Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Blaðsíða 3
SVFR
VEIÐIMAÐURINN
i
MÁLGAGN STANGAVEIÐIMANNA Á ÍSLANDI
NR. 25
SEPT.
1953
ltitstjóri: Viglundur Möller, Útgejandi: Stangaveiðifélag Reykjavikur
Ægissiðu 92. — Simi 9755. Afgreiðsla i Veiðimanninum, Lcckjartorgi
Prentað i Ingólfsprenti
Oséð 09 liðið.
„Stundin deyr og dvinar burt
sem dropi i straumaniðinn,
Öll vor sœla er annaðhvurt
ósrð — eða liðin.“
ÞAÐ er ekki ósennilegt, að skdldjöf-
urinn, Einar Benediktsson, hafi setið
við einhverja veiðiá jregar hann orti pessa
vísu — setið og horft á strauminn og
hlustað á niðinn. Hann var veiðimaður
sjálfur og vissi, hve stundin við ána er
oft fljót að líða. Honum var Ijóst „hve
stundin er hröð og heimslífið skarnmt“,
eins og hann kemst að orði á öðrum
stað, og hann sá það líka, að lífshamingja
okkar er annaðhvort fólgin í endurminn-
ingum liðinna daga eða óskadraumum
um framtiðina. Augnablikið — nútiðin
— er orðið fortíð um leið og það renn-
ur uþp — liðið um leið og það er lifað.
★
Þegar bliðviðrið var mest í siðari hluta
maírnánaðar, urðu margir veiðimenn
tniklir sþámenn og sjáendur. Þeirn oþn-
aðist sýn gegnum hauður og höf. Ora-
vúldir Atlantshafsins lágu eins og landa-
bréf fyrir sálarsjónurn þeirra. Þeir sáu
fylkingar fagurgljáandi laxa bruna upp
að landinu sunnan frá Saragossa eða döl-
urn hins sokkna Atlantis, þar sem for-
feður þessara fögru fiska átt.u, ef til vill,
eitt sinn heirnkynni og þreyttu bratta
fossa í frábcerum veiðiám, meðan land-
ið var enn legi ofar, en ísland ekki risið
úr sœ. Og þeir sáu meira. Það rigndi í
marga daga og rnargar nœtur og flóð
kotnu svo tnikil i allar veiðiár, einkan-
lega þar sem net eru lögð, að engutn
gildrum varð niður komið og laxafylk-
ingarnar streymdu viðstöðulaust upp á
veiðisvœðin og biðu þess að bíta á flug-
ur stangveiðimannanna, sem aftur biðu
með óþreyju eftir því, að hinn 1. júní
rynni uþp og veiðitiminn hæfist. Menn
hugsuðu með hálfgerðri öfund til þeirra,
sem fyrstir fengju að fara á þessar slóð-
ir og leggja til leiks við stórlaxana úr
fyrstu göngunni. Þá hugsaði einnig tnarg-
ur þunglega til úthlutunarnefndarinnar,
VeHHMAÐI'RINN
1