Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Page 48

Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Page 48
að fundurinn yrði að ákveða, hvort til- boðinu yrði tekið eða því hafnað, og ennfremur var óskað eftir svari strax daginn eftir. Þegar tilhoðið var afhent kom fram, að þeir Davíð og Andrés töldu áreig- endur ekki vilja láta fyrri leigjendur verða afskipta um veiðirétt í ánni, ef þeir óskuðu eftir honum. Voru þeir þá minntir á áðurnefnda samþykkt í félagi fyrri leigjenda og bent á, að þeir gætu símað til Hallgríms Fr. Hallgrímssonar og fengið staðfestingu á því, að félag hans væri reiðubúið að semja við SVFR, ef það fengi ána á leigu, enda þótt hans félag ætlaði ekki að bjóða í ána. Daginn eftir fundinn, þann 14. sept- ernber, barst formanni SVFR símskeyti, þar sem stjórn félags áreigenda hað stjórn SVFR að hitta sig að máli kl. 21 sam- dægurs, þ. e. 14. september. Þegar á þann fund kom sagðist stjórn Veiðifélags Þverár þegar hafa ráðstafað ánni til „fyrri leigjenda", og báru fyrir sig fundargjörð frá kvöldinu áður, þar sem félagið liafði samþykkt að taka til- boði SVFR. en gefa þó fyrst „fyrri legj- endum“ forgangsrétt. Formaður og varaformaður SVFR bentu þá stjórn Veiðifélags Þverár á fé- lagssamþykkt fyrri leigutaka, sem þeir Davíð og Andrés hefðu verið minntir á daginn áður, þar sem samvinna milli SVFR og félags fyrri leigutaka hefði ver- ið ákveðin. Félag fyrri leigutaka hefði tilkynnt að það myndi ekki bjóða í ána, enda engar umræður farið fram milli fornranns félagsins, Hallgríms Fr. Hall- grímssonar, og stjórnar Veiðifélags Þver- ár, síðan Hallgrímur gaf Davíð áður- nefnda yfirlýsingu. Kom þá fram, að Jiin- 46 ir nýju leigutakar væru þrír tilteknir ein- staklingar úr félaginu. Andrés Eyjólfsson tók fram, að búið væri að tala við Hallgrím og væri hann samþykkur hinum nýju samningum. Stjórn SVFR efaði að þetm væri rétt, og liar fram þá fyrirspurn, að ef rangt reynd- ist, hvort ekki bæri að líta svo á, að stjórn Veiðifélags Þverár hefði leigt þeim Vil- hjálmi Þór, Birni Ólafssyni og Eyjólfi Jóhannssyni ána í heimildarleysi, þar sem þeir hefðu ekki umboð félags fyrr- verandi leigutaka. Stjórn SVFR fékk þau svör, að stjórn Veiðifélagsins teldi sig hafa fulla heim- ild til þess að ráðstafa ánni til þessara manna. Daginn eftir, þann 15. september, tal- aði formaður SVFR hins vegar við Hall- grím Fr. Hallgrímsson og spurði hann, hvort rétt væri með farið um samþykki hans til málsins. Sagði Hallgrímur að til sín hefði fyrst verið liringt kl. um 7 kvöldið áður og liann beðinn að kalla saman félagsfund, þá þegar, og bera þar fram tillögu uin að félagið tæki ána á leigu á grundvelli tilboðs SVFR. Þessu sagðist Hallgrímur liítfa neitað, og að jrví svari fengnu var hann spurður, hvort þeir 7 félagsmenn, sem ekki voru við samningana riðnir, myndu vilja fá aðild að leigunni. Þessu kvaðst Hallgrímur ekki geta svarað fyrr en umræður hefðu farið fram um málið á félagsfundi. Eins og áður er sagt, er það skoðun stjórnar SVFR, að stjórn Veiðifélags Þverár hafi hinn 14. september ráðstaf- að ánni til aðila, sem ekki gat verið átt við með orðunum „fyrri leigjenda“ í fundarsamþykktinni daginn áður. / fyrsta lagi voru fyrri leigjendur 10 og Vf.IÐIMABURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.