Fréttablaðið - 18.02.2023, Page 64
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
bakþankar |
Ég hitti konu um daginn sem hafði
sigrast á krabbameini. Hún lýsti
fyrir mér hvernig hún hefði tekið
líf sitt og venjur í gegn eftir að hún
greindist. Hvernig hún vildi búa til
hraustari líkama – líkama sem væri
ekki vænleg bráð fyrir sjúkdóma.
Hún las allt sem hún komst yfir
um styrkingu ónæmiskerfisins
og hvernig styrkja má líkama og
sál. Vissulega þurfti hún að taka
mataræðið í gegn, sofa vel, forðast
unna matvöru og hreyfa sig reglu-
lega. En það sem kom mest á óvart
var hláturinn sagði hún og hló svo
innilega að allt fallega andlitið á
henni ljómaði.
Hvað áttu við? spurði ég.
Hún útskýrði hvernig líkaminn
framleiðir varnarfrumur sem
ráðast gegn sýklum sem herja á
líkamann, útrýma þeim og gera við
líkamann. En góðu varnarfrumurn-
ar geta ekki fjölgað sér og dafnað
í slæmu umhverfi svo sem streitu
og óheilbrigðu líferni. Okkar góða
kona sagðist hafa farið á fyrirlestur
þar sem farið var yfir líffræðilegt
mikilvægi þess að hlæja. Ná þeirri
slökun og endorfínframleiðslu sem
fylgir góðum hlátri auk þess sem
hlátur getur styrkt ónæmiskerfið
með framleiðslu varnarfrumna. Þar
að auki er ekki hægt að vera stress-
aður og óhamingjusamur um leið
og þú hlærð innilega – svo niður-
brotið sem fylgir streitu er útilokað
þegar hláturinn fær að taka við.
Konan sagðist hafa þurft að byrja
að hlæja meira og það á erfiðum
tíma í sínu lífi. Skilnaður, fjárhags-
áhyggjur og veikindi. Ekkert fyndið
þar. En hún var ákveðin í að hlæja.
Fyrst byrjaði hún að horfa á uppá-
haldsgrínþættina sína frá upphafi
og svo leitaði hún að hlátrinum
markvisst og hefur gert síðan.
Hvenær hlóst þú síðast svo inni-
lega að þig verkjaði í magann? n
Hláturskast
Tobbu
Marinós
DREYMIR
ÞIG UM
CLT HÚS?
©
Inter IKEA System
s B.V. 2023
Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is
Skoðaðu
BASTUA
línuna hér!
BASTUA bakki Ø43 cm
1.590,-
IKEA x Marimekko
̵ tímabundin vörulína
Tímabundin lína hönnuð í samstarfi við finnska
hönnunarmerkið Marimekko. BASTUA sækir sér
innblástur til náttúrunnar og ritúala í finnskum
sánum. Húsgögn, gler- og vefnaðarvörur með
áberandi mynstri sem draga fram einfaldleika
og fegurð norrænnar náttúru.
Sparaðu
tímann
og gerðu
einfaldari
innkaup á
netto.is