
ekki fasti
26 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 18. FeBRúAR 2023
LaUGaRDaGUR
Fríkirkjuprestarnir Margrét Lilja Vilmundardóttir og Sigurvin Lárus Jónsson ásamt Kir-
stínu Ernu Blöndal. Mynd/Aðsend