Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Síða 30
svo öll mun þulan góð.
Og undir leika elfur
svo okkar ferðalag
er sem gleðiganga
með glæstum sumarbrag.
Er sem gleðiganga
sem geymist heila öld,
enda þótt að elli
eignist nokkur völd.
Enda þótt að elli
einhver kunni ráð
verður veiðimanna
vor ei slíku háð.
Verður veiðimanna
vesturförin björt,
rennur fyrir röðli
reginnóttin svört.
Rennur fyrir röðli
hið raunalega mál.
Ljómar Laxárdalur
og lyftir vorri sál.
Ljómar Laxárdalur
þó lágt sé Þrándarkot,
fyllist hugur fjöri
sem fagni veglegt slot.
Fyllist hugur fjöri
við flúð og bláan streng,
sett er stöngin saman,
um Svarfhólsland ég geng.
Sett er stöngin saman
og sveiflað Doctor Blue.
Ég veit að veiðigyðjan
mér verður holl og trú.
Þula frá Þrándarkoti
LEIÐUR er Laxárdalur,
löngum er hann svalur
og ekki fisk að fá.
Bezt mun að halda héðan
fyrst hef eg hvergi séð ’ann
og enginn við öngli brá.
Kotið er kalt og fúið,
kurfslega að manni búið
þótt heimtað sé hærra verð.
En verst er að laxinn ljósi
liggur í sæ fyrir ósi
sviftur sundglaðri ferð.
Því gleymst hefur vatni að veita
í veginn sem laxar beita
svo þar er nú aðeins urð.
Lansrar mig til að taka,
tvíhenda skóflu og haka
og leggja laxgengan skurð.
Finnst ekki forsjón „Papa“
fiskleysið við oss gapa
ef ekkert að er gert,
að opna laxinum ána
áður en fjöllin grána?
— Það væri þakkarvert —.
Jólakort S.V.F.R.
S.V.F.R. vill minna veiðimenn og þá,
sem senda veiðimönnum jólakort, að fé-
lagið hefur til sölu nokkrar tegundir af
kortum, sem eru sérstaklega gerð í þessu
skyni. Um leið og við styðjum okKai
eigið félag,með því að kaupa þessi kort,
sendum við einnig örlítinn aukageisla
með jólakveðjunni til kunningja okkar,
sem oft dvelja í huganum við árnar, þeg-
ar þeir eiga þess ekki kost, að komast
þangað með öðru móti.
Kortin eru seld hjá Th. Benjamíns-
son, Vesturgötu 4, verzl. Hans Petersen,
Bankastr., Veiðimanninum, Hafnarstræti
og flestum bókabúðum.
Veiðimaðurinn flytur öllum lesendum
sínum beztu óskir um Gleðileg jól.
Ritstj.
28
Veibimaðurinn