Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Page 34

Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Page 34
Qamftd veiðifélftgí. ÉG fór fyrst að renna fyrir lax sum- arið 1928, og fékk þá veiðileyfi í Elliða- ánum. Mun Runólfur Kjartansson hafa útvegað mér það. Var þá veitt þar með tveim stöngum daglega, og hafði ég aðra stöngina einn dag í hverri viku. Hefðu þá þótt harðir kostir, ef þau skilyrði hefðu verið sett, að tveir menn væru um sömu stöngina, hvað þá að þeir hefðu hana aðeins liálfan daginn, eins og nú er venja, og enn fráleitara liefði þótt að bæta við þriðju stönginni. khrda voru þeir svo fáir stangveiðimennirnir í þá daga, að hver og einn gat hæglega orðið sér úti um veiðistaði, án þess að troða öðrum um tær. I fyrstu var ég ákaflega klaufskur við veiðarnar, enda aldrei séð veiddan lax áður og engrar tilsagnar notið, en ég var búinn út með stærri ánamaðka en ég liafði áður augum litið. Ég hafði dálítið vanizt silungsveiði, en þá notað aðallega gervibeitu eða ánamaðka, sem týndir voru undan torfuskæklunr eða nrykju- skánunr. Og handfæraveiðum var ég al- vanur. En sú reynsla kom nrér að litlu lraldi, að minnsta kosti þegar ég ætlaði að nota sömu aðferðina og við þorskinn, en það var að kippa jafnan strax á nróti, þegar nartað var í beituna. Dró ég þann- ig út úr mörgum laxinum í fyrstu. Fljótlega sá ég, að ekki var einleikið, hve illa mér gekk við veiðarnar, þegar veiðifélagi nrinn dró lrvern laxinn á fætur öðrum rétt við nefið á mér, en ég var öngulsár á meðan. En ég var kappsfullur, eins og margur byrjandinn, og vildi ó- gjarnan koma heim með léttari poka en hinir. Veiðitæki og allan útbúnað þóttist ég hafa í bezta lagi, og svo marga þorskana hafði ég dregið, að einhver veiðináttúra hlaut að vera í mér. Þetta gat því varla stafað af öðru en kunnáttu- leysi. Nú voru góð ráð dýr. Ég varð að brjóta odd af oflæti mínu og biðja veiðifélaga minn að leiðbeina mér. Ég færði þetta í tal við hann, og sjaldan hef ég mætt meiri nærgætni og skilningi en að þessu sinni. Veiðifélagi minn var enginn annar en Guðmundur Jóhannsson, alkunnur veiðimaður, og voru þetta fyrstu kynni mín af honum, sem síðan varð af óslit- in vinátta í 28 ár, eða þar til hann lézt síðastliðinn vetur. Kennslan var auðfengin, og kom ég ekki að tómum kofunum hjá Guðmundi í veiðifræðunum. Gat ég fljótlega not- fært mér ýmsar góðar ráðleggingar, sem þá miðuðust mest við maðkveiðina á neðra svæðinu í Ánum. En erfitt átti ég með að tileinka mér það, sem lærifaðir minn taldi fyrsta boðorðið í fræðunum, en það var að fara að engu óðslega. Þar var víst eitthvert ólag á eðlisfari mínu, sem ekki er með öllu horfið enn- þá. Guðmundur var aftur á móti alltaf jafnrólegur, eins og gamall Yogi. Guðmundur var stúdent að menntun 32 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.