Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Page 46
út eftir árásina á hylinn. Fer hér á eftir
útdráttur úr skýrslu, sem ég sendi veiði-
málastjóra og leigjanda árinnar:
„Miðvikudaginn 22. ágúst 1956 tók
undirritaður á móti dauðum laxi, sem
fundizt hafði í hylnum við Bárðarfoss
í Brynjudalsá í Hvalfirði.
Leigjandi árinnar, Ingibergur Stefáns-
son, upplýsti að lax þessi hefði verið
dauður í hylnum, ásamt 11 öðrum, að
morgni sunnudagsins 19. ágúst. Að kvöldi
pesS 21. náði Ingibergur nokkrum dauð-
um löxum úr hylnum og sendi mér einn
þeirra til athugunar.
Lax þessi er 53 cm langur hængur og
vegur 1450 gr. Óeðlileg þensla virðist
vera á kviðnum og blóðstorka er við got-
rauf. Að öðru leyti sést ekki annað á
laxinum að utan.
Þegar kviðarholið er opnað, vellur
mikið af blóði og blóðkekkjum út úr
því. Við nánari athugun kemur x ljós,
að sundmaginn er sprunginn. Blæðing-
arnar stafa frá hryggæðinni, sem hefur
rifnað á tveim stöðum og eru rifur þess-
ar 7—8 cm langar. Tálkn, hjarta, lifur
og önnur líffæri eru eðlileg útlits. Inni-
hald í maga er gráleitur, slímkenndur
vökvi. I neðri hluta garna er mikið af
livítum, nokkurra cm löngum fiskormum.
Við hrygg er ekkert athugavert. Hvergi
er sjáanlegt að agn hafi sært fiskinn.
Ingibergur gat þess, áð allmikið magn
af dauðum laxaseiðum lægi í hylnum.
Sendi hann 11 dauð seiði til athugunar.
Seiði þessi eru 11—12 cm á lengd.
Voru þau öll með rifu á kvið, undir
kviðugga hægra megin og lágu innyflin
þar út úr, eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd.“
Gnðrn. J. Kristjánsson.
Leigan
á Þverá.
MÖRGUM er orðið kunnugt, að
Stangaveiðifélag Reykjavíkur gerði leigu-
tilboð í Þverá, í septembermán. s.l. Veiði-
félag Þverár samþykkti á fundi sín-
um að ganga að því tilboði, en stjórn
þess ráðstafaði síðan ánni til aðila, sem
stjórn SVFR telur vafasamt að átt hafi
rétt á að ganga inn í tilboðið, samkvæmt
fundarsamþykktinni.
Þess liefur þegar orðið vart, því mið-
ur, að komnar eru á kreik ýmsar kvik-
sögur um mál þetta. Þess vegna hefur
stjórn SVFR afrá'ðið að skýra greinlega
frá tilboðinu, aðdraganda þess og afleið-
ingum. Með því móti einu verður kom-
ið í veg fyrir misskilning hjá þeim, sem
ekki hafa fylgzt með gangi málsins og
verða að byggja á lausafregnum einum.
Það getur engum orðið til góðs að slíkur
misskilningur verði til.
★
Á félagsfundi, sem haldinn var í SVFR
17. marz 1955 var samþykkt svohljóðandi
tillaga frá stjórn félagsins:
„Fundur SVFR, haldinn í Verzlunar-
mannaheimilinu, samþykkir að fela fé-
lagsstjórninni að leita samninga við nú-
verandi leiguhafa að veiðiréttinum í
Stóru-Þverá í Borgarfirði um samvinnu
að núverandi leigutímabili liðnu, þann-
ig að SVFR verði samningsaðili og tryggi
sér veiðiréttindi á efsta veiðisvæði árinn-
44
Veiðimaðurinn