Fréttablaðið - 22.02.2023, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 22.02.2023, Blaðsíða 6
Ég trúi að við náum viðunandi lendingu. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra 5 3 9 9 4 2 2 1 1 2 14 12 18 16 12 2 8 8 1 4 11 4 n Orkan n Atlantsolía n N1 n Olís/ÓB Landsbyggðin tilbúin í olíuverkfall benediktboas@frettabladid.is SKÓLAMÁL „Ég kynntist þessu í Sví- þjóð fyrir 20 árum og þetta er löngu tímabært hér á landi.  Memmm Play á helst að vera í öllum hverfum og öllum bæjum,“ segir Kristín Stef- ánsdóttir frá opna leikskólanum Memmm Play en skólinn hlaut hæsta styrkinn frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar í gær, rúmar 12 milljónir króna. Stuðningur við börn, ungmenni og foreldra þeirra  voru einkenn- andi fyrir hæstu styrkina þetta árið. Memmm Play er opinn leikskóli sem býður foreldrum og forsjáraðilum og ungum börnum þeirra fjölskyldu- væna aðstöðu til að leika og hitta aðrar fjölskyldur, ásamt því að fá fræðslu og stækka tengslanet sitt og barna sinna. Í skólann mæta mæður og feður, afar og ömmur og aðrir sem eru heima með börn sem eru að bíða eftir leikskólaplássi. „Við erum búnar að vera með Memmm Play í hartnær tvö ár. Styrkurinn gerir okkur kleift að byrja að vinna við þetta því við erum búnar að vera í sjálf boða- vinnu hingað til. Núna getum við sinnt þessu af meiri festu og meiri alvöru,“ segir Kristín. Skólinn hefur verið opinn tvisvar í viku, um tvo tíma í senn og mæta frá 25-45 börn í hvert sinn þar sem er leikið og sungið og fræðst. „Við segjum stundum að við séum bara að byrja því auðvitað á svona að vera í öllum hverfum og öllum bæjum því gestirnir okkar koma alls staðar að. Frá Akranesi, Selfossi, Garðabæ og Kópavogi. Þörfin er mikil fyrir þennan hóp,“ segir Kristín. n Opni leikskólinn hlaut hæsta styrkinn María Ösp Ómarsdóttir, Helga Hreiðarsdóttir og Kristín Stefáns- dóttir fagna styrknum. benediktboas@frettabladid.is BRETLAND Maðurinn sem fann líkið af Nicole Bulley á sunnudag, Jason Dean Rothwell, hjálpaði einnig bresku lögreglunni að finna líkið af Michael Brooks árið 2018. Rothwell, sem mætti kalla miðil, var ekki beðinn um aðstoð, hvorki af fjölskyldu Bulley eða lögreglu en fann sig knúinn að nota þá gjöf sína að geta aðstoðað. Myndir af Rotwell birtust í umfjöllun breskra miðla og sá hann sig knúinn til að skrifa á Facebook- vegginn sinn að hann hefði séð alls- konar ljót ummæli um sig og sína hæfileika og hann muni ekki tjá sig frekar. Þetta er í annað sinn sem Rot- well aðstoðar lögregluna við að finna týnda einstaklinga því breska blaðið Mirror segir frá því að hann hafi aðstoðað vað finna Michael Brooks sem hvarf árið 2018 en hann var aðeins 19 ára. Var hans leitað í hartnær þrjár vikur þar til Rotwell fann hann. n Miðillinn fann einnig horfinn unglingspilt Breska þjóðin fylgist vel með leitinni að Nicola Bulley sem var 45 ára,tveggja barna móðir. Hennar hafði verið saknað síðan 27. janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY benediktarnar@frettabladid.is KJARAMÁL Verkfall Ef lingar hófst aftur aðfaranótt mánudags eftir stutt hlé. Með verkfalli olíubílstjóra getur orðið skortur á eldsneyti á því svæði þar sem verkfall Eflingar hefur mest áhrif. Fjöldi stöðva á höfuðborgarsvæðinu verða gerðar að forgangsstöðvum þegar tankarn- ir tæmast og geta aðeins aðilar sem hafa fengið undanþágur notað þær. Augljóst er að mest skerðing þjón- ustu við landsmenn verður á höfuð- borgarsvæðinu. Staðan er öðruvísi á landsbyggðinni þar sem starfsfólk er almennt utan stéttarfélags Eflingar. Fréttablaðið tók saman yfirlit yfir eldsneytisstöðvar sem lands- menn geta búist við að verði opnar á meðan verkfalli stendur. Byggt er á gögnum frá Atlantsolíu, N1, Olís og Orkunni. Upplýsingar um opnar eldsneytisdælur má finna á vefsíðum félaganna. n Opnar eldsneytisstöðvar utan höfuðborgarsvæðisins Heilt ár leið frá kynningu á tilskipun um aukinn kostnað frá losun í flugi uns forsætis- ráðherra ritaði ESB bréf um séróskir Íslands. bth@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Sendinefnd Evr- ópusambandsins á Íslandi hefur svarað fyrirspurn Fréttablaðsins um deiluna sem uppi er milli Íslands og Evrópusambandsins vegna los- unar frá f lugi. Í svarinu segir að ESB reikni með að ríki Evrópu nái samkomulagi um málið innan skamms, enda hafi náðst pólitískt samkomulag milli helstu stofnana ESB fyrir nokkrum vikum. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segist bjartsýnn á farsæla lausn. Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra óskaði í fyrrasumar eftir fríum losunarheimildum frá f lugi meira en 500 km frá landinu með bréfi til Ursulu von der Leyen, for- seta framkvæmdaráðs ESB. Ferðamódel íslenskrar ferða- þjónustu byggir að miklu leyti á tengif lugum og millilendingum um Kef lavíkurf lugvöll. Hafa for- stjórar stóru flugfélaganna innan- lands spáð hruni í greininni ef Ísland fær ekki sérafgreiðslu. Vísað er til að Íslendingar eigi ekki kost á að taka strætó eða lest milli landa. Að draga úr losun með breyttum ferðamáta er eitt helsta markmið breytinganna. „Við skiljum fullkomlega mikil- vægi viðskiptakerfisins með los- unarheimildir fyrir Ísland í ljósi stöðu þess milli Evrópu og Norður- Ameríku,“ segir í svari sendinefndar ESB við fyrirspurn Fréttablaðsins. Í svarinu segir að búist sé við formlegri samþykkt Evrópuþings- ins og ráðsins á löggjöfinni „í náinni framtíð“. ESB-löggjöfin sem snerti EES-ríki líkt og Ísland verði felld inn í EES-samninginn. Sendinefndin segir að samkvæmt hefðbundnum verklagsreglum sem endi með samþykkt sameigin- legrar EES-nefndarákvörðunar séu ákvarðanir sameiginlegu EES- nefndarinnar teknar með sam- stöðu. „Allir samningsaðilar verða að vera sammála til þess að sam- eiginlega EES-nefndin geti tekið ákvörðun,“ segir í svarinu. Fréttablaðið og erlendir f jöl- miðlar hafa fjallað um að Ísland hafi hótað að beita neitunarvaldi í sameiginlegu EES-nefndinni ef ekki verði gengið að óskum Íslendinga um undanþágur á grunni sam- komulags sem gert var við Kýpur og Möltu árið 2012 þegar flugið fór inn í ETS-kerfið. Jón Steindór Valdi- marsson hjá Evrópuhreyfingunni segir málið dæmi um hvað það kostar Ísland að vera ekki í ESB. Lagatillögupakkinn sem um ræðir kallast „Fit for 55“ og er markmiðið að minnka nettólosun gróðurhúsalofttegunda um að minnsta kosti 55 prósent árið 2030. Þær breytingar sem nú um ræðir voru fyrst kynntar í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins í júlí 2021. Heilt ár leið því áður en Katrín skrifaði sitt bréf en ekki hefur feng- ist staðfesting á hvort óskir Íslands komu formlega fyrr fram. Samkvæmt því sem fram kemur í svari sendinefndar ESB við fyrir- spurn Fréttablaðsins náðist póli- tískt samkomulag milli Evrópu- þingsins og Evrópuráðsins um málið fyrir nokkrum vikum, eða í desember 2022. Fjármálaráðherra segir að málið sé mjög mikið hagsmunamál fyrir allt hagkerfið. „Ég trúi að við náum viðunandi lendingu.“ Bjarni segist ekki sjá að staða Íslands væri betri ef við værum aðilar að ESB. „Við höfum byggt upp stofn- anaumgjörðina í samtali við ESB og það á að duga,“ segir Bjarni. Sendinefnd ESB neitar líkt og for- sætisráðuneytið að afhenda svar- bréf Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, við bréfi Katrínar Jakobsdóttur. Fréttablaðið hefur kært synjun forsætisráðuneytisins til úrskurðar- nefndar um upplýsingamál og er kæran nú í farvegi hjá nefndinni. n Tímaglugginn fer að lokast ESB segist skilja hagsmuni Íslands hvað varðar Ameríkuflugið en bendir á að losunarreglur vegna flugs verði að veru- leika í nálægri framtíð. FRÉTTABLAÐIÐ /ERNIR kristinnhaukur@frettabladid.is EFNAHAGSMÁL Gjaldþrot fyrirtækja á fjórða ársfjórðungi ársins 2022 fjölgaði um 82,5 prósent miðað við þriðja ársfjórðung. Hvergi í Evrópu hefur þeim fjölgað jafn mikið og hér. Alls var 71 gjaldþrot skráð, þar af 29 í nóvember, en það er það mesta síðan í marsmánuði árið 2021. Eins og Fréttablaðið greindi frá í haust virtist stefna í metár fárra gjaldþrota, innan við 350. En eftir aukninguna í haust endaði talan í 383. Engu að síður eru þetta lang- fæstu gjaldþrot á einu ári frá banka- hruninu. Fyrra met var 588 en yfir- leitt hafa gjaldþrot verið á bilinu 700 til 1.000 talsins. Flest gjaldþrot voru í byggingar- starfsemi, 86 talsins. Því næst í heildsölu og bílaviðgerðum og 36 í hótel- og veitingarekstri. Langflest þrot voru á höfuðborgarsvæðinu. Stærstur hluti fyrirtækjanna var rótgróinn, það er hafði starfað í 13 ár eða lengur, 39 prósent. Aðeins 12 prósent, höfðu starfað í 1 til 3 ár. n Gjaldþrotum fjölgaði mikið í lok árs Aðeins eitt fyrirtæki á Austurlandi fór á hausinn í fyrra. Vegna verkfalls olíubílstjóra má reikna með olíuskorti á höfuð- borgarsvæðinu fyrir vikulok 6 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 22. FEBRÚAR 2023 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.