Fréttablaðið - 22.02.2023, Síða 30
Það er búið að vera
mikið að gera og
maður lærir ýmislegt
af því sem tengist
vellíðan.
Vigdís Hafliðadóttir
Vigdís Hafliðadóttir og félagar
hennar í grínarahópnum
VHS ætla að bjóða gestum
sínum að stíga inn í ákveðinn
heildarheim á nýrri sýningu
í Tjarnarbíói þar sem þau
velja nú vellíðan eftir að hafa
krafist virðingar fyrir fullu
húsi allt síðasta leikár.
odduraevar@frettabladid.is
Einn heitasti uppistandshópur
landsins, VHS, kemur vel undan
annasömu ári og velur nú vellíðan
í nýrri uppistandssýningu sem þau
frumsýna í Tjarnarbíói á laugar-
daginn.
„Við erum auðvitað mjög spennt
og hlökkum mikið til að snúa aftur.
Við ætlum að reyna að ausa aðeins
úr viskubrunni okkar. Það er búið
að vera mikið að gera og maður lærir
ýmislegt af því sem tengist vellíðan,“
segir Vigdís Hafliðadóttir sem var
einmitt í höfundateymi áramótas-
kaupsins.
Brjálað að gera
Hópinn skipa auk Vigdísar þeir
Vilhelm Neto, Hákon Örn Helga-
son og Stefán Ingvar Vigfússon en
þau höfðu nóg að gera á síðasta ári
og létu sér ekki nægja að krefjast
hástöfum virðingar svo eftir var
tekið.
Þau fóru einnig í sýningarferð til
Danmerkur og voru á kafi í dagskrár-
gerð um haustið; fyrir söfnunarþátt
Rauða krossins og Fullveldisdag-
skrá VHS auk þess sem greina mátti
fingraför þeirra á áramóta skaupinu.
Spunnið í Los Angeles
Þau taka engu að síður brakandi
fersk á móti nýju ári en Vigdís þó
sjálfsagt ferskust enda nýbúin að
gefa út og vekja athygli með laginu
og myndbandinu „Hún ógnar mér“
og var að koma heim frá Los Angeles
þar sem hún lærði spuna og ræktaði
andann.
„Já. Ég var í hverfi sem ég veit ekki
hvort þú hafir heyrt um. Það heitir
Hollywood,“ segir Vigdís og hlær
áður en hún tekur fram að hún sé
að grínast. „Ég var að læra spuna og
var á skrifnámskeiðum. Þetta var
geggjað og mjög skemmtilegt,“ segir
Vigdís sem bætir því við að Holly-
wood sé eðli málsins samkvæmt
alvöru grínmekka með stórkostlegri
grínsenu.
Alls konar pælingar
Vigdís segir hugmyndina að baki
því að VHS valdi vellíðan hafi ein-
mitt kviknað út frá því hvað það sé
mikið að gera í kjölfar veirufársins
sem enginn nennir lengur að tala
um.
„Ég held að margir tengi. Það er
allt búið að fara svo hratt af stað
eftir þetta og allt í einu er fólk að
hrasa víðs vegar, búið að vinna mjög
yfir sig og það er ekki óalgengt í
svona hröðu samfélagi að fólk þurfi
aktíft að velja vellíðan,“ segir Vigdís.
Vigdís segir uppistandið því verða
annað og meira en aðeins þau með
hljóðnema á sviði. Þau ætli að koma
allskonar pælingum frá sér á ólíkan
hátt, meðal annars með sketsum, á
veglegri sýningu.
Andleg upplyfting
Aðspurð segist Vigdís vona að
sýningin muni gera eitthvað fyrir
andlega heilsu gesta. „Já ég vona
það. Hláturinn lengir lífið, þannig
ef fólk hlær er það frábært. Ef fólki
finnst við ömurleg þá fær fólk líka
oft mikið kikk út úr því að tala illa
um aðra, þannig það er bara margt
jákvætt í þessu,“ segir Vigdís létt í
bragði.
Hvað eigin leit að vellíðan varðar
segist Vigdís vera að reyna að vinna
minna núna, með áherslu á að hún
sé að reyna og vísar aftur til þema
sýningarinnar sem byrjað er að selja
inn á á Tix.is.
Vigdís bætir því við að það sé
skemmtilegt við þennan bransa
hversu uppskeran skili sér oft seint.
„Maður semur kannski eitthvað lag
fyrir löngu og veit ekkert hvernig
það leggst í fólk. Eða semur grín
heima hjá sér, einn. Þannig það er
svo gott að finna að maður sé ekki
að gera þetta í tómi,“ segir Vigdís.
Hún ítrekar að VHS velji svo sann-
arlega vellíðan þar sem enginn verði
svikinn í heljarinnar uppistandi
sem verði samt svo miklu meira
en það. „Þetta er ákveðinn heildar-
heimur sem við bjóðum gestum að
ganga inn í.“ n
Vellíðan í kjölfar virðingar
Vigdís Hafliðadóttir og félagar í VHS vita hvar vellíðan er að finna. MYND/AÐSEND
ser@frettabladid.is
Arna Lára
Jónsdóttir,
bæjarstjóri
Ísafjarðar
„Þessi siður
hefur fylgt
okkur um aldir
og rekur líklega
sögu sína aftur á
nítjándu öld,“ segir Arna Lára Jóns-
dóttir, bæjarstjóri á Ísafirði, en
æði margir landsmenn ráku upp
stór augu í byrjun vikunnar þegar
fréttamiðlar sýndu ísfirska krakka
á bak við grímur og búninga af öllu
tagi – og héldu einhverjir að þeir
hefðu farið dagavillt.
En grímubúningar eru ekki bara
bundnir við öskudaginn á Ísafirði,
heldur byrjar búningafjörið þar á
bænum á bolludegi og varir fram á
öskudag. Sagan segir að fagnaðar-
lætin nái hámarki á öskudeginum
þegar eldri krakkar mega stríða
þeim minni, sem á stundum hafi
þýtt að litlu krílin hafi ekki þorað
út fyrir hússins dyr. En líklega er
það nú aflagður óknyttur.
Sjálf gleymir Arna Lára ekki
minningunum frá æskuárunum
þegar hún hélt fast í siðinn at arna
ásamt jafnöldrum sínum. „Núna
tek ég bara á móti möskum,“
segir bæjarstjórinn sem minnist
þess að krakkarnir í hennar æsku
hafi bara farið á milli heimila til
að sníkja gotterí, en núna leggi
þau líka leið sína í fyrirtæki og
stofnanir.
„Þetta verður nú ekki ísfirskara,“
segir Arna Lára og leggur áherslu
á að maskadagarnir séu ein-
vörðungu bundnir við bæinn við
Skutulsfjörð. „Við erum alltaf sér
á parti,“ segir bæjarstjórinn að
lokum. n
Maskadagarnir gömul hefð á Ísafirði
Vestfirskar kynjaverur á maskadegi.
MYND/GRUNNSKÓLINN Á ÍSAFIRÐI
LANDSSÍMINN |
BÍÓBÆRINN
MIÐVIKUDAGA KL. 20.00
Gunnar Anton og Árni Gestur
fara yfir þær kvikmyndir sem eru
væntanlegar í bíóhús landsmanna
og dusta einnig rykið af gömlum
gullmolum og fræða áhorfendur um
leyndardóma kvikmyndaheimsins.
26 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 22. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR