Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Side 12
um landið, þar sem fiskur er fyrir, en
nauðsynlegt þykir að bæta við stofninn.
Þá hefur talsvert verið unnið að bygg-
ingum og lagfæringum á fiskistigum á
ýmsum stöðum.
Hluti af laxastiga i Eyrarfossi
i Laxá i Leirársveit.
í Laxá i Leirársveit er lokið stigabygg-
ingu í Eyrarfossi, og verða sett í hana
seiði árlega næstu árin.
í Brynjudalsá var enn haldið áfranr
stigagerð í sumar og miðar því verki vel
áfram. Hafa þegar verið sprengdir tveir
fossar og nýlega var byrjað á þeim þriðja.
Flekkudalsá. í Gullbráarfossi var gam-
all stigi, sem reyndist ónothæfur, en hefur
nú verið gerður upp að nýju. Opnast þar
15—20 km. veiðisvæði. Verða sett í ána
bæði kviðpokaseiði og aliseiði.
Laxá Ytri (við Höskuldsstaði). Þar er
verið að gera tvo stiga, sem eru mikil
mannvirki. Hefur á þessi hingað til verið
ófiskgeng nema fyrstu 1—2 km. Spreng-
ingar voru gerðar í sumar og ætlunin að
steypa á næsta vori. Opnast þar langt
svæði, senr menn gera sér góðar vonir
um að fiskur uni sér vel á þegar fram
líða stundir.
Mikil verkefni bíða enn, bæði nýbygg-
ingar og lagfæringar á gömlum stigum.
T. d. þarf að laga stigann í Laxfossi í
Norðurá hið bráðasta. Laxastigar eru
ekki mannvirki, sem hægt er að byggja í
eitt skipti fyrir öll. Endurbóta og við-
lialds er alltaf þörf.
KORPA (Úlfarsá).
EINS og kunnugt er, stendur til að
taka 250 sekúndlítra af vatni úr Korpn
til áburðarverksmiðjunnar. I því sam-
bandi hefur verið byggð stífla, rétt fyrir
neðan veginn, hjá Lambhaga. Laxastigi
Stiflan i Korpu og laxastiginn.
hefur verið byggður í stífluna til þess að
fiskur geti gengið þar upp. Ætlunin er
að loka lóninu, sem þarna myndast, svo
að fiskurinn gangi framhjá, en safnist þar
ekki fyrir. Aðal vandkvæðin í sambandi
t ið vatnstökuna eru þau, að vafasamt er
að áin þoli að missa allt þetta vatn —
verði ekki svo lítil að fiskurinn komist
10
Veiðimaðurinn