Fréttablaðið - 22.02.2023, Page 17
Hrafnhildur hefur starfað
sem einkaþjálfari hjá World
Class í um 19 ár. Hún þjáðist
af ristilvandamálum og bak-
flæði í áratugi vegna með-
gönguógleði, sem orsakaði
sjö mánaða uppköst.
Fyrir nokkrum árum fór Hrafn-
hildur Hákonardóttir í ristil-
speglun vegna óþæginda í ristli og
meltingarvandamála. „Ristillinn
hafði verið til trafala í 25 ár frá því
ég var ólétt. Á meðgöngunni ældi
ég daglega í um sjö mánuði. Eins
eðlilegur hlutur og ólétta er fyrir
kvenlíkamann eru sjö mánuðir af
uppköstum ekkert grín fyrir lík-
amsstarfsemina. Ég hlaut af þessu
varanlegar skemmdir á vélinda
sem orsaka bakflæði. Einnig hafði
þetta slæm áhrif á ristilinn, sem
hafði þau áhrif að ég fór að finna
fyrir verkjum í baki og líkam-
anum öllum. Ég hafði lengi tekið
inn ýmis magalyf og alltaf þurft
að passa hvað ég borðaði af hveiti-
og mjólkurvörum, en það tók mig
nokkur ár að átta mig á að þessar
matartegundir færu illa í mig.
Mér var ráðlagt að taka inn
magnesíum til þess að koma
jafnvægi á meltinguna og róa
ristilinn. Ég prufaði nokkrar
tegundir en þær hentuðu mér ekki.
Til allrar hamingju var mér bent
á magnesíum með fjallagrösum
frá ICEHERBS, en fjallagrös eru
mjög mýkjandi. Nú hef ég tekið
magnesíumblönduna í um fimm
ár og aldrei liðið betur. Ég er komin
með sléttan maga og meltingin er
komin í hið stakasta lag. Með því
að taka reglulega inn magnesíum
með fjallagrösum get ég jafnvel
leyft mér að svindla, því ég veit
fátt betra en að geta fengið mér
pasta og hvítlauksbrauð á góðum
degi. Við bakflæðinu tek ég hósta-
mixtúru með fjallagrösum frá ICE-
HERBS. Mixtúran er bragðgóð og
mjúk í hálsi og hjálpar mér að sofa
eins og engill,“ segir Hrafnhildur.
Einstök blanda
Magnesíumskortur er eitt stærsta
lýðheilsuvandamál sem við
glímum við í nútímanum. Magn-
esíum er eitt mikilvægasta stein-
efni í líkamanum og kemur við
sögu í yfir 300 efnaskiptum, allt frá
slökun vöðva- og taugakerfisins,
virkni hjarta- og æðakerfisins og
í upptöku steinefna. Magnesíum
blandan frá ICEHERBS er einstök á
heimsvísu og inniheldur magn-
esíum citrate og handtínd, íslensk
fjallagrös. Fjallagrösin og magn-
esíumið virkar saman á einstakan
hátt. Fjallagrösin mýkja melting-
una og magnesíum eykur upptöku
á steinefnum úr fjallagrösunum.
Magnesíum citrate er eitt fárra
bætiefna sem er gott að taka inn
að staðaldri, en það er mjög erfitt
að fá nægt magnesíum úr fæðunni.
Þá er mælt með að þeir sem stunda
líkamsrækt taki magnesíum reglu-
lega.
Áhrif magnesíums
Magnesíum stuðlar að eðlilegri
vöðvastarfsemi og er talið bæta
gæði svefns og draga úr fótapirr ingi
og sinadrætti. Þá stuðlar magn-
esíum að því að draga úr þreytu og
lúa.
Magnesíum er einnig notað í
meðhöndlun meltingarvandamála.
Það eykur vatnsinntöku í melt-
ingarkerfið sem auðveldar líkam-
anum að melta og losa hægðir. Þá
er magnesíum einnig hreinsandi
og hefur góð áhrif á ristilinn. Það
stuðlar líka að eðlilegri starfsemi
taugakerfisins.
Leyndarmál frá náttúrunni
Fjallagrösin hafa öldum saman
verið notuð sem náttúruleg
heilsujurt á Íslandi. Þau eru rík af
steinefnum og stuðla að heilbrigðri
þarmaflóru. Þá eru fjallagrös
vatnslosandi og minnka bjúg.
Fjallagrös innihalda einnig trefjar
sem mynda mýkjandi himnu á
slímhúð í maga sem bætir og mýkir
meltinguna.
Hrein náttúruafurð
Markmið ICEHERBS er að nýta
náttúruauðlindir sem tengjast
íslenskri hefð og sögu og vinna í
hreina neytendavæna vöru fyrir
viðskiptavini. „Við hjá ICEHERBS
leggjum áherslu á að framleiða
hrein og náttúruleg bætiefni
sem byggja á sjálfbærri nýtingu
náttúruauðlinda. Við viljum að
vörurnar okkar nýtist viðskipta-
vinum okkar, að virkni skili sér í
réttum blöndum og að eiginleikar
efnanna viðhaldi sér að fullu. Þá
notum við enn fremur engin óþörf
fylliefni.“ n
ICEHERBS fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum, apótekum og
heilsuvöruverslunum og í nýrri
vefverslun á www.iceherbs.is.
Kemur ró á ristilinn
Magnesíum með fjallagrösum frá ICEHERBS hefur hjálpað Hrafnhildi
Hákonar dóttur mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Daníel Ingi Egilsson úr FH
átti svo sannarlega góðu
gengi að fagna á Meistara-
móti Íslands í frjálsum
íþróttum um nýliðna helgi.
gummih@frettabladid.is
Daníel vann tvo Íslandsmeistara-
titla en hann bar sigur úr býtum í
langstökki og í þrístökki, þar sem
hann gerði sér lítið fyrir og stór-
bætti 12 ára gamalt Íslandsmet.
Metstökkið mældist 15,49 metrar
en gamla metið var 15,27 metrar og
var í eigu Kristins Torfasonar.
„Þetta var hreint út sagt frábær
helgi og ég gæti ekki verið ánægð-
ari með árangur minn,“ segir hinn
23 ára gamli Daníel Ingi.
Spurður hvort hann hafi vænst
þess að slá Íslandsmetið á þessum
tímapunkti segir hann: „Ég hafði
það á tilfinningunni að metið
gæti fallið þó svo að á mótunum
fyrir Meistaramótið hafi niður-
staðan ekki verið sú sem ég vildi.
Ég hugsaði samt með mér hvort
Meistaramót Íslands gæti orðið
sá tímapunktur sem ég myndi slá
metið og það varð raunin. Ég var
í góðum gír og það var frábær til-
finning þegar ég sá að ég hafði bætt
metið.“
„Eins og staðan er núna þá er ég
ekkert að leggja meiri áherslu á
þrístökkið frekar en langstökkið.
Mér finnst ég vera jafn vel settur
í báðum greinum en svo getur
komið sá tími að maður þurfi að
ákveða hvor greinin verði númer
eitt,“ segir Daníel, sem tryggði sér
Hætti í sjö ár en stefnir nú hátt
Daníel Ingi stórbætti Íslandsmetið í þrístökki innanhúss á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
að draga frjálsíþróttaskóna aftur
fram í september 2021. Ég vissi að
ég hefði grunninn úr frjálsum eftir
að hafa verið í þeim sem barn og ég
sé ekki eftir því að hafa tekið þessa
ákvörðun. Nú er ég búinn að æfa af
krafti í eitt og hálft ár eftir endur-
komuna og ég tel það mikið afrek
að hafa náð að slá Íslandsmetið
eftir svo stuttan tíma. Þetta gefur
mér mikið sjálfstraust.“
Það er nóg fram undan hjá
stökkvaranum efnilega úr Hafnar-
firði á þessu ári og hann stefnir
að því að taka þátt í stórmótum
á komandi árum. „Það er alltaf
markmið og draumur að komast á
stóra sviðið. Það er langtímamark-
mið en fyrst er að setja fyrir sig
þessi minni markmið og ná þeim
sem geta svo skilað manni stóra
draumnum.“
Tengir íþróttina við námið
Daníel Ingi stundar nám í íþrótta-
fræði við Háskólann í Reykjavík og
er þar á fyrsta ári. „Þetta er mjög
skemmtilegt nám og gaman að geta
tengt íþróttina sína við námið sitt,
geta nýtt námið til að hjálpa mér
að þróa íþróttaferilinn og vonandi í
framtíðinni að geta unnið eitthvað
tengt íþróttum,“ segir Daníel. Hann
er þjálfari hjá fimmta og sjötta
bekk hjá Frjálsíþróttadeild FH.
„Það er mjög gefandi og
skemmtilegt að þjálfa þessa krakka
og góð tilfinning að geta verið
fyrirmynd fyrir þessa ungu kyn-
slóð. Sjálfur var ég alltaf með mínar
fyrirmyndir sem barn og horfði
upp til þeirra.“ n
sigur í langstökkinu með því að
stökkva 7,23 metra en Íslands-
metið á Jón Arnar Magnússon, 7,82
metrar.
Dreymir um að slá met Vilhjálms
Íslandsmetið í þrístökki utanhúss
er svo sannarlega komið til ára
sinna en það er er í eigu Vilhjálms
heitins Einarssonar, 16,70 metrar,
sem hann setti árið 1960. Skildi
Daníel vera horfa til þess að bæta
þetta 63 ára gamla met?
„Það yrði náttúrulega algjör
draumur að slá það met. Ég hef
heyrt það frá mörgum að ef það er
eitthvað sem Vilhjálmur Einars-
son hefði viljað verða vitni að þá
hefði það verið að sjá einhvern slá
Íslandsmet hans. Það yrði heiður
fyrir mig að geta heiðrað minn-
ingu hans með því að slá metið og
markmiðið til næstu tveggja ára
hjá mér er að ná því. Það verður
mikil vinna en hún á eftir að skila
sér,“ segir Daníel Ingi en hann
hefur lengst stokkið 15,31 metra
utanhúss.
Daníel Ingi segist hafa byrjað
að æfa frjálsar íþróttir ungur að
árum. „Ég byrjaði í frjálsum sem
barn og var í þeim alveg þar til
ég var 16 ára gamall. Þá hætti ég
í þeim. Það kom einhver leiði í
mig og ég sneri mér að fótbolta
og vildi gefa honum tækifæri. Ég
spilaði fótbolta í sjö ár, með FH
og Álftanesi en sá tími kom að ég
fékk nóg af fótboltanum og ákvað
Ég hafði
það á
tilfinningunni
að metið gæti
fallið þó svo að
á mótunum
fyrir Meistara
mótið hafi
niðurstaðan
ekki verið sú
sem ég vildi.
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 22. febrúar 2023