Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Side 56

Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Side 56
Bóndinn þar liafði áður verið meðmæltur því að leigja árnar til stangveiði og gert tvær tilraunir til að fá stofnað veiði- félag í því skyni. En hann stóðst ekki lögnina handan árinnar og sannast hér hið fornkveðna, að ekki þarf nema einn gikkinn í hverri veiðistöð. Einhver kann að segja, að þetta geti ekki gert til. Hér sé farið að samkvæmt gildandi iögum um iax- og sihmgsveiði, o o o o ' og aumingja netamennirnir segjast eig- inlega engan lax fá í netin, bara dá- iítið af silungi. En stangveiðimennirnir þykjast vita betur og benda á veiðibók- ina sína. Veiði þeirra og stangveiði heima- manna er þessi, árin 1951—1956: Ár Veiddir laxar 1951 (engin lögn) ................ 82 1952 (engin lögn) ................ 81 1953 (ein lögn) .................. 71 1954 (tvær langir) ............... 40 1955 (tvær lagnir) ............... 48 1956 (tvær langir) ............... 20 Hér liggur ljóst fyrir livað er að ger- ast. Veiðin þrýtur gersamlega á nokkr- um árum. Starfi þeirra, sem unnið hafa að ræktun og bættri meðferð ánna, er á glæ kastað. Osabændurnir tveir hirða í lagnir sínar nálega allan laxinn úr án- um, þ. e. sinn eðlilega lilut að viðbætt- um eðlilegum hlut annarra landeigenda að ánum og auk þess meginhluta við- haldsstofnsins. Þeir fylgja lögunum og við framferði þeirra er því ekkert að segja. Og sennilega halda þeir áfram í nokk- ur ár eftir að lagnirnar eru hættar að borga sig, — í trú á óvænta aflahrotu. — Ræktunarstarf er ekki liægt að hefja aftur fyrr en netamennirnir hafa gefizt upp, þ. e. þegar fullvíst er, að árnar megi teljast gjöreyddar. VII. Hér hafa verið rifjuð upp nokkur atriði, sem alþingismenn þurfa að hafa í huga þegar þeir ganga frá breytingum á lögum um lax- og silungsveiði. Sýna þau mjög Ijóslega, að alþingi ver'ður að hætta að fara eftir tillögum netamanna við setningu veiðilaga. Takmarkanir þær á netaveiði, sem ráð- gerðar voru í frumvarpi því, sem lá fyrir síðasta þingi, eru hvergi nærri nægar, þar sem netaveiði er og hefur að undan- förnu verið að minnsta kosti tvöföld við það, sem hún má mest vera. Ef ræktun laxveiðiánna á að þrífast, verður að koma í veg fyrir allan veiðiþjófnað, jafnt þann, sem löglegur er eftir gildandi lax- og silungsveiðilögum, og hinn, sem nú telst ólöglegur. Ef alþingi getur ekki fellt sig við að þurrka netamennskuna út úr laxveiði- ánum, þá verður það að tryggja að réttar upplýsingar fáist um veiðina og jafn- framt, að skylda netamenn til þátttöku í öllum ræktunarkostnaði í hlutfalli við veiði þeirra. Ég sendi endurskoðunar- nefnd laxveiðilaganna tillögu um það efni á sínum tíma og á hún að liggja fyrir í gögnum nefndarinnar. F orsíðumyndin. AÐ þessu sinni er forsíðumyndin frá Laxá í Aðaldal. Steingrímur í Nesi er að kasta úr Hrúthólma, fyrir ofan Grá- straum, og sézt upp á stífluna í Hólma- vaðslandi, sem er einn bezti veiðistaður árinnar. Þar hafa þeir stundum fengizt stórir, Ljósm. Viggó Jónsson. 54 Veiðimaðurinx

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.