Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Side 45
Margra ára uppeldisstarf
lagt í rústir
á einni nóttu.
í ágústmánuði s.l. var framið óvenju-
lega óhugnanlegt skemmdarverk í
Brynjudalsá í Hvaltirði.
Leigjandi árinnar, Ingibergur Stefáns-
son forstjóri, hefur, frá því 1943 að hann
tók ána á leigu, lagt mikla vinnu í að
gera hana fiskgenga til ræktunar á laxi.
Hefur liann árlega sett í ána um 50 þús-
und laxaseiði. Slíkar aðgerðir kosta rnikla
fyrirhöfn og fjárútlát, sem nú hefur,
eftir ]3 ára strit, verið lagt að mestu
leyti í rústir á einni nóttu.
Ekki mun þetta hafa verið fyrsta ó-
tuktaráhlaupið, sem gert hefur verið á
vatnasvæði þetta, því að fyrir rúmum
tveim árum var stolizt í ána og dregið
á einn aðalhylinn og hirtur nieiri hlut-
inn af þeirn laxi, sem búið var að rækta
upp í henni þá. í ár voru aðgerðirnar
enn svívirðilegri, þar sem þjófarnir
drápu nú laxaseiðin í þúsundatali í ltyln-
um við Bárðarfoss, ásamt 60—70 full-
þroskuðum löxum, ollu þar með gífur-
legu tjóni og eyðilögðu mikil verðmæti.
Það er leitt til þess að vita, að þeir
menn skuli vera tif í okkar þjóðfélagi,
sem hafa slíkt innræti, sem þarna fékk
útrás.
Seiðin, sent lágu dauð í hylnum, voru
komin á þann aldur, að innan skaranta
hefðu þau gengið til sjávar og komið
aftur á næstu árum til uppeldisstöðv-
anna fullþroskuð til uppbyggingar, við-
halds og aukningar á laxastofni vatna-
svæðisins.
Um þetta var allmikið rætt manna á
meðal og um það skrifað í dagblöð bæj-
arins. Vakti verknaður þessi andstyggð
og fyrirlitningu alls almennings. Rann-
sókn var hafin í málinu af rannsóknar-
lögreglunni í Reykjavík. Því miður er
ódæðisverkið enn óupplýst.
Verknaði þessurn mætti líkja við það,
að ráðist væri að sumarlagi á fjárstofn
nýbýlabóndans, vorlömbunum útrýmt,
megnið af fullorðna fénu drepið og hirt
það, sem liægt væri að koma í verð.
Einn af þessum dauðu löxum, ásamt
nokkrum seiðum, sendi Ingibergur mér
til atliugunar. Þykir mér rétt, að gefa
lesendum Veiðimannsins kost á að vita
hvað kom í ljós við skoðun á þessum
dauða laxi, svo og hvernig seiðin litu
Veiðimaðurinn
43