Fréttablaðið - 07.03.2023, Side 6

Fréttablaðið - 07.03.2023, Side 6
kristinnhaukur@frettabladid.is vestfirðir Félagið Þingeyri ehf, í eigu lögmannsins Kjartans Ing- varssonar, hefur keypt hina sögu- frægu Gramsverslun á Þingeyri. Verslunin, sem var byggð af danska kaupmanninum Niels C. Gram árið 1890, hefur staðið auð og verið í niðurníðslu undanfarin ár. Hún var í eigu Ísafjarðarbæjar sem hefur leitað að áhugasömu fólki til að taka við byggingunni. „Ég er mjög hrifinn af Vestfjörð- um og hef áhuga á endurbyggingu gamalla húsa,“ segir Kjartan, sem er þó ekki Vestfirðingur sjálfur. „Ég hef verið á Þingeyri og horft á þetta hús grotna niður. Það er mikilvægt að einhver taki húsið aftur í fangið og hefji það upp til vegs og virðingar.“ Kjartan fær húsið án endurgjalds en með skilyrðum um að gera það upp. Áætlaður kostnaður er um 100 milljónir króna að lágmarki. „Það þarf að endurnýja húsið hátt og lágt í samráði við Minjastofnun. Burðarvirkið er ágætt en það þarf að endurnýja útveggi, klæðningu, setja lagnir og skólp og allan pakkann. Í sjálfu sér er þetta fokhelt hús,“ segir Kjartan. Vonast hann til að skrifað verði undir afsalið í næstu viku og þá getur undirbúningur að fram- kvæmdum hafist strax. Þetta muni hins vegar taka tíma. Gert er ráð fyrir fjölþátta starf- semi í húsinu. Á jarðhæð verður gestastofa þjóðgarðsins, upplýs- ingamiðstöð, verslun og aðstaða fyrir fólk að hittast. Á miðhæðinni verður sýningarrými og skrifstofur í risi. n Níu af hverjum tíu Íslending- um telja að Landsvirkjun skapi mikil verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Tæp 30 prósent meta verðmætin gríðarmikil, rúm 30 prósent mjög mikil og um 27 prósent frekar mikil. olafur@frettabladid.is OrKUMÁL Þetta eru niðurstöður úr skoðanakönnun sem Gallup vann fyrir Landsvirkjun. Könnunin var unnin í lok síðasta árs, en í uppgjöri Landsvirkjunar í febrúar síðast- liðnum kom fram að orkufyrirtækið hyggst greiða 20 milljarða króna í arð til ríkisins. Í könnun Gallup var einnig spurt hvort virkjanir Landsvirkjunar hafi haft jákvæð áhrif á íslenskt sam- félag. Niðurstaðan var sú að ríflega þrír af hverjum fjórum aðspurðum segjast vera þeirrar skoðunar að þær hafi haft jákvæð áhrif á samfélagið. Þegar fólk í nærsamfélagi virkjana er spurt, það er  á sjálfum starfs- svæðum Landsvirkjunar, hvort það telji virkjanir Landsvirkjunar hafa haft jákvæð áhrif þar heima í hér- aði eru viðbrögðin enn jákvæðari gangvart virkjunum. Algengt er að yfir 80 prósent heimafólks meti áhrifin jákvæð, hluti svarar hvorki/ né en neikvæðir eru oftast á bilinu 2-5 prósent. Þá lýstu um 65  prósent  allra aðspurðra sig fylgjandi frekari virkjanaframkvæmdum hér á landi og rúm 16 prósent að auki tóku ekki afstöðu. Frekar, mjög eða alfarið andvíg frekari virkjunum voru sam- tals 20 prósent, eða um fimmtungur aðspurðra. Viljum vera góðir grannar Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðar- forstjóri Landsvirkjunar, segir niðurstöðurnar mjög ánægjulegar en að þær hafi ekki komið Lands- virkjunarfólki á óvart. „Við finnum auðvitað stuðninginn við orku- fyrirtæki þjóðarinnar þar sem við störfum. Landsvirkjun hefur alltaf lagt sig fram um að starfa með nær- samfélagi sínu og vera góður granni og við ætlum að kappkosta að vera það áfram.“ Fréttablaðið greindi frá því síðast- liðinn föstudag að erlendir ferða- menn á Íslandi væru sáttir við þá grænu orkuvinnslu sem þeir yrðu varir við á ferðum sínum. Um 99 prósent töldu orkuvinnsluna ýmist hafa haft jákvæð áhrif eða engin á upplifun þeirra af íslenskri náttúru. Ársfundur Landsvirkjunar verður haldinn í dag, þriðjudag, kl. 14 í Hörpu. n Það er mikilvægt að einhver taki húsið aftur í fangið og hefji það upp til vegs og virðingar. Kjartan Ingvars- son, lögmaður Landsvirkjun hefur alltaf lagt sig fram um að starfa með nærsam- félagi sínu og vera góður granni. Kristín Linda Árnadóttir, að- stoðarforstjóri Landsvirkjunar Allsherjaratkvæðagreiðsla VR Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsfólks VR vegna kjörs formanns og stjórnar VR, skv. 20. gr. laga félagsins, hefst kl. 09.00 miðvikudaginn 8. mars nk. og lýkur kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 15. mars 2023. Atkvæðagreiðslan er rafræn á vr.is. Valið er milli tveggja frambjóðenda til formanns VR og 16 frambjóð enda til stjórnar VR. Merkja skal við mest sjö frambjóðendur í stjórnar kosningum. Kjörstjórn VR Frambjóðendur til formanns, í stafrófsröð Elva Hrönn Hjartardóttir Ragnar Þór Ingólfsson Frambjóðendur til stjórnar, í stafrófsröð Árni Konráð Árnason Gabríel Benjamin Halla Gunnarsdóttir Helga Ingólfsdóttir Jennifer Schröder Jóhanna Gunnarsdóttir Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir Nökkvi Harðarson Ólafur Reimar Gunnarsson Sigríður Hallgrímsdóttir Sigurður Sigfússon Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir Vala Ólöf Kristinsdóttir Þorsteinn Þórólfsson Þórir Hilmarsson Ævar Þór Magnússon Hvernig kýst þú formann og stjórn VR 1. Smelltu á „Kosningar í VR 2023” á vr.is 2. Skráðu þig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum 3. Atkvæðaseðill opnast með upplýsingum um hvernig þú átt að kjósa VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími 510 1700 • vr@vr.is • vr.is Verðmæti eru í virkjunum Einungis 20 prósent aðspurðra í könnun Gallup voru andvíg frekari virkjunarframkvæmdum. MYND/LANDSVIRKJUN Hundrað milljóna króna uppbygging lovisa@frettabladid.is LÖGreGLUMÁL Þrjár sprengjuhót- anir hafa borist embætti lögregl- unnar á Suðurnesjum á þessu ári. Ein slík barst fyrir tæpum tveimur vikum  og hefur einn verið hand- tekinn vegna hótunarinnar. Hót- unin var ekki talin trúverðug að mati lögreglunnar en töluverður viðbúnaður var við ráðhús Reykja- nesbæjar þegar hótunin barst í almennt tölvupóstfang bæjarins. Einn var handtekinn í síðustu viku við komu til landsins. Á síðasta ári bárust alls sex sprengjuhótanir til embættisins. Fimm af þessum sprengjuhótunum voru metnar óljósar og ótrúverð- ugar en  ein sprengjuhótunin var greinarbetri en hinar fimm. Í svari lögreglunnar á Suður- nesjum segir að til umfangsmikilla aðgerða hafi komið á Keflavíkurflug- velli í tveimur þessara tilvika, þar sem um var að ræða flugvélar á flug- leið milli Evrópu og Bandaríkjanna, þegar sprengjuhótanir bárust. n Þrjár sprengjuhótanir á þessu ári Töluverður viðbún- aður var við ráðhús Reykjanesbæjar þegar hótunin barst. olafur@frettabladid.is stJÓrNsÝsLA Ríkisstjórnarmeiri- hlutinn á Alþingi beitti meirihluta- afli í gær til að koma í veg fyrir að Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, fengi að bera upp fyrirspurn til þingforseta um greinargerð Sigurðar Þórðarsonar, fyrrverandi setts ríkisendurskoð- anda, um Lindarhvol. Á forsætisnefndarfundi í gær- morgun greiddu allir nefndarmenn, nema Birgir Ármannsson forseti, atkvæði með því að birta greinar- gerðina og staðfestu niðurstöðu nefndarinnar frá því 4. apríl 2022. Atkvæðagreiðslunni um fyrir- spurnina var tvívegis frestað og hefur Fréttablaðið heimildir fyrir því að f lestir þingmenn Vinstri grænna hafi viljað samþykkja heimildina. Haldnir voru þing- flokksfundir stjórnarflokkanna og að loknum löngum þingflokksfundi VG gengu allir þingmenn flokksins í takt við Birgi Ármannsson og Sjálf- stæðisflokkinn. Í síðustu viku lögðu þingmenn rík- isstjórnarmeirihlutans í stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd til að nefndin tæki skýrslu Ríkisendurskoðunar um Lindarhvol, sem ekki tókst að afgreiða á síðasta kjörtímabili, til umfjöllunar á ný. Var það samþykkt. Ástæðan fyrir því að ekki tókst að afgreiða hana á síðasta þingi var sú að nefndin fékk ekki að fjalla um greinargerð Sigurðar Þórðarsonar um málið, en í endanlegu skýrsl- unni var níu atriðum í greinargerð Sigurðar andmælt sérstaklega. Nefndin taldi sig ekki geta afgreitt skýrsluna án þess að hafa greinar- gerðina til hliðsjónar. Nú óttast sumir stjórnarandstæð- ingar að ríkisstjórnarmeirihlutinn hyggist nota meirihlutaafl sitt til að keyra í gegn samþykkt á skýrslu Ríkisendurskoðunar án þess veita þingmönnum eðlilegan aðgang að greinargerðinni. n Óttast að aflsmun meirihlutans verði beitt Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, fær ekki spurningu um Lindarhvol. 6 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 7. mARs 2023 ÞriÐJUDAGUr

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.