Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Page 8
fé, en væri þar með tryggt, að hægt yrði
að rækta upp svæðið, ætti ekki að hika
við að ráðast nú þegar í þær fram-
kvæmdir.
Með hverju árinu sem líður, fjölgar
þeim, er fara að stunda stangaveiði sér
til skemmtunar. T. d. hefur fjölgað svo
mjög í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur
síðustu árin, að engin ráð eru til að veita
öllum félagsmönnum viðunandi úrlausn
á sama ári, og er liópur þeirra óánægðu
alltaf miklu stærri eftir hverja úthlut-
un. Félaginu er því nauðsyn að fá fleiri
veiðivötn til umráða, en eins og nú
horfir eru litlir eða engir möguleikar
til þess, neina með ræktun nýrra vatna-
svæða eða að fleiri vilji snúa sér að sil-
ungsveiði í vötnum en hingað til. Það
er vitað, að víðsvegar um landið eru
góð silungsvötn, sent lítið eða ekkert eru
notuð. Mörg þeirra liggja enn utan við
vegakerfið, svo að erfitt er að komast
þangað, og ennþá erfiðara að komast
þaðan aftur með aflann, ef hann er nokk-
ur að ráði. En sum þeirra eru þó ekki
fjær þjóðvegunum en svo, að kleift væri
að leggja þangað vegi. Það hlýtur að reka
að því innan skamms, að menn fari að
athuga þessa möguleika, því að laxveiði-
árnar í landinu eru ekki nógu margar
til þess að allir, sem langar til að veiða,
geti komist að í þeim. Væri ekki liugs-
anlegt, að stofna félög silungsveiðimanna,
sem tækju á leigu eða fengju til umráða
silungsvötn og beittu sér fyrir samgöngu-
bótum og vegalagningu þangað sem var-
anlegir veiðimöguleikar eru fyrir hendi,
að dómi veiðimálastjóra og annarra sér-
fróðra manna á þessu sviði? Silungsveiði
er mikið stunduð í öðrum löndum og
þykir þar mjög skemmtilegt sport. Sum-
6
ir vilja heldur veiða silung en lax, auk
þess sem laxveiði er víðast hvar erlendis
miklu dýrari og engin von til að komast
KlakhúsiÖ hjd Kirkjubce.
í laxárnar, nema fyrir lítinn hluta þess
fjölda, sem stundar stangaveiði. Þeir, sein
fara að veiða silung með réttum tækjum,
segja flestir eða allir, að það sé engu
minna sport en að veiða lax, og sumir
taka það jafnvel fram yfir, eins og áður
var sagt. En þó gert sé ráð fyrir að menn
færu að stunda silungsveiðina meira en
verið hefur, er eftir senr áður jafnnauð-
synlegt að taka til ræktunar allar þær
ár, sem talið er að lax geti þrifist í.
Kemur þá vatnasvæði Lagarfljóts mjög
til greina, því aðstæður virðast þar allar
ákjósanlegar, miðað við það sem er víða
annars staðar þar senr ræktun lrefur ver-
ið reynd og tekizt sænrilega. Þess má geta,
að silungur er bæði í Grímsá og Ey-
vindará og ef til vill víðar.
Eins og flestir vita er náttúrufegurð
mikil austur þar. Á hverju ári fer fjöldi
fólks þangað í sumarleyfutn srnunr. Við
Eyvindará kvað vera rrrjög fallegt, víða
nrikill skógur og hlýlegt landslag. Vega-
samband er orðið gott og flugferðir tíðar.
Flugvöllur er við Egilsstaði. Gistiaðstaða
Veiðimaðurinx