Fréttablaðið - 22.02.2023, Blaðsíða 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
MIÐVIKUDAGUR 22. febrúar 2023
Dídí Ásgeirs segist hafa tekið U-beygju í lífinu eftir að hún byrjaði að taka inn Femarelle Rejuvenate. „Svitinn er horfinn, ég sef miklu betur og næ meiri og
betri hvíld þannig að dagurinn á eftir verður allt annar.“ Kvensjúkdómalæknar í Evrópu mæla með Femarelle vörulínunni. mynd/Aðsend
Vertu vakandi tímanlega fyrir
einkennum breytingaskeiðsins
Femarelle Rejuvenate er náttúruleg lausn til að nota við upphaf hormónabreytinga á
breytingaskeiðinu og er virkni þess staðfest með klínískum rannsóknum. 2
Kaupmannahafnarbúar eru orðnir
þreyttir á rottugangi.
elin@frettabladid.is
Danskir vísindamenn hafa fundið
leið til að framleiða á ódýran hátt
efni sem getur útrýmt notkun á
rottueitri. Þetta efni sem nefnist
Triotolid er annars mjög dýrt í
framleiðslu. Hægt er að nota efnið
sem einskonar getnaðarvarnar-
pillu fyrir rottur til að halda stofn-
inum niðri á mun mannúðlegri
og umhverfisvænni hátt en áður
hefur verið gert.
Efnið er sætur vökvi sem rott-
urnar þurfa að drekka og hefur
áhrif á frjósemi kvenrotta og getur
veikt sæðisframleiðslu karlkyns
rotta. Johan Andersen-Ran-
berg, vísindamaður í plöntu- og
umhverfisfræði við Kaupmanna-
hafnarháskóla, hefur aðstoðað við
að leysa þá áskorun að framleiða
efnið á ódýran hátt og um leið að
uppræta notkun rottueiturs.
Vaxandi vandamál
Vitað er að rottueitur sem notað
hefur verið til að stemma stigu við
vaxandi rottugangi í Kaupmanna-
höfn skemmir vistkerfið og fuglar
geta innbyrt banvæna skammta ef
þeir borða dauða rottu.
Rottueitur er á allan hátt óæski-
legt í umhverfinu en þar sem engir
aðrir kostir hafa verið tiltækir til
að vinna gegn rottum hefur það
verið leyft, sérstaklega þar sem
rottur eru taldar mjög alvarlegt
vandamál fyrir almenna heilsu
fólks, samkvæmt því sem segir
í grein á danska ríkismiðlinum
dr.dk. n
Danskar rottur fá
getnaðarvarnalyf
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is