Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Side 14

Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Side 14
gegnum skógarkjarrið í brekkunum með- fram ánni. Fuglasöngurinn blandaðist niði árinnar. Ilmurinn frá birkinu og öðrum gró'ðri jarðar barst að vitum okk- ar. Þessa stundina gleymdum við bless- uðum laxinum, náttúrufegurðin heillaði okkur svo mjög, og ekki spilltu gæðing- arnir, sem töltu með okkur fullir af fjöri. Ferðin var aðeins of stutt, því áð- ur en varir erum við komnir á grasbal- ann rétt ofan við Landaklöppina frægu. Vi'ð bindum nú klárana „á streng“, svo að við töpum þeim ekki út í busk- ann. Þá er nú „sett saman“ og ormurinn langi þræddur á krókinn. Þegar þetta gerist rennur lítill rauð- ur lækur út í fljótið, rétt ofanvert við miðja klöppina. Sjálf er klöppin hulin vatni árinnar, svo lítið sem ekkert sést af henni. Árbakkinn er þarna mjög lág- ur og sendinn af framburði lækjarins. Aðeins tvær þúfur standa upp úr sand- inum, sín hvoru megin við mynni lækj- arins. Við félagar tökum okkur nú stöðu á þessum þúfunr, ég á þeirri efri. Frá fyrri kynnum okkar af þessum stað vitum við að laxinn liggur helzt utan í aðalstrengn- um, nærri miðju fljótsins, sem þarna er breitt. Við köstum nú nær samtímis, og komum agninu vel út fyrir strenginn. Þegar færi mitt er komið rétt inn fyrir röstina aftur, er hann á, já, og það í fyrsta kasti! Ekki byrjaði það nú illa. Eftir stutta en snarpa viðureign landa ég 6—7 punda laxi. Strax á eftir fæ ég annan, og innan stundar þann þriðja. Alla svip- aða að stærð. F.g raða þeim upp á gras- balann skammt frá hestunum, sem dansa þarna hægan vals. Klukkan er rúmlega 10. „Af liverju verður Jón ekki var?“ liugsa ég. „Við erum þó vanir að fá hann á hérna báðir samtímis." Ég kasta aftur nokkur köst, og við báðir, en nú vill hann ekki meira. Mér verður litið til hestanna og sé að þeir eru komnir ískyggilega nærri löxunum mínum. Ég Iileyp upp á balann, tek laxana og legg þá á sandinn rétt ofan við þúfuna mína og breiði strigapoka yfir þá. Þegar ég er að Ijiika við þetta heyri ég óp mikið frá Jóni. „Það er einn af stærri sortinni á hjá mér,“ kallar hann um leið og hann tek- ur á rás niður eftir. „Jón er ekki vanur að fara sér að neinu óðslega, svo það hlýtur að vera eitthvað óvenjulegt á seiði,“ flýgur mér í hug um leið og ég legg stöngina mína upp við bakkann, þar sem hestar okkar tvístíga, og hleyp af stað sem fætur toga. „Mikil ósköp er hann Jón lappalang- ur,“ tauta ég á hlaupunum. „Ég hef ekkert við honurn. En hvað laxinum liggur á, skyldi liann ætla að fara með hann Jón minn niður í Ölfusá? Eða máske út í sjó!“ Skárri eru það nú lætin! Nú hverfa þeir mér sjónum með öllu. Trjárunni skyggir á. Þegar ég kem auga á Jón aftur, er hann kominn út í stór- grýtisurðina neðan við Arnarstapahyl- inn mikla. „Guð minn góður!“ Nú dett- ur hann endilangur í urðina. Ætli hann hafi rotast? Nei, Itann hreyfir sig; hann réttir stöngina upp. Ég kem að í þessu, gríp stöngina og hleyp áfram á eftir laxinum. Eins konar boðhlaup! Það er engin lína eftir á hjólinu, svo nú er að duga eða drepast. Já takk, þarna festist línan í runna; liann slítur auðvitað úr sér! Mér tekst samt að losa í snatri, og í sömu andránni stekkur hann, dóninn 12 Vf.iðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.