Fréttablaðið - 22.02.2023, Blaðsíða 29
FRÉTTABLAÐIÐ LÍFIÐ 2522. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR
Þögnin var heldur betur rofin
á svæðinu kringum tjörnina
í miðbæ Ólafsfjarðar um
síðustu helgi þegar fjöldi
snjósleða tókst á loft í snjó-
kross-keppni af kappsamari
gerðinni.
ser@frettabladid.is
Djar far vélsleðakempur fór u
mikinn um helgina, ef ekki hrein-
lega með himinskautum, á trylli-
tækjum sínum í Ólafsfirði þar sem
fyrsta umferð til Íslandsmeistara
í vetrarsporti því sem kennt er við
snjókross fór fram.
Mót af þessu tagi hafa verið
haldin með hléum frá aldamót-
unum – og það er kannski til marks
um seinni tíma veðurlag að aka þarf
snjónum inn í bæ, þar eð snjóalögin
sem þar eru fyrir eru einfaldlega
ekki nógu mikil til að taka við vél-
sleðum í loftköstum.
Og þá er ekki ónýtt að fjölskyldan
að baki verktakafyrirtækinu Árna
Helgasyni ehf. hafi hvað mestan
áhuga á sportinu í bænum, en hjóla-
skóflur og gröfur frá því kompaní-
inu eru fengnar til að færa snjóinn
til.
Snjónum safnað
„Raunar er þetta spurning um fyrir-
hyggju,“ segir Helgi Reynir Árnason
úr verktakafjölskyldunni, „en við
söfnum snjónum sem við ryðjum
af götunum í bænum á einn stað –
og svo notum við hann í þetta at,“
útskýrir hann.
Og það oftar en einu sinni. „Jú,
við vorum með skíðagöngumót
um þar síðustu helgi og notuðum
snjóinn þá, tókum hann svo burt
og notuðum svo aftur í snjókrossið
um síðustu helgi. Svo þetta er marg-
notaður snjór.“
Margar byltur að baki
Sjálfur á Helgi Reynir marga byltuna
að baki í þessu tilþrifamikla sporti
– og hann kveðst geta vottað það að
þetta sé stórhættulegt sport, enda
fara menn um á harðaspani á upp
undir 100 kílómetra hraða.
„Ég keppti í tíu ár og meiddi mig
oft, stútaði meðal annars á mér
báðum hnjánum,“ segir hann en
bendir á að öryggisbúnaðurinn sé
orðinn allt annar og betri í dag en
áður fyrr.
Ný kynslóð
Og næsta kynslóð er tekin við, betur
varin en sú á undan, svo sem Árni
Helgason, sonurinn og alnafni afa
síns og stofnanda verktakafyrir-
tækisins umrædda, en hann vann
um helgina í sínum flokki, þrettán
ára guttinn.
Keppt er í styrkleikaflokkum eftir
getu manna og sleðanna – og hver
hringurinn af öðrum farinn áður en
úrslit ráðast.
„Það meiddist enginn í ár, alltént
ekkert alvarlega, en menn lemstr-
ast nú alltaf eitthvað,“ segir Helgi
Reynir Árnason. n
Snjókross er mikið sjónarspil, en sleðarnir ná allt að 100 kílómetra hraða. Helgi Reynir fylgist íbygginn með keppninni – á margnotuðum snjónum.
Ný kynslóð snjókrossara er tekin við, betur varin en sú sem keppti á árum áður. MYNDIR: HELGI JÓNSSON
Vélsleðar á flugi
í miðbænum
Ég keppti í tíu ár og
meiddi mig oft, stútaði
meðal annars á mér
báðum hnjánum.
Helgi Reynir Árnason
Valgerður Gunnarsdóttir, versl-
unarstjóri í Partýbúðarinnar
„Þetta byrjar alltaf rólega á daginn
og svo þegar krakkarnir eru búnir
í skólanum þá verður sprenging,“
sagði Valgerður Gunnarsdóttir,
verslunarstjóri í Partýbúðinni,
sem var að búa sig undir sprengi-
dags-sprenginguna í búðinni milli
klukkan 16-18 í gær, aðfangadag
öskudagsins í dag.
„Þetta er náttúrlega allt voða-
lega svipað,“ segir Valgerður þegar
hún er spurð hvort hún hafi orðið
vör við einhverjar tískubylgjur í
búningavali hjá krökkunum í ár.
Hún segir þannig sveiflurnar
ekki miklar frá ári til árs þótt ætt-
arlaukur Addams-fjölskyldunnar,
hún Wednesday, hafi komið sterk
inn núna. „Núna var
Wednesday Addams
náttúrlega alveg aðal
og allt sem henni
tengdist.“
Eitthvað sem
má teljast sér-
lega viðeigandi
þar sem öskudag
ber að sjálfsögðu
upp á miðvikudegi.
Á sama tíma
fyrir ári nefndi Val-
gerður Köngulóar-
manninn, uppblásnar
risaeðlur og búninga
úr Netflix-þáttunum
Squid Game sem þá héldu enn
vinsældum sínum frá árinu þar
áður.
Netflix virðist þannig vega
nokkuð þungt í búningatísk-
unni þar sem Wednesday
hefur einmitt farið mikinn á
efnisveitunni þar sem hún sló
nýlega í gegn í samnefndri
þáttaröð.
Þegar Fréttablaðið ræddi við Val-
gerði fyrir stóra hvellinn síðdegis
í gær var nóg til og hún taldi enga
hættu á því að lagerinn myndi
tæmast. „Auðvitað seljast alltaf
einhverjir búningar upp en við
verðum aldrei uppiskroppa.
Við vinnum ekki þannig,“
sagði hún glettin.
„Og svo náttúrlega vorum
við að fá hundabúninga. Það
er voðalega skemmtileg ný-
breytni. Hundurinn getur
verið Spiderman, Super-
man og lögga. Meira
segja risaeðla og pylsa
og hvað eina.“ n
Wednesday Addams alveg aðal núna
Valgerður segir
sveiflurnar í
búningatísk-
unni ekki miklar
milli ára en segir
Wednesday
hafa komið
sterka
inn í ár.
FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLi
Hundabúningur.
MYND/PARTÝBÚÐIN
Wednesday Addams.
MYND/PARTÝBÚÐIN
SÉRFRÆÐINGURINN |