Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Qupperneq 31
PÁlmi Hmwesson rektor.
Störf hans í þágu veiðimála.
ÞANN 22. nóvember s.l. andaðist
Pálmi Hannesson, rektor, 58 ára að aldri.
Hann var Skagfirðingur að ætt, fæddur
að Skíðastöðum í Lýtingsstaðahreppi 3.
jan. 1898. Pálmi varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 19 i 8 og hóf síð-
an nám í náttúrufræði við Kaupmanna-
liafnarháskóla. Lauk hann meistaraprófi
í þeirri grein 1926. Hann kenndi síðan
við Gagnfræðaskólann á Akureyri frá
1926—1929, en varð rektor Mennta-
skólans í Reykjavík haustið 1929 og
gegndi því starfi til æviloka.
Aðalstarf Pálma Hannessonar var
kennsla og skólastjórn, en auk þess lét
hann mörg mál til sín taka og gegndi
mörgum opinberum trúnaðarstörfum.
M. a. sat hann á Alþingi í 5 ár og var í
Bæjarstjórn Reykjavíkur í 4 ár. Aðal
áhugamál hans var náttúrufræðin og þá
einkurn jarðfræði hin síðari ár. Pálmi
var mikill ferðamaður og fór um flestar
byggðir landsins sem óbyggðir. Á ferða-
lögum sínum lét hann sér ekki nægja
að fá hugmynd um landslagið, heldur
lagði hann það á minnið í einstökum
atriðum. Kom þessi gagngera þekking
á landinu sér vel í ýrnsum störfum hans.
Á sviði nátt-úrufræðinnar kom Pálmi
Hannesson víða við auk kennslustarf-
anna. Hann kannaði landið jarðfræði-
lega, átti sæti í Rannsóknarráði ríkisins,
var í útgáfustjórn Zoology of Iceland, í
stjórn Náttúrufræðifélagsins, og síðast en
ekki sízt í Veiðimálanefnd. Það er um
hin miklu og heillaríku afskipti hans af
veiðimálum, sem þessari grein er sérstak-
lega ætlað að fjalla.
Þegar Pálmi Hannesson kom heim frá
háskólanámi, var áhugi manna á veiði-
málum að vakna eftir áratuga deyfð.
Veiðilöggjöf var ófullkomin, fiskrækt
á byrjunarstigi og þekking á veiði-
vötnum af skornum skammti, enda
höfðu þau lítt verið könnuð og rann-
sökuð síðan Bjarni Sæmundsson ferð-
Veiðimaðurinn
29