Fréttablaðið - 18.02.2023, Síða 60
Í anda Vefstofu Guð-
rúnar á Ísafirði bera
flíkurnar nöfn sem
tengjast íslenskri
náttúru.
Eyrún Ísfold
Fréttir vikunnar |
Ármann Reynisson
„Um miðbik sjötta áratugs tuttug-
ustu aldar er undirritaður, sex ára,
á gangi með föður sínum á Lindar-
götu í Reykjavík. Við verðum vitni
að verkfallsvörslu fyrir framan
Sláturfélag Suðurlands – þungbúin
alvara hvílir í loftinu. Faðir minn
segir: „Verkamenn eru að berjast
fyrir mannsæmandi launum.“
Þessi sjón og orð föðurins koma
ávallt upp í hugann með depurð
þegar ég frétti af vinnudeilum og
verkföllum,“ segir vinjettuhöf-
undurinn og fagurkerinn Ármann
Reynisson sem svarar því hvað hæst
bar í fréttavikunni einfaldlega og
eins og honum einum er lagið, með
sérsaminni vinjettu sem hann kall-
ar Vinnudeilur.
„Margt hefur breyst til batnaðar
í kjarabaráttunni nema launin hjá
almennu verkafólki. Stjórnmála-
menn, embættismenn, forstjórar
og margir aðrir skammta sér ofur-
laun baráttulaust – fá árlega leiðrétt-
ingu án nokkurrar fyrirhafnar. En
þeir lægstlaunuðu þurfa að slást um
kökubitann.
Það er skömm að fylgjast með
framkomu og orðbragði ráðamanna
gagnvart Eflingu stéttarfélagi. Allt
er hægt ef vilji er fyrir hendi. Hnef-
inn … kallar á hörð viðbrögð félags-
ins – þar af leiðandi skellur á verk-
fall.
Stokka þarf upp spilin í íslensku
þjóðfélagi því báknið er úr sér geng-
ið – þenst út og orðið að nátttrölli.
Meirihluti þjóðarinnar vill „frelsi
jafnrétti og bræðralag“ sem hallar
á hratt í dag. En þannig helst sátt og
jafnvægi í þjóðfélaginu.“ n
Skömm að fylgjast með framkomu við Eflingarfólk
Ármann Reynisson,
athafnaskáld
Á Grandagarði verður í dag
hægt að skoða og versla föt úr
nýrri línu Steinunnar Sigurð-
ardóttur. Línan er hönnuð úr
efnum sem handofin voru á
Ísafirði á áttunda áratugnum.
lovisa@frettabladid.is
Í dag er frumsýnd ný fatalína í versl-
un fatahönnuðarins Steinunnar
Sigurðardóttur á Grandagarði.
Línan er unnin og hönnuð af henni
en í samstarfi við Guðrúnu Jóhönnu
Sturludóttur, fatahönnuð og barna-
barn Guðrúnar Vigfúsdóttur. Hug-
myndin kom upp þegar Guðrún
heimsótti verslun Steinunnar ásamt
móður sinni, dóttur Guðrúnar.
„Upphaf hugmyndarinnar að
línunni Haute Couture Iceland má
rekja til heimsóknar okkar mæðgna
í búð Steinunnar Sigurðardóttur
fatahönnuðar sem þá var staðsett í
Bankastræti. Þegar við dáðumst að
hönnuninni tók Steinunn okkur tali
og spjallið barst að vefstofu móður
minnar, Guðrúnar Vigfúsdóttur,
veflistakonu á Ísafirði,“ segir Eyrún
Ísfold Gísladóttir, dóttir Guðrúnar,
en hún segir að Steinunn hafi þekkt
til vefstofu móður hennar þar sem
ofin voru efni í glæsikjóla.
„Og fleiri f líkur sem vöktu verð-
skuldaða athygli, ekki síst á áttunda
áratugnum.“
Efniviður fatalínunnar er safn
handofinna efna úr íslenskri ull
sem ofin voru á Vefstofu Guðrúnar
Vigfúsdóttur hf. á Ísafirði á áttunda
áratugnum. Hún segir að Steinunn
hafi fundið samhljóm í verkum
móður hennar á vefstofunni í sinni
hönnun, og þá sérstaklega í til
dæmis notkun kögurs.
„Þegar móðir mín féll frá árið
2015 kom í ljós að á vinnustofu
hennar var til töluvert af hand-
ofnu efni sem mætti nýta í f líkur og
fórum við mæðgur til Steinunnar
með tvær ferðatöskur af hand-
ofnum textíl. Úr varð að Steinunn
ákvað að hanna sérstaka fatalínu úr
efnunum í formi þróunarverkefnis
ásamt Guðrúnu dóttur minni sem
aðstoðarhönnuði. Verkefnið var
styrkt af Hönnunarsjóði Íslands,“
segir Eyrún.
Allar til sölu
Flíkurnar eru allar til sölu og er
verðið allt upp í 350 þúsund krónur.
Þær verða til sýnis á sýningunni sem
kallast Haute Couture Iceland, sem
mætti þýða sem hátíska á Íslandi.
Sýningin verður opnuð klukkan
15 og stendur til 17 en einungis var
framleidd ein flík af hverri gerð og í
einni stærð.
„Hver f lík er einstök og verður
ekki endurgerð og er því merkt sem
slík að hún sé til í einu eintaki,“ segir
Eyrún en hver f lík er númeruð og
ber einnig einstakt heiti.
„Í anda Vefstofu Guðrúnar á Ísa-
firði bera flíkurnar nöfn sem tengj-
ast íslenskri náttúru. Við heiðrum
tvö nöfn sem gefin voru kjólum í tíð
Guðrúnar; Morgunfrú, appelsínu-
gulur kjóll í hnésídd með útvíðum
um ermum og Storkið hraun, brún-
röndótt dragt með ýfðri áferð.“ n
Hátískulína án hliðstæðu
handofin úr vestfirskri ull
Mæðgurnar
Guðrún Sturlu-
dóttir og Eyrún
Ísfold Gísla-
dóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Miðnætursól heitir þessi slá.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Flíkurnar kosta allt að 350 þúsund
krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Flíkur á sýningu
Gróf hvít slá og pils með kögri: Ísfold
Röndótt minipils og jakki: Stuðlaberg
Appelsínugulur jakki og pils með kögri: Eldlilja
Býkúpumunstraður jakki með fjórum vösum og pils: Klakabönd
Röndóttur ýfður jakki og pils með kögri: Storkið hraun
Appelsínugulur kjóll með útvíðum ermum: Morgunfrú nr. 6
Appelsínugul slá með slaufukraga og belti: Miðnætursól
Kápa með bekkjum og slaufukraga: Skriður
433.is
MÁNUDAGA KL. 20.00
Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri
433.is, fer yfir það helsta í
fótboltaheiminum. Hann fær til sín
áhugaverða viðmælendur og helstu
sparksérfræðinga landsins sem
gera upp mál málanna.
36 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 18. FEBRúAR 2023
lAUGARDAGUR