Fréttablaðið - 18.02.2023, Síða 54
Tesla var fimmta sölu-
hæsta bílamerkið á
Íslandi á síðasta ári
með 1.312 selda bíla.
Tesla var með átján
prósenta markaðshlut-
deild í rafmagnsbílum
seldum á Íslandi í fyrra.
Bíllinn er sjöunda
kynslóð 5-línunnar.
Næsti bíll verður sjötta
kynslóð af Micru og sá
fyrsti með rafmagns-
mótor.
Nissan vonast til að
spara 40% í hönnun
bílsins með samstarf-
inu við Renault.
njall@frettabladid.is
S a m k v æ mt f r é t t a m i ð l i nu m
Automotive News ætlar Tesla Inc.
að kynna þriðju útgáfu framtíðar
áætlunar Elon Musk á næsta degi
fjárfesta, sem verður 1. mars næst
komandi. Þar ætlar hann að kynna
„leiðina að sjálf bærri framtíð fyrir
jörðina“ eins og Elon Musk orðaði
það í nýlegu tísti á Twitter.
Fyrsta framtíðaráætlun Tesla
kom árið 2006 þar sem kynntar
voru áætlanir um að framleiða
sportbíl og nota lærdóminn af því
til að smíða raf bíla fyrir almenn
ing. Tíu árum síðar kynnti Elon
Musk „kaf la tvö“ sem innihélt
áætlanir um að byggja sólarraf
hlöður fyrir heimili, metnað til að
vera með bíla í öllum flokkum öku
tækja og auka sjálf keyrsluhæfni
bíla hans. Mikið af því sem stendur
í kaf la tvö hefur ekki gengið eftir
að sögn Automotive News, og er
Tesla aðeins með f jórar gerðir
bíla í fjöldaframleiðslu ásamt því
að dómsmálaráðuneyti Banda
ríkjanna rannsakar nú hversu vel
sjálf keyrslubúnaður Tesla stenst
yfirlýsingar framleiðandans.
Hlutabréf í Tesla hafa hækkað
um 1.200 prósent síðan Elon Musk
kynnti kaf la tvö. Að vísu lækkaði
virðið töluvert á síðasta ári vegna
kaupa Musk á Twitter og vegna
þess að framleiðsla stóðst ekki
áætlanir. Lækkuðu hlutabréf í Tesla
um 65 prósent í fyrra sem er fyrsta
lækkun merkisins síðan 2016, segir
í grein Automotive News. Meðal
þess sem Elon Musk hefur látið
hafa eftir sér fyrir dag fjárfesta er
að útþensla merkisins, ásamt næstu
kynslóð undirvagna fyrir ódýrari
ökutæki, verði á dagskrá. n
Framtíð Tesla kynnt á degi fjárfesta
Hvort að Tesla muni kynna minni gerð rafbíls en Tesla Model 3 á degi fjárfesta þann 1. mars á eftir að koma í ljós.
mynd/tesla
njall@frettabladid.is
Samkvæmt nýjustu njósnamyndum
Auto Express af nýrri 5línu BMW er
líklegt að bíllinn verði frumsýndur
á þessu ári. Greinilegt er að bíllinn
er kominn langt í þróun eins og sjá
má af stallbaksútgáfu hans.
Núverandi kynslóð bílsins var
frumsýnd 2017 og fékk andlits
lyftingu árið 2020. Ef bíllinn kemur
á þessu ári kemur hann rétt tíman
lega til að keppa við erkióvin sinn
sem er Elína Mercedes. Bíllinn er
kallaður G60 eins og er og verður
sjöunda kynslóð 5línunnar. Búast
má við að bíllinn verði fáanlegur
með ýmsum vélbúnaði, þar á meðal
alrafmagnaður. Einnig verður nýr
M5 kynntur sem fær raf búnað en
aðalsalan verður þó í bensín og
dísilbílunum en hérlendis líklega í
tengiltvinnbílnum. n
BMW 5-lína væntanleg á þessu ári
njall@frettabladid.is
Í dag, laugardaginn 18. febrúar,
verður ný kynslóð Lexus RX frum
sýnd hjá Lexus í Kauptúni, Garða
bæ. Sýningin verður opin frá kl.
1216 og þá gefst kostur á reynslu
akstri. Það telst alltaf til tíðinda
þegar nýr RX kemur fram á sjónar
sviðið enda sameinar hann kosti
fólksbíls og sportjeppa. Drægni á
rafmagni í tengiltvinnútfærslunni
er komið í 69 km samkvæmt WLTP
mælingunni.
Lexus RX verður kynntur í þrem
ur útgáfum, RX 350h sem er tvinn
bíll með 2,5 lítra vél, 245 hestöf l,
og er 8 sekúndur frá 0100km/klst.
RX 450h+ PHEV er tengiltvinnút
gáfa bílsins. Vélin er einnig 2,5
lítrar og til samans er rafmótor og
bensínvélin 306 hestöfl og bíllinn
er 6,5 sekúndur frá 0100km/klst.
Útfærslurnar af honum eru tvær,
EXE og Luxury. Loks er RX 500h
fyrsti tvinnbíllinn frá Lexus með
forþjöppu, 371 hestaf l og 5,9 sek
úndur frá 0100km/klst. n
Lexus RX 450h frumsýndur í dag
Von er á næstu kynslóð af
smábílnum vinsæla Nissan
Micra. Bílnum mun að mörgu
leyti svipa til Renault 5 og
verður aðeins í boði með raf
magnsmótor. Ljóst er að sam
starf Renault og Nissan lifir og
er von á frekara samstarfi.
njall@frettabladid.is
Nissan tilkynnti í fyrra að undir
vagn næstu kynslóðar Micra kæmi
frá Renault og að um alrafmagn
aðan bíl yrði að ræða. Nú hefur
Nissan einnig sagt að allt að 80%
íhluta bílsins verði þeir sömu og
í Renault 5 sem þýðir að samstarf
Nissan og Renault er ekki dautt úr
öllum æðum.
Leiðtogar merkjanna beggja
hittust á ráðstefnu fyrr í mánuð
inum þar sem nokkur atriði þessa
nýja bíls komu fram. Með sam
starfinu sparar Nissan sér 40% í
hönnunarkostnað á þessum nýja bíl
sem þýðir að hann gæti verið hag
stæðari í verði. Bíllinn verður smíð
aður á CMFBEV undirvagninum
sem verður einnig undir Renault
4. Líklegt er talið að bíllinn verði
framleiddur í Frakklandi í einni af
þremur ElectriCityverksmiðjum
Renault. Loks er talið líklegt að
NissanRenault muni eiga samstarf
um uppsetningu hleðslustöðva í
náinni framtíð. n
Ný Micra keimlík Renault 5
Nissan frum-
sýndi nokkrar
myndir af Micra
í sumar en þær
sýndu bara hluta
bílsins og er
þessi tölvumynd
unnin frá þeim.
mynd/aVaRVaRII
Miðað við myndina verða aðalljósin líklega ekki tvískipt eins og á nýrri 7-línu.
mynd/aUtO eXPRess
Þrjár út-
gáfur nýja
Lexus sport-
jeppans verða á
sýningunni.
mynd/nJÁll
GUnnlaUGssOn
njall@frettabladid.is
Í nýjum Mazda MX30 eSkyactiv
REV verður í fyrsta skipti notast
við Wankelvél í tvinnbíl sem
fara mun í framleiðslu. Audi hafði
reyndar reynt slíkt á A1 Etron til
raunabílnum árið 2010 þar sem
notast var við 254 rsm Wankelvél,
sem keyrði á 5.000 snúningum til að
hlaða 12 kWst rafhlöðu. Það þótti
vel heppnuð tilraun þar sem að litla
vélin var nánast hljóðlaus og komst
bíllinn 250 kílómetra á 12 lítrum af
eldsneyti.
Vélin í REV bílnum kallast 8C
og er hún 830 rsm og komið fyrir
fram í bílnum. Vélin er lítil um sig
og er aðeins 840 mm í þvermál. Raf
hlaðan er 17,8 kWst og drægið er
85 km á rafhlöðunni eingöngu. Afl
rafmótorsins er 168 hestöfl og togið
260 Nm. Hingað til hefur Wankel
vélin verið gagnrýnd fyrir of lítið
tog, mikla eyðslu og meiri mengun
en með þessari nálgun er talið að
vélin muni henta mun betur. Nýja
8Cvélin er í fyrsta skipti með beinni
innspýtingu og er með meiri þjöppu
en áður eða 11,9:1. Vélin mun ganga á
2.0004.500 snúningum og nokkurn
veginn fylgja inngjöf ökumanns. n
Mazda notar Wankel-vél í tvinnbíl
Wankel-vélin gæti hentað vel sem
hleðsluvél fyrir rafhlöðu en hún er
hljóðlát og minni um sig.
30 bílar FRÉTTABLAÐIÐ 18. FeBRúAR 2023
laUGarDaGUr