Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Side 21

Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Side 21
ÞAÐ mun vera svo, að hver veiðiför liefur sína sérstæðu sögu. ()g væru þær allar færðar í letur, myndi þurfa að gera Veiðimanninn að dagblaði, og dygði þó varla til. En af því að hér korna nokkuð sérstök atvik til greina, datt mér í hug að senda Veiðimanninum þessar línur. Hefurðu gert þér grein fyrir því, les- andi minn, hvernig það er, að ganga með nokkurra mánaða gamlan hárlubba á höfðinu? Nei, ég veit að þú hefur ekki reynt það. Eg skal nti reyna að lýsa því fyrir þér. Það hafði verið samfelldnr þurrkur í mánuð. Sífelldur hrakandi lieyþurrkur — og í byrjun þurrksins hafði hárið á mér verið minnst mánuði of gamalt. Hár- luhhinn, sem var allur klístraður og svita- storkinn að kvöldinu, var byrjaður að lokka sig fallega upp aftur neðarlega á hálsinum, upp með húfupottlokinu, svo þegar rykið úr heyinu hrærðist saman við svitann og allt fór í eitt þófaberði, var varla hægt um vik að klóra sér, að ég nú ekki tali um það, að bera greiðu að koll- inum. Það var ég alveg hættur að reyna — lét mér bara nægja að strjtika fingx- unum gegnunt lubbann og reyndist það líka fullerfitt. (Blessaðar kaupakonurnar sögðu að ég gengi með sveitamann). Eða þá koddinn manns! Það var nú verkun. Konan mín var farin að hafa orð á að láta mig sofa með belg á höfðinu. Sem sagt — ég taldi mig aldrei hafa tíma til að klippa mig eða hirða. Svona var nú ástandið sunnudagsmorgun einn, þegar bjargvætturin birtist í mynd Friðþjófs Oskarssonar, rakara. Hugði ég nú að grípa tækifærið og láta liann gera góð- verk á kollinum á mér. Fann á mér að nú myndi lausnarstundin upp runnin. Herti ég því upp hugann og stundi upp beiðni um klippingu. Friðþjófur tók nú þessari málaleitun frekar dauflega, er liann hafði litið á verkefnið, sagði eitt- hvað á þá leið, að sauðaklippur myndu hér helzt hæfa. Hef ég sennilega verið nokkuð sauðarlegur á svipinn. Friðþjóf- ur var annars kominn til að kaupa sér Veiðimaðurinn 19

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.