Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Qupperneq 34

Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Qupperneq 34
þeir, en við héldum áfram okkar leið. Ekki þótti okkur vænlegar horfur um veiðar, samt vildum við reyna að telja okkur trú um að vel gengi, við nytum þó alltaf góða veðursins, því vel leit út fyrir að það mundi verða gott. Þegar í liúsið kom, var það okkar fyrsta verk, að líta eftir því, hvort lifandi væri í eldavélinni og var það svo, að við bætt- um kolum í liana, til þess að hlýtt, yrði meðan við tækjum okkur bita og sopa, og svo var það vistlegra fyrir félagana að koma í hlýtt hús. Ekki komu félagarnir og fórum við að búa um okkur og hátta, og var ég sofnaður þegar þeir konm, en vaknaði brátt við glaðlegan söng. Þá voru nú ekki maðkarnir í blöndunni, enda var því spáð, að nú mundum við fiska vel á morgun, og lögðumst allir glaðir til svefns, vongóðir um veiðifeng og frjálst Hf næsta dag. Snemma var vaknað og drukkið gott kaffi, eins og vant er ltjá veiðimönnum. Skiftum við okkur á ákveðin veiðisvæði. Við Jón vorum á efri veiðunum, en Finn- bogi og Baldur á þeim neðri. Jón var fyrri til á veiðarnar og fór í kisturnar, og kom ég til hans og kvað bezt að hann væri hér einn í næði, fór svo neðar með ánni. Þegar lieim var komið til hádegismat- ar, var Jón með 3 laxa, ég með engan. Finnbogi með 2, Baldur með engan. Nú liafði heldur fjölgað í húsinu. Var komin ráðskona og nokkrir rafmagns- menn til að raflýsa húsið, og jók allt þetta á ánægju lífsins. Var nú sezt að borðum og allir leituðu ánægjulega í mal sínum og tóku hressilega til matar og kaffilyktin ihnaði um allt húsið og fyllti hvers manns lungu með fjöri og áræði til hvers, sem vera skyldi. Var nú skipt um veiðisvæði enn á ný, og hlutum við Jón Grjóthyl og upp með ánni, en Finn- 3g bogi og Baidur Staðarbakkaveiðarnar. Nú var lagt af stað og var veiðihugur mikill. Þegar við Jón komum í Grjóthyl, sagði hann við mig: „Nú rennir þú hér, Gísli, Ég fer yfir ána og upp með henni. Þú varst svo góður við mig í morgun.“ Svona eiga veiðimenn að vera hver við annan. Ég renni efst í Grjóthyl, og undir eins var þrifið rösklega í. Fann ég fljótt að hér var góður fiskur. Var hressilegt að takast á \ ið hann; samt vannst það að landa honum, og var það nýrunninn hrygna. Ég beitti öngulinn enn á ný og kastaði á sama stað. Sá ég þá lax vaða uppi. Tók hann undir eins og beitan datt á vatnið, lét mikið og var allerfið- ur. Samt tókst vel með að þreyta hann. Þá var nú minn maður kominn á móti mér. Þegar ég hafði landað laxinum leit ég á klukkuna og voru liðnar 40 mínútur frá því að ég beitti fyrst öngulinn. Þetta var hrygna og hængur, báðir nýrunnir, og 14 pund livor, fallegir fiskar. Reyndum við að fá meira af svo góðu, en það tókst ekki. Héldum við þá ujtp með ánni, en allt var það án árangurs. Haldið var svo heim í miðdegiskaffið. Komu félagarnir litlu seinna án nokkurs veiðiárangurs. Ég var ansi rogginn þegar ég kom upp með ískofanum. Kallar þá einn rafmagns- maðurinn til mín og biður mig að stansa, lxann ætli að taka mynd af mér, og tókst það vel. Maður var þar nærri og varð naumt fyrir, og faldi hann sig því á bak við mig, en ekki samt nógu vel til að sjást ekki. Síðan var drukkið kaffið og eitthvað bætt á sig af mat og öðru góð- gæti. Enn var lagt af stað á veiðar og voru menn frjálsir ferða sinna til kvölds. Bættu hinir félagarnir þrem löxum við sína fyrri veiði, svo allir voru glaðir yfir að vera búnir að veiða 10 laxa þennan dag. Þótti okkur þetta góð veiði. Loks VeIÐIMAPURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.