Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Blaðsíða 40

Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Blaðsíða 40
hafði hann mikla ánægju af að rifja upp ýmsa atburði þaðan. Ég kynntist Ásgeiri G. Gunnlaugssyni löngu áður en ég fór sjálfur að fást við stangveiði. Við drukkum oft kaffi við sama borð á Hótel ísland, á árunum kringum 1940. Mér er minnisstætt eitt fagurt sumarkvöld, er við urðum sam- ferða þaðan vestur í bæinn. Við gengum alla leið vestur að sjónum og röbbuðum um ýmsa liluti. Sólin var að hverfa bak við jökulinn, allt vesturloftið logaði í litskrúði kvöldroðans, sem sló gullbjarma á flóann og spegilslétt sundin. Esjan og vesturfjöllin risu í djúpum, dulmögn- uðum bláma undir eldslæðum sólarlags- ins. Örlítil bára gjálfraði við ströndina og nokkrir sjófuglar flögruðu yfir fjöru- borðinu, en aðrir létu lognölduna vagga sér um sólroðið sundið. „Það er fallegt núna hérna í Reykja- vík,“ segir Ásgeir. „}á, ég ætla líklega að verða heppinn með veðrið í sumarleyfinu mínu í þetta sinn,“ svaraði ég. „En mér þykir verst, að ég veit ekkert hvað ég á af mér að gera. Ég ætti að manna mig upp og fara eitthvað út úr bænum." „Veiðirðu ekki lax?“ spurði Ásgeir. „Nei, ekki hef ég nú fengizt við það ennþá,“ svaraði ég. „Þú værir ekki í vandræðum með sum- arleyfin þín, ef þú fengir þér veiðistöng,“ sagði liann. „Ég held þú gætir varla var- ið þeim betur. Það er nú fyrst og fremst hollt fyrir ykkur, sem sitjið inni alla daga, að hreyfa ykkur eitthvað úti. Og ef þú byrjar á að veiða lax, muntu fljótt komast að raun um að það er skemmti- legfc líka. Reyndu það, og þig mun ekki iðra þess.“ Ég held að þetta hafi verið fyrsta hvatn- ingin, sem ég fékk til þess að gerast stang- veiðimaður, og þótt enn liðu nokkur ár þangað til ég batt tryggð við veiðistöng- ina, hefur mér oft síðan orðið lrugsað til samtals okkar Ásgeirs, þetta fagra sum- arkvöld í Vesturbænum. Eftir að Hótel ísland brann lágu leiðir okkar Ásgeirs sjaldnar saman. Sá hópur, sem þar hittist og átti margar ánægju- stundir, dreifðist á aðra staði. Ég sá þó Ásgeir öðru hvoru á götunni, og nokkru eftir að ég fór að fást við stangaveiði mætti ég honunr eitt sinn og sagði hon- um þá, að nú væri ég farinn að veiða og minnti hann á samtalið forðum. „Þá ætla ég að bæta einu við núna,“ sagði hann. „Notaðu fluguna sem mest. Þú veizt ekki til fulls lrvað veiðiskapur- inn er, fyrr en þú hefur náð góðri leikni með hana. Og það ættu allir að byrja með liana strax.“ Þessi ráðlegging Ásgeirs er enn í fullu gildi og skyldu allir byrjendur festa sér liana vel og rækilega í nrinni. Þá yrði veiðimenning okkar Islendinga brátt meiri en hún er nú. Ásgeir G. Gunnlaugsson var prúð- nrenni mikið, traustur í sjón og raun, enda vinsæll og virtur af öllunr. Heilsu hans var þannig komið síðari árin, að lrann lá rúmfastur og gat ekki stundað stangveiði né önnur lrugðarefni sín. En offc mun lrugur hans hafa reikað inn að „Ánum“. Hinir nrörgu vinir lians og veiðifélagar nrunu ávallt minnast lrans sem eins af beztu fulltrúunr þeirrar traustu og tápmiklu kynslóðar, sem nú er óðum að hverfa. Víglundur Möller. 38 Vf.iuimadurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.