Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Side 49

Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Side 49
höfðu með sér formlegt félag. Meiri hluti þessa félags gat einn komið fram fyrir liönd „fyrri leigjenda'. Þetta hefur þeim verið ljóst, sem símaði til Hallgríms Fr. Hallgrímssonar kl. 19 hinn 14. septem- ber, og bað hann að kalla saman fund í félaginu þá þegar og bera þar upp tillögur um að félag fyrri leigjenda tæki Þverá á leigu á grundvelli tilboðs SVFR. I öðru lag.i hafði félag fyrri leigjenda gert samþykkt um samvinnu við SVFR og formaður þess skýrt formanni Veiði- félags Þverár frá þeirri samþykkt. Stjórn Veiðifélags Þverár var kunnugt um, að þeir Vilhjálmur Þór og Björn Olafsson voru andvígir þessari samþykkt og gat því ekki litið á þá sem fulltrúa „fyrri leigjenda“ í þessu sambandi, þó að þriðj i meðlimur félagsins, Eyjólfur Jóhannsson, liefði gengið til liðs við þá. Til þess þyrftu þrír að skoðast meiri hluti af 10. —• Þeir framleigusamningar, sem síðar kunna að hafa verið gerðir, breyta hér engu um. Stjórn SVFR taldi félag fyrri leigu- taka vitanlega úr sögunni í samkeppni um ána, þar sem formaður þess, Hall- grímur Fr. Hallgrímsson, hafði lýst yfir við hana og tilkynnt Davíð Þorsteinssyni, að félagið ætlaði ekki að bjóða. Eigi að síður spurði hún þá Andrés og Davíð sérstaklega að því, hvort nokkurt ákvæði um forleigurétt hefði verið í samningi fyrri leigutaka. Svöruðu þeir því neit- andi. Þeir gdtu þess ekki, oð œtlun þeirra vœri að búa til forleigurétt handa áður- nefndum þremur einstaklingum úr fé- laginu, þegar d fundinn kæmi, enda hefði. stjórn SVFR þd aldrei boðið svona hdtt i dna, og jafnvel hætt við að bjóða þar sem henni hefði þd verið Ijóst það sem síðar kom á daginn, að einungis vœri verið að nota hana til þess að hækka leiguna fyrir þeim, sem þegar væri á- kveðið að leigja. Það verður tæpast sagt að þessi fram- koma sé viðkunnanleg, svo ekki sé fast- ar að orði kveðið, hvorki gagnvart stjórn SVFR. né þeim, sem ána fengu. Fyrrv. stjórn S.V.F.R. Verðlaunakeppni. VARLA mun til sá veiðimaður, sem á ekki í hugarfórum sínum einhverjar veiðisögur, sem hann telur svo merki- legar, að hann situr sig sjaldan úr færi að segja þær, ef hann getur komist áð fyrir öðrum, sem eins er ástatt um. Þetta er víst ekkert sérkenni á okkur íslend- ingum, lieldur kvað það vera svona um allar jarðir, en hitt er líka sameiginlegt með veiðimönnum víðasthvar, að það er mjög erfitt að fá þá til að skrifa sögur sínar. Elestum þykir samt skemmtilegra að lesa veiðisögur en hlusta á þær, og ástæðan er auðvitað sú, að þegar einhver er að segja frá, liggur hinum svo mikið á með sínar sögur, að þeir mega ekki vera að því að lilusta. Þess vegna er miklu réttara af þeim, sem eiga góðar sögur, að skrifa þær og fá þær birtar í Veiðimanninum. Þetta hefur að vísu Jrann ókost, að þeir veigra sér sennilega við, að segja félögum sínum eins oft sömu söguna, upp aftur og aftur, eftir að inin hefur birzt á prenti, en á móti því kemur, að miklu fleiri fá að njóta hennar. En það er margt fleira en veiðisögur, 47 Vr.IPIMAeURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.