Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Side 38
„Gaztu stíflað lækinn svona vel?“
„Nei, ég tjóðraði ódráttinn.“
Nú var mér öllum lokið. Ég hraðaði
mér að læknum, en þar sá ég, að priki
hafði verið stungið niður í bakkann. Var
laxinn tjóðraður við prikið með línu-
spotta, sem hnýtt var upp í fiskinn. Ég
kippti honum upp á bakkann, en hann
var fremur lítill og grindhoraður og svo
þakinn kaunum og kýlum, að ég hef
aldrei séð neitt líkt því, hvorki á fisk-
um né öðrum dýrum. Mér varð hálf-
óglatt af því að horfa á fiskinn og spyr
Guðmund, hvað hann haldi að gangi
að skepnunni.
„Það leynir sér ekki, þetta er ekta
laxafransós, og það er hreinasta mildi,
ef hann er ekki búinn að smita frá sér.“
Ég sá, að Guðmundur hafði rétt að
mæla, og nú bað ég hann að kvelja ekki
laxgreyið lengur, heldur drepa hann srax,
því ég treysti mér ekki til þess að snerta
á honum. Guðmundur losaði prikið úr
bakkanum og dró laxinn á spottanum
upp á hól, sem þarna var rétt hjá, en
aldrei vissi ég, hvort hann gaf honum
náðarstuðið.
Þegar við komum þarna í næstu veiði-
ferð, flaug hrafn af hólnum, en ég þótt-
ist hafa séð hann vera að kroppa í eitt-
hvað og fór því að forvitnast um, hvað
það hefði verið. Þarna lá beinagrindin
af laxinum fræga, en ég var þá búinn
að gleyma honum. Ég sagði Guðmundi,
að hrafninn hefði verið að ljúka við lax-
inn góða.
„Ja, sá verður ekki langlífur," sagði
Guðmundur með sannfæringarkrafti.
Eitt sinn, þegar Guðmundur kom úr
veiðiferð frá Soginu, en ég var ekki með
honum í það skipti, hringdi hann til
mín seint um kvöldið og fór að segja
mér frá ferðinni, og var enginn asi á
honum frekar en venjulega. Þetta kvöld
voru gestir hjá mér, svo ég var orðinn
dálítið óþolinmóður, þegar hann loks
Þessi mynd er tekin við sumarbústað Scemundar
Stefánssonar hjá Núpstúni. A henni er talið frá
vinstri: Jóhann Þorsteinsson, Guðmundur Jóhanns-
son, Sremundur og Stefán, sonur hans.
spyr mig, hvort ég vilji ekki skjótast til
sín, því ef til vill hafi ég gaman af því
að sjá stóran lax, sem hann hafi veitt.
Ég sagðist ekki geta komið. En oft hefur
mig iðrað þess, að verða af þeirri sýn-
ingu, því seinna frétti ég, að þetta myndi
hafa verið einhver allra stærsti lax, sem
veiðzt hefur á stöng hérlendis. En ekki
var Guðmundur neitt að hugsa um að
halda þessu á lofti, því vottföst mun vigt-
unin ekki hafa verið.
Guðmundur var annar tveggja elztu
36
Veiðimaðurinn