Fréttablaðið - 22.02.2023, Blaðsíða 13
Jón Steindór
Valdimarsson
formaður Evrópu-
hreyfingarinnar
Ísland hefur allt frá því það varð
sjálfstætt og fullvalda fikrað sig
áfram í alþjóðlegri samvinnu og
gerst aðili að mikilvægum alþjóð-
legum samningum og stofnunum.
Að tryggja sinn hag
Tilgangurinn er ávallt sá að tryggja
hagsmuni Íslands, vinna að sam-
eiginlegum markmiðum og verk-
efnum til að leysa úr vanda eða
koma í veg fyrir hann. Fullveldi
Íslands sé best tryggt með því að
sitja við þau borð þar sem reglur
eru mótaðar og ákvarðanir teknar.
Fyrir allar þjóðir, ekki síst hinar
minni, er lífsnauðsynlegt að net
stofnana og samninga sé sem þétt-
ast og taki til sem f lestra þátta er
lúta að samskiptum og leikreglum
á alþjóðavettvangi. Með því móti
er reynt að koma í veg fyrir að þeir
sem stærri eru og voldugri beiti afli
til að ná sínu fram.
Mörg farsæl skref
Ísland er í hópi fámennustu ríkja
heims en er að mörgu leyti afar vel
sett frá náttúrunnar hendi og hefur
tekist að skipa sér mjög framarlega
á marga mælikvarða. Það hefur
mörgu að miðla og getur borið höf-
uðið hátt á alþjóðavettvangi.
Hér verða ekki talin upp öll þau
skref sem stigin hafa verið og þeir
hagsmunir sem hafa verið undir
né sá mikli ávinningur sem Ísland
hefur haft af því að vera virkur
þátttakandi. Eins og gengur hafa
sum þeirra skrefa verið tekin hratt
og örugglega en önnur verið hik-
andi, sum nær óumdeild en önnur
mjög umdeild. Heilt yfir hefur þó
reynslan sýnt að þau hafa reynst
þjóðinni farsæl.
Vandi þiggjandans
Á viðskiptasviðinu ber helst að
nefna aðild Íslands að EFTA, frí-
verslunarsamning við Evrópusam-
bandið og síðar EES-samninginn,
en senn verða 30 ár frá því að hann
tók gildi. Sá samningur er raunar
miklu meira en viðskiptasamn-
ingur og snertir ótrúlega marga
þætti daglegs lífs almennings og
reksturs fyrirtækja. Í honum felast
tækifæri og réttindi sem flest okkar
taka sem sjálfsagðan og eðlilegan
hlut. Hitt hugsa færri um eða vita
að án samningsins væru þau ekki
fyrir hendi. Þá er gott að minna
á að EES-samningurinn er í raun
aðgöngumiði að stórum hluta þess
mikla starfs sem Evrópusambandið
hefur unnið í fortíð, nútíð og mun
vinna áfram.
Sá hængur er hins vegar á þessu
fyrirkomulagi að hér tökum við
einungis við því sem að okkur er
rétt en tökum hvorki þátt né höfum
áhrif á framvinduna. Það er ekki
lengur sæmandi sjálfstæðri og full-
valda þjóð.
Við eigum að taka fullan þátt
í að móta Evrópu og njóta þeirra
hagsbóta sem í fullri aðild felast.
Það er því bæði eðlilegt og sjálfsagt
að Íslendingar velti því sífellt fyrir
sér hvort ekki sé rétt að stíga eitt
skref enn og gerast fullgildur aðili
að ESB.
Þjóðin vildi en pólitíkin ekki
Með umsókn Íslands um aðild
að Evrópusambandinu þann 23.
júlí árið 2009 var stærsta skrefið
í vegferð okkar til aukinnar evr-
ópskrar samvinnu stigið en sú ferð
var stöðvuð skyndilega árið 2013
þegar viðræðum var hætt í miðjum
Aldrei spurt
klíðum. Með bréfi til ESB þann 12.
mars 2015 var ítrekað að þeim yrði
ekki haldið áfram. Ákvörðunin um
að stöðva viðræðurnar sem Alþingi
hafði sett af stað var afar umdeild
og varð tilefni mikilla mótmæla og
einnar stærstu undirskriftasöfn-
unar sem gerð hefur verið undir
slagorðinu: Við viljum kjósa!
Ekkert mark var tekið á þessum
mótmælum, undirskriftum eða
skoðanakönnunum sem bentu
skýrt til þess að ekki væri farið að
vilja meirihluta þjóðarinnar og
borið við pólitískum ómöguleika
eins og frægt er orðið.
Bylgjan rís
Nú rís bylgja almennings sem
krefst þess að vera spurður um
hvort taka eigi upp aðildarviðræð-
ur við ESB að nýju. Þjóðaratkvæða-
greiðsla verði haldin um málið til
þess að leiða fram þjóðarviljann
með skýrum hætti. Sömuleiðis
benda kannanir eindregið til þess
að viðhorfsbreyting sé að verða
meðal almennings og að meiri-
hluti sé að verða fyrir því ganga í
Evrópusambandið.
Staðreyndin er sú að þjóðin hefur
aldrei verið spurð beint að því hvað
hún vill í þessum efnum. Því vill
Evrópuhreyfingin breyta. Deilir
þú þeirri skoðun skaltu ganga til
liðs við okkur á www.evropa.is. n
Nú rís bylgja almenn-
ings sem krefst þess að
vera spurður um hvort
taka eigi upp aðildar-
viðræður við ESB að
nýju.
Eyjólfur Kristjánsson heldur uppá 60 ára afmæli sitt með
glæsilegum tónleikum þar sem öll Eyfalögin og fleiri til verða
flutt af stórhljómsveit, bakröddum og gestasöngvurum undir
stjórn Þóris Úlfarssonar.
„Dagar“, „Álfheiður Björk“, „Nína“, „Ég lifi í draumi“,
„Danska Lagið“, „Gott“, „Skref fyrir skref“, „Ástarævintýri
(á Vetrarbraut)“, „Eins og vonin, Eins og lífið“ o. m. fl.
HLJÓMSVEIT:
TROMMUR: JÓHANN HJÖRLEIFSSON
BASSI: FRIÐRIK STURLUSON
HLJÓMBORÐ: ÞÓRIR ÚLFARSSON
HLJÓMBORÐ: HARALDUR V. SVEINBJÖRNSSON
HLJÓMBORÐ: EINAR ÖRN JÓNSSON
GÍTARAR: JÓN ELVAR HAFSTEINSSON
GÍTARAR: PÉTUR VALGARÐ PÉTURSSON
SAXÓFÓNN, ÞVERFLAUTA OG SLAGVERK: SIGURÐUR FLOSASON
KASSAGÍTAR OG SÖNGUR: EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON
BAKRADDIR:
EVA ÁSRÚN ALBERTSDÓTTIR
ERNA ÞÓRARINSDÓTTIR
INGI G. JÓHANNSSON
Öllum tónleikagestum verður boðið uppá afmælissnittur
frá H-Veitingum fyrir tónleika og í hléi.
GLÆSILEGIR AFMÆLISTÓNLEIKAR
Í HÁSKÓLABÍÓI LAUGARDAGINN
1. APRÍL KL. 21.00
MIÐASALA ER
HAFIN Á TIX.IS
ára
GESTASÖNGVARAR:
VALDIMAR GUÐMUNDSSON
ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR
BJÖRN JÖRUNDUR
STEFÁN HILMARSSON
FréttAblAðið skoðun 1322. FebrúAr 2023
MIðVIkuDAGuR