Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Blaðsíða 28

Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Blaðsíða 28
minn seinan með þessum orðum: „Ja, þá var nú piltur snöggur.“ Laxarnir voru 12 pund hver, allt lirygnur nema smalinn. Hann var 16 punda hængur." Fjórði sögumaður. NÚ var þögn um stund. Var það greini- legt, að öllum fannst mikið til um sög- ur þremenninganna og treystu sér ekki til að gera betur. Loks tók þó fjórði sögu- maður til máls og mælti: „Ég hef raun- ar ekki frá neinu markverðu að segja. Þó kom atvik fyrir á síðastliðnu sumri, sem ég mun lengi minnast. Ég var að renna í „Holuna“ í Elliðaánum og fann nart. Þar sem laxinn er stundum lengi að taka í holunni beið ég rólegur eftir því að hann hlypi tit. Eftir drykklanga stund fann ég, að kippirnir voru orðnir svo þungir, að líklegt var að laxinn væri örugglega fastur. Ég brá því við honum, og svo sannarlega var hann á! Venju- lega rásar laxinn upp á Breiðuna eða niður að steininum, en þessi gerði hvor- ugt, heldur þumbaðist kyrr í holunni, svifaði aðeins til og frá. Þennan dag lá skemmtiferðaskip á Reykjavíkurhöfn, og þegar laxinn tók, voru fyrstu bílarnir að fara austur með ferðafólkið. Þegar hinir erlendu menn sáu, að ég var „með hann á“, stöðvuðu þeir bílana og þyrptust nið- ur að girðingunni, sumir með mynda- vélar, sem þeir beindu ýmist að mér eða umhverfinu. Einn áhugasamur kvik- myndatökumaður hljóp niður með ánni að austanverðu ,og klifraði upp á stóra steininn fyrir neðan Holuna og kvik- myndaði þaðan mig og áhorfendaskarann að baki mér. Ég steig fram á fótinn og rétti mig í baki, teygði fram hökuna, ýtti hattinum aftur á hvirfilinn og reyndi að sýnast sem reffilegastur, meðan á myndatökunni stóð, en jafnframt lagði ég svo þungt átak á stöngina sem ég þorði. Og nú fór kauði að gefa sig. En hvert í þreifandi! Upp á yfirborðið lyft- ist ekki lax, heldur kippa af sverum kaðli er öngullinn hafði krækzt í. Ég kross- bölvaði, óð út í og dröslaði öllu til lands, en mannfjöldinn við girðinguna laust upp margrödduðu undrunarópi. Þakkaði ég hamingjunni fyrir að vera ekki mála- maður, því ég skyldi fátt eitt af því, sem skarinn talaði, fyrir utan það, að kvik- myndatökumaðurinn tautaði „For hel —“ meðan hann var að paufast niður af steininum og ösla til lands. Aður en ég hafði fyllilega áttað mig, var hjálp- samur náungi búinn að sækja pundara veiðihússin og farinn að vega fenginn. Og nú höfðu áhorfendurnir eitthvað til að mynda. Loks týndist hópurinn í bíl- ana, sem þokuðust af stað og hurfu brátt austur af Ártúnsbrekku. Eftir sat ég hnýpinn og hljóður. Þó tók ég fljótt gleði mína aftur, því í niði árinnar þóttist ég nema fyrirheit um uppbót seinna.“ S-birtingur. KASTHJOL GILDEX til sölu við mjög sanngjörnu verði. Kjartan R. Guðmundsson Úthlíð 8. 26 Veibimaðurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.