Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Blaðsíða 7

Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Blaðsíða 7
aðeins í veiðiferðir til þess að drepa lax, án þess að það skipti þá nokkru máli, hvar þeir gera það — og jafnvel hvernig þeir gera það. Við þá er tilgangslítið að taia um fagurt landslag, fuglasöng og skógarilm. Þeirra veiðiheimur er aðeins línulengdin út til fisksins og þeirra veiði- gleði fer eftir því, hvort þeir hafa haft viðunanlegt tímakaup yfir daginn þegar andvirði aflans er reiknað út að kvöldi. Að vísu er ekki við því að búast, að þeir, sem hafa aðeins fáeina veiðidaga ár hvert, geti farið að eins og Negley Farson. Flestir reyna auðvitað að nota sína fáu daga til þess að fá fisk. En það er hægt að gera hvorttveggja — njóta umhverfisins og veiða; og eins og að framan var sagt, mun fara svo hjá flestum, að umhverfið verður þeirn æ meira atriði eftir því sem veiðiárunum fjölgar, og óskadraumurinn er vitanlega góð veiðiá í fögru umhverfi. ★ Það er ekki ofmælt, að fáar ár á land- inu uppfylli báðar þessar óskir eins vel og Norðurá í Borgarfirði. F.g á bágt með að ímynda mér að til sé nokkur maður, svo óskyggn á fegurð og náttúrutöfra, að liann geti dvalið þar nokkra daga í góðu veðri án þess að verða fyrir áhrfium, sem hann á erfitt með að gleyma. Það mætti segja mér að Negley Farson þyrfti að leggja frá sér stöngina og horfa í kring- um sig, ef hann kæmi þangað til að veiða þegar útsýn er þar fegurst. Ég tel mig ekki í hópi þeirra, sem til nokkurrar hlítar hafa „numið náttúrunn- ar mál og tungur fjalla“, en ég á þó frá dvöl minni við Norðurá, og raunar nokkrum fleiri stöðum, endurminningar, sem nægja til þess, að mér finnst ég geta skilið þá menn, sem segja svipað og liaft var eftir Negley Farson hér að framan. Og um það verður tæplega deilt, að þeir, sem stunda veiðarnar með því hugarfari, fá fjölbreyttari ánægju af ferðinni en hinir, sem ekkert sjá nema laxinn. Skoðanir manna eru eflaust skiptar um það, hvar náttúrufegurð sé mest í Norð- urárdal. Mörgum þykir fallegast við Lax- foss, þar sem veiðimannahúsið stendur. Þeir, sem ekki stunda veiðar, vilja sjálf- sagt helzt vera á Hreðavatni, eða þar í nágrenninu. Allur er dalurinn fagur, en að mínum dómi er skemmtilegra og hlý- legra \ ið sjálfa ána þegar kemur niður undir Glanna. Á efra svæðinu er gróður lítill á bökkunum, einkanlega vestan megin, víða malar- eða sandeyrar og landslagið ekki eins rismikið og þegar neðar dregur. Hamrastallarnir austan megin árinnar, sem eru svo l’allegir og aðdáanlega reglulegir, njóta sín ekki jafn vel svona nærri, eins og t. d. frá veginum eða vestar úr dalnum. Mjög er þó fagurt að horfa eftir dalnum, hvar sem staðið er, hvort heldur er inn til Baulu eða niður og suðvestur til Grábrókar. Litafegurð er þarna stundum ótrúlega heillandi. Mið- sumarkvöldin ógleymanleg. Það er auðvelt að gleyma sér við Glanna. Fossinn býr yfir kynlegu seið- magni, sem nær meiri og meiri tökum á áhorfandanum eftir því sem hann situr lengur við hann. Ég hef gleymt stund og stað við Glanna oftar en einu sinni, þeg- ar ég hef setið á klettinum austan við laxastigann og hlustað á þrumurödd vatnsins þar sem það brýzt um bergstall- ana niður í freyðandi hringiðuna í kletta- gljúfrinu fyrir neðan fossinn. Ég hef horft á tugi laxa, sem lágu á stallinum sínum, grafkyrrir hlið við hlið og hver aftur af Veiðimaourinn 5

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.