Fréttablaðið - 22.02.2023, Blaðsíða 24
Við leitum
að orkubolta
Umsóknarfrestur er til og með 2. mars nk. Sótt er um starfið á landsnet.is.
Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn. Nánari upplýsingar veitir Jason Már Bergsteinsson,
mannauðssérfræðingur, mannaudur@landsnet.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Langar þig að vinna með ótrúlega orkumiklu fólki í stjórnstöðinni okkar
þar sem við höldum ljósunum í landinu logandi?
Við leitum að kröftugri og lausnamiðaðri manneskju sem hefur áhuga á
orkumarkaðnum og rauntímastýringu raforkukerfisins. Viðkomandi
verður hluti af teymi sérfræðinga sem vinna bæði á vöktum og í
dagvinnu. Við leggjum mikla áherslu á að teymin vinni sjálfstætt og beri
ábyrgð á að ná sínum markmiðum. Við í stjórnstöðinni berum ábyrgð á
stjórnun og orkujöfnuði raforkukerfisins ásamt samhæfingu aðgerða í
tengslum við truflanir og viðhald og því mikilvægt að geta unnið undir
álagi. Við leggjum mikið upp úr þjálfun og fræðslu okkar fólks.
Næsti yfirmaður er Þorvaldur Jacobsen framkvæmdastjóri
kerfisstjórnunarsviðs.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og
sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við leggjum áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Við erum
framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem
umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Rauntímastýring raforkukerfisins
• Rekstur jöfnunarorkumarkaðar og kerfisþjónustu
• Aðgerðastjórnun og undirbúningur aðgerða
• Greiningar- og úrbótaverkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun í raungreinum sem nýtist í starfi
• Áhugi á raforkumarkaði
• Geta til að starfa undir álagi
• Geta til að taka frumkvæði og sýna fram á framgang
Sérfræðingur í stýringu flutningskerfisins
20 atvinna FRÉTTABLAÐIÐ 22. FeBRúAR 2023
MiÐviKUDaGUR