Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Page 13

Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Page 13
ERLINGUR ÞORSTEINSSON: ifHli 9* Landaklöppin SOGIÐ er tvímælalaust eitt fegursta fljót, sem fellur um sunnanverti Island; einkum er efsti hluti þess tilkomumikill og fagur. Fossarnir þrír setja svip á þetta svæði, þó þeir séu nú aðeins svipur hjá sjón, eftir að þeir voru virkjaðir. Vatnið er óviðjafnanlega tært og litfagurt, þar sem það streymir fram með miklum nið og þunga. Fyrir neðan Kistufossinn, sem er, svo sem kunnugt er, neðstur hinna þriggja fossa, eru að vestanverðu allbratt- ar, skógi vaxnar hlíðar, en á köflum stór- grýtt mjög niður við ána. Röskum hundrað metrunr neðan við þennan foss, er staður, sem Landa- klöpp nefnist. Ekki veit ég af hverju hún dregur nafn, en landamörk eru þar nærri. Áður fyrr, og jafnvel allt fram að því er hafizt var handa um virkjunarfram- kvæmdir þarna í grennd, var þessi stað- ur talinn einn bezti veiðistaður í öllu Soginu. Nú hefur mannshöndin og stór- virk tæki breytt svo mjög útliti staðar- ins, að hann er vart þekkjanlegur, og spillt svo öllum aðstæðum og straumlagi, að fremur mun nú sjaldgæft að þar fáist lax. Neðri endi jarðganganna, er flytja vatnið frá Irafossvirkjuninni, opnast ein- mitt efst á klöppinni. Mikið liefur borizt af alls konar rusli út á klöppina, auk þess torfur, möl og grjót. Allt getur þetta haft sín áhrif. Sunrir halda því fram, að laxinn fari inn í göngin og hafizt þar við. Hef ég heyrt, að beðið hafi verið um að komið yTði fyrir þarna einhvers konar hindrun, til þess að laxinn kæm- ist þar ekki inn, en úr framkvæmdum hefur ekki orðið enn. ★ Fyrir tæpum 10 árum leigði ég hluta af Soginu, af Guðmundi bónda á Bílds- felli, nánar tiltekið, svæðið frá Kistufossi niður að læk, sem rennur í ána neðan við stóru beygjuna, sem er rétt við þjóð- veginn — alls 3—4 km. Hafði ég þetta veiðisvæði í þrjú ár. Laxinn kemur seint þangað, að jafn- aði ekki fyrr en undir miðjan ágúst, svo teljandi sé, enda hefur veiðitíminn venjulega fengizt framlengdur til 20. september. Fagran haustmorgun um miðjan sept- ember, að mig minnir, héldum við veiði- félagarnir, Jón læknir Eiríksson og ég, af stað, vel ríðandi á hestum frá Bílds- felli, áleiðis til fyrirheitna landsins. Það var sólskin og logn og dálítil héla á jörðu. Dásamlega fagur morgunn. Við riðum Veibimaðurinn 11

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.