Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Page 50
sem menn hafa gaman af að lesa. Margir
lýsa ágætlega veiðisvæðum, sem þeir
þekkja vel — sjálfri ánni, einstökum
veiðistöðum, örnefnum, svo og umhverfi
öllu og staðháttum. Slíkar frásagnir er
mjög gaman að lesa, þegar þær eru vel
gerðar, og inn í þær má svo vitanlega
fella góðar veiðisögur. Ótal margt fleira
mætti nefna, og frá hinum stóra hópi
veiðintanna ætti að vera hægt að fá góðar
greinar um allt, sem að veiðiskapnum
lýtur.
Nú hefur ritnefnd Veiðimannsins á-
kveðið að efna til ritsmíðakeppni og
veita verðlaun fyrir nokkrar beztu grein-
arnar, sem blaðinu berast. Fjöldi verð-
launanna fer eftir þátttökunni, en verði
hún sæmileg, er ætlunin að veita fern
verðlaun. Verða þau öll veiðidagar í
einhverjum ám félagsins — einn stang-
ardagur fyrir hverja grein, sem verðlaun
hlýtur, eftir nánara samkomulagi við
stjórn S.V.F.R. þegar farið verður að
úthluta veiðileyfum fyrir næsta ár.
Greinarnar þurfa að hafa borizt blað-
inu fyrir 20. febrúar 1957, og skulu þær
sendast til ritstjórans í lokuðu umslagi
og nafns höfundar ekki getið. En í öðru
lokuðu umslagi, sem nafn greinarinnar
er ritað á, skal senda miða með nafni höf-
undarins og heimilisfangi. Bezt væri að
vélrita greinarnar, ef hægt er að koma
því við, en það er að sjálfsögðu ekki skil-
yrði; samt þarf frágangur að vera sæmi-
lega góður.
Öllum lesendum Veiðimannsins er
heimil þátttaka.
Veiðimenn! Nú er til veiði að vinna.
Þá hlýtur andinn að vera reiðubúinn
og holdið að hlýða! Ritstj.
Aðalfundur
S.V. F. R.
S.V.F.R. hélt aðalfund sinn í Tjarnar-
kaffi 2. des. s.l.
Sæmundur Stefánsson, fráfarandi for-
maður félagsins, flutti skýrslu stjórnar-
innar. í upphafi máls síns minntist hann
fimm félagsmanna, sem látizt höfðu á
starfsárinu, þeirra Ásgeirs G. Gunnlaugs-
sonar, Guðmundar Jóhannssonar, Stein-
gríms Bjarnasonar, Lúðvíks Bjarnason-
ar og Eiríks Bech.
Félagsmenn eru nú orðnir um 580 og
hefur fjölgað um 60—70 á árinu. Nokkr-
ar umsóknir voru samþykktar á fundin-
um.
Veiðivötn fléagsins voru hin sömu nú
og sl. ár: Elliðaárnar, Laxá í Kjós, ásamt
Bugðu og Meðalfellsvatni, Laxá í Leir-
ársveit og Norðurá í Borgarfirði. Enn-
fremur hafði félagið, eins og undanfarið,
nálega l/3 af veiðitímanum í Miðfjarð-
ará, með sérstökum samningi við Stang-
veiðfélagið í Borgarnesi, og einnig nokk-
uð í Fáskrúð í Dölum, með sérstökum
samningi við félagið á Akranesi, sem aft-
ur fékk sömu aðstöðu og áður í Laxá í
Leirársveit.
Lokið var byggingu veiðihússins við
Norðurá, en eftir er að girða leiguland-
ið. Verið er að leggja rafmagn heim að
húsinu og mun því verki að fullu lokið
í tæka tíð fyrir næsta veiðitíma.
Vegir voru lagfærðir við Norðurá, nýir
48
Vf.iðimaðurinn