Fréttablaðið - 22.02.2023, Side 20
Alls voru 23.533 pólskir
ríkisborgarar með skráða
búsetu hér á landi þann 1.
febrúar síðastliðinn.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
MERKISATBURÐIR |
ÞETTA GERÐIST | | 22. FEBRÚAR 1980
Katarzyna Rabeda og Eyjólfur Már Sigurðsson hjá Tungumálamiðstöðinni. MYND/KRISTINN
Háskóli Íslands mun frá næsta
hausti bjóða upp á pólskunám
sem sextíu eininga aukagrein
í fyrsta sinn. Forstöðumaður
Tungumálamiðstöðvar HÍ segist
vongóður um að eftirspurnin sé
til staðar og að þetta verði síðar í
boði sem námsleið innan veggja
háskólans.
kristinnpall@frettabladid.is
Háskóli Íslands tilkynnti í gær að pólska
yrði í fyrsta sinn kennd sem námsgrein
við Mála- og menningardeild Háskóla
Íslands á næsta ári. Tungumálið hefur
staðið til boða á námskeiðum við Tungu-
málamiðstöð HÍ en nú verður hún hluti af
60 eininga aukagrein í pólskum fræðum.
„Við höfum verið með stök pólskunám-
skeið sem hafa verið kennd í tungumála-
miðstöð sem endurmenntun og það
hefur verið fín aðsókn. Þau eru, eins og
þessi námsleið, hugsuð fyrir byrjendur
sem eru að stíga sín fyrstu skref í pólsku
en ekki Pólverja. Þetta er hugsað fyrir þá
sem vilja kynna sér pólsku og fræðast
um pólska menningu,“ segir Eyjólfur Már
Sigurðsson, forstöðumaður Tungumála-
miðstöðvar, í samtali við Fréttablaðið.
„Það hefur verið góð aðsókn í þessi
námskeið, um tuttugu nemendur hverju
sinni og það gefur tækifæri til að vera
bjartsýnn. Maður veit aldrei hvað gerist,
við byrjuðum með kóreskunámskeið
síðasta haust og það fylltist hvert einasta
sæti þó að enginn hafi átt von á því. Ég
vona svo sannarlega að það verði áhugi
á þessu.“
Pólverjar telja rúmlega sex prósent
allrar þjóðarinnar og hefur verið boðið
upp á pólskunámskeið hjá Tungumála-
miðstöðinni í átta ár.
„Við byrjuðum með þetta árið 2015
og það var strax mikill áhugi. Þetta
hefur verið nokkuð stöðugt síðustu ár,
svona 15-20 nemendur í hverju nám-
skeiði sem þykir nokkuð gott í tungu-
málum. Manni finnst svolítið eins og
það séu tvær þjóðir sem búa í þessu landi
og þetta er tækifæri til að læra meira um
menningu hvor annarrar.“
Pólska ríkið styrkir háskólann í þessu
verkefni og kemur gestakennari að utan
til að sinna kennslunni ásamt kennara
sem mun njóta aðstoðar Katarzynu
Rabeda sem hefur kennt í Tungumála-
miðstöðinni undanfarin ár.
„Við fengum styrk frá pólska ríkinu
til að fara af stað með þessa kennslu og
fáum gestakennara frá Póllandi, sem
kemur til með að kenna megnið af þess-
um námskeiðum. Katarzyna Rabeda
sem hefur verið að kenna hjá mér kemur
einnig til með að kenna en meginþungi
kennslunnar verður hjá kennara sem
kemur frá Póllandi, sem pólsk yfirvöld
velja.“
Með því bætist pólska í hóp tungu-
mála sem hægt er að læra við háskólann.
Alls eru fjórtán tungumál í boði en flest
þeirra eru kennd sem aukagrein, eins
og verður með pólskuna. Með því verða
einstaklingar að skrá sig í annað 120 ein-
inga nám og taka pólsku samhliða því.
„Þetta er byrjendanám og markmiðið
er að koma fólki á A2-stigið samkvæmt
Evrópuramma, sem er að geta verið þátt-
takandi í samfélaginu. Farið út í búð
og haldið uppi viðræðum við fólk. Við
vonumst til að ef aðsóknin verður góð
að við getum boðið upp á fullt BA-nám
síðar meir.“
Gerard Pokruszyński, sendiherra
Póllands á Íslandi, segir þetta mikið
fagnaðarefni.
„Þetta er mjög mikilvægt fyrir alla þá
Pólverja sem eru búsettir á Íslandi. Rekt-
or háskólans var mjög hrifinn af þessari
hugmynd sem var frábært. Markmiðið
var að hefja þetta á næsta ári en við-
ræður gengu svo vel að það var hægt að
flýta þessu.“
Pólska sendiráðið hefur boðið upp á
námskeið fyrir yngri kynslóðir sem eiga
rætur að rekja til Póllands til að viðhalda
tungumáli og menningu.
„Við höfum í samstarfi við íslensku
ríkisstjórnina og pólsku ríkisstjórn-
ina boðið upp á kennslu fyrir pólsk ung-
menni sem vilja halda í pólska tungu-
málið og pólskar hefðir. Það stendur
auðvitað íslenskum börnum til boða
líka og þetta nýtur mikilla vinsælda víðs
vegar um landið. Svo eru þrír háskólar
komnir með áfanga um íslensku og
íslenskar hefðir.“
Gerard segir að hann sé stoltur þegar
hann sjái ungt fólk sem sé fulltrúi beggja
landa.
„Það er ofboðslega gaman að sjá ungt
pólskt fólk sem er fulltyngt í íslensku
og pólsku og er fulltrúar tveggja sam-
félaga.“ n
Pólska kennd í HÍ í fyrsta sinn
Í dag eru 43 ár liðin frá einum óvænt-
ustu úrslitum í sögu Vetrarólympíu-
leikanna þegar lið Bandaríkjanna,
skipað áhugamönnum úr háskólum,
hafði betur gegn mulningsvélinni sem
sovéska landsliðið var á þeim tíma og
tryggði sér gullverðlaunin. Leikurinn
er titlaður Kraftaverkið á svellinu (e.
Miracle on ice) og var valinn íþróttavið-
burður aldarinnar af Sports Illustrated
enda átti enginn von á því að Banda-
ríkjamenn myndu ná að standa í liði
Sovétríkjanna.
Sovétríkin voru búin að vinna gull á
fjórum af síðustu fimm Ólympíuleikum
og fimmtán heimsmeistaratitla á tutt-
ugu árum. Á þessum tíma var atvinnu-
mönnum bannað að keppa á ÓL og HM
og voru fremstu íshokkíkappar Sovét-
ríkjanna því á mála hjá hernum og æfðu
eins og atvinnumenn þar.
Leikurinn var ekki sýndur í banda-
rísku sjónvarpi þó að gullverðlaun væru
undir, enda niðurlægðu Sovétríkin
bandaríska liðið 10-3 í síðasta æfinga-
leik liðanna fyrir Ólympíuleikana en
með öflugum varnarleik tókst Banda-
ríkjunum að kreista fram sigur. n
Kraftaverkið við Lake Placid
1732 George Washing-
ton, fyrsti forseti
Bandaríkjanna,
fæðist.
1819 Spánn selur Banda-
ríkjunum fylkið
Flórída
fyrir fimm milljónir
dollara.
1944 Mistök verða til
þess að Bandaríkin
gera árás í Hollandi
sem kostar 800
lífið í Nijmegen.
1958 Egyptaland og Sýrland stofna í sameiningu Sam-
einaða arabalýðveldið.
1962 Sjónvarpsmaðurinn Steve Irwin, sem var titlaður
krókódílaveiðimaðurinn, fæðist.
1974 Pakistan viðurkennir tilvist Bangladesh.
1979 St. Lucia fær sjálfstæði frá Bretlandi.
1986 ESDA-byltingin hefst á Filippseyjum.
1997 Heimsbyggðin fær að heyra af Dolly, kind
sem mannfólki tókst að klóna.
2006 Stærsta rán í sögu Bretlands þegar
hópur stal 53 milljónum punda.
2011 Næstmannskæðasti jarðskjálfti í sögu Nýja-
Sjálands kostar 185 lífið.
Ástkær móðursystir okkar,
Gréta Bachmann,
fyrrum forstöðukona Skálatúns
og síðar Bjarkaráss,
áður til heimilis að Árskógum 6,
lést á Eir hjúkrunarheimili þann 11. febrúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
27. febrúar og hefst klukkan 13.
Regína Gréta Pálsdóttir Stefán Jóhann Pálsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Stefanía Anna Jónasdóttir
Hraunbæ 116, Reykjavík,
lést 28. janúar 2023 á Hrafnistu í
Hafnarfirði. Útförin fór fram í kyrrþey
16. febrúar að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir
góða umönnun.
Jóna Björg Pálsdóttir Grétar Sigurðsson
Fríða Björk Pálsdóttir Gylfi Þór Sigurpálsson
Elva Björt Pálsdóttir Björn A. Erlingsson
barnabörn og langömmubörn
Ástkær dóttir mín, systir og mágkona,
Helga Sigríður
Guðmundsdóttir
Hjallavegi 11, Reykjanesbæ,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
mánudaginn 6. febrúar. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey. Við þökkum auðsýnda vinsemd og hlýju og
sérstaklega starfsfólki A6.
Elísabet Vigfúsdóttir
Vignir Már Guðmundsson Jadvugu Usvaltiene
Ásthildur I. Guðmundsdóttir Hafsteinn Benediktsson
Ingvar Á. Guðmundsson
og fjölskyldur
16 TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 22. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR