Fréttablaðið - 22.02.2023, Qupperneq 2
Líklega hefur stytting
vinnuvikunnar einnig
leitt til meiri drykkju.
Valgerður
Rúnarsdóttir,
forstjóri á Vogi
Upp er runninn öskudagur
Breki Snær Baldursson og Hrannar Hólm Elíasson voru í góðum gír þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði í Partýbúðina í gær. Þar var fjöldi fólks að
kaupa búninga, hárkollur, andlitsmálningu og allt það sem þarf til að gera glæsilegan búning. Breki Snær var klæddur upp sem Súperman og Hrannar sem
smábarn, þeir félagar ætla báðir að gera sér glaðan dag á sjálfan öskudaginn. Vinsælasti búningurinn í ár er Wednesday Addams. SJÁ SÍÐU 25 FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tilgátur eru uppi um að
heimsfaraldurinn og stytt-
ing vinnuvikunnar hafi
orsakað meiri drykkju hjá
landsmönnum. Í öllu falli
hefur hún aukist mjög, segir
framkvæmdastjóri lækninga
hjá SÁÁ.
ser@frettabladid.is
HEILSA Starfsfólk á Sjúkrahúsinu á
Vogi segist sjá meiri drykkju á þeim
sem þangað koma og mun alvar-
legri afleiðingar af hennar völdum
en áður.
Þetta staðfestir Valgerður Rúnars-
dóttir, forstjóri Sjúkrahússins Vogs
og framkvæmdastjóri lækninga
hjá SÁÁ, en hún segir þróunina á
þennan veg hafa byrjað í heimsfar-
aldrinum 2020 og ekkert lát sé þar á.
„Þetta er eitthvert nýtt mynstur,“
segir Valgerður. „Þeir sem drekka,
drekka oftar og meira,“ bætir hún
við.
Veitingamenn sem Fréttablaðið
hefur rætt við síðustu daga segjast
taka eftir þessari breytingu. „Menn
sitja lengur við,“ segir einn þeirra og
segir ástæðuna að öllum líkindum
tvíþætta. „Stóru breytuna má rekja
til samkomutakmarkana í byrjun
árs 2020 þegar fólk var meira og
minna heima hjá sér, þegar það
tók að deyfa leiðindin með áfengi,
en líklega hefur stytting vinnuvik-
unnar einnig leitt til meiri drykkju,“
bendir hann á.
Annar veitingamaður segist hafa
tekið eftir því á síðustu misserum að
„menn koma fyrr og sitja lengur, sér-
staklega á föstudögum þegar vinnu-
dagurinn er hvað stystur.“
Valgerður segist ekki geta fullyrt
hvort þessar breytur, önnur eða
báðar, hafi leitt til meiri drykkju,
þótt auðvitað megi spyrja hvað
virkur alkóhólisti geri við hálfan
aukadag frá vinnu.
Í öllu falli blasi afleiðingarnar við
henni og starfsfólki Vogs á hverjum
degi.
„Við sjáum núna meira af líkam-
legum af leiðingum ofdrykkju
en áður,“ segir hún. „Það er mikil
fjölgun lifrartengdra sjúkdóma af
völdum drykkjunnar á allra síð-
ustu árum,“ bætir hún við, en mikið
beri á lifrarbólgum, brisbólgum og
skorpulifur.
„Þetta er mjög alvarlegt,“ bendir
Valgerður á, því lifrarskemmdir
ganga oftast ekki til baka, „og þá
þarf að skipta um lifur – og þar eru
alkóhólistar ekki efstir á blaði sem
lifrarþegar.“ n
Mikil fjölgun lifrartengdra
sjúkdóma vegna drykkju
Veitingamenn sem Fréttablaðið hefur rætt við síðustu daga taka eftir þess-
ari breytingu. „Menn sitja lengur við,“ segir einn þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
lovisa@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Í gær kom til Úkraínu skip
með búnað frá Íslandi sem ætlað er
að endurreisa f lutnings- og dreifi-
kerfi raforku í landinu.
Landsnet hélt utan um verkefnið
hér heima í góðu samstarfi við
dreifi- og veitufyrirtæki og utan-
ríkisráðuneytið sem átti frum-
kvæði að uppbyggingu á löskuðum
raforkuinnviðum Úkraínu.
„Við tókum meðal annars saman
varahluti sem vöntun er á í Úkraínu,
búnað eins og rofa, varnarbúnað,
spenna, varaafl og bíla sem hægt er
að nota til viðgerða,“ segir Halldór
Halldórsson, öryggisstjóri Lands-
nets.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
utanríkisráðherra segir árásir
Rússlands á orkuinnviði í Úkraínu
hafa sett samfélagið þar verulega
úr skorðum og bitnað hart á sak-
lausum borgurum. „Við höfum
því talið mjög mikilvægt að leggja
okkar af mörkum í þessum efnum
og bregðast þannig við þörfum og
óskum Úkraínumanna sjálfra.“ n
Vona að sendingin veiti íbúum ljós
Þór Marteinsson og Halldór Hall-
dórsson við skipið áður en það lagði
af stað FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sjálfvirkur
opnunarbúnaður og
snertilausir rofar frá
Þýsk gæðavara.
Snertilausir rofar
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
lovisa@frettabladid.is
SAMFÉLAG Öskudagurinn verður
haldinn hátíðlegur í Kringlunni og
Smáralind í dag. Í Kringlunni hefst
dagskráin kl. 13.30 með frírri kvik-
myndasýningu og ókeypis mynda-
töku á göngugötunni. Klukkan
14 verður hægt að slá köttinn úr
sekknum á Blómatorginu og svo
hefst aftur kl. 16 kvikmyndasýning
sem er ókeypis á.
Í Smáralind verður ekki sérstök
dagskrá en vel tekið á móti börnum
að sögn markaðsstjóra.
„Við erum með skemmtilega gagn-
virka sýningu í gangi sem heitir
Talnatöfrar og það er tilvalið fyrir
foreldra að kíkja á hana með krökk-
unum á öskudaginn. Einnig verðum
við með myndabás á milli kl. 12 og
15. Smáratívolí verður svo með til-
boð á skemmtisvæðinu hjá sér þar
sem þau bjóða 60 prósenta afslátt af
leikjakortum,“ segir Sandra Arnar-
dóttir, markaðsstjóri Smáralindar. n
Taka vel á móti
börnum í Kringlu
og Smáralind
Það var stuð og stemning í Smára-
lindinni á öskudaginn í fyrra.
2 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 22. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR