Fréttablaðið - 07.03.2023, Side 8
Hinir ákærðu
Páll Jónsson (Páll timbursali)
1955
Upplifði að verið væri að not-
færa sig í málinu. „Það var bara
verið að nýta mína þekkingu
í farmflutningum á timbri frá
Brasilíu til Íslands. Það er það
sem þessir menn voru að nýta
sér. Það er ekkert annað,“ sagði
Páll.
Hann lýsti miklu álagi á sér í
aðdraganda málsins sem leiddi
til þess að hann féllst á að taka
þátt. Þá hafi hann staðið í þeirri
trú að flytja ætti inn sex kíló
af fíkniefnum en ekki tæplega
hundrað. „Ég var kominn í and-
legt þrot,“ sagði Páll en hann
greindi frá því að tvö dauðsföll
innan fjölskyldunnar hefðu haft
mikil áhrif á sig. Sonur hans hefði
látist í mars 2021 og í maí sama
ár hefði tengdamóðir hans látist
og það hefði tekið gríðarlega á.
Daði Björnsson
1992
Harmar að hafa fallist á þátttöku
í málinu. Honum hafi verið sagt
að þetta tæki skjótt af, hann
væri eingöngu að fylla í skarðið
fyrir annan. „Ég áttaði mig ekki
á alvarleika og hversu umfangs-
mikið málið var,“ sagði Daði.
Hann hefði verið beðinn um
að geyma trjádrumba en honum
hefði ekki verið greint frá því að
eitthvað væri inni í þeim fyrr en
nokkrum dögum síðar. „Hann
talaði svona undir rós en ég gat
gert mér í hugarlund að hann
væri að ræða einhver ólögleg
efni,“ sagði Daði en hans hlut-
verk var að geyma trjádrumbana
í iðnaðarhúsnæði við Gjáhellu í
Hafnarfirði sem hann hafði tekið
sérstaklega á leigu vegna máls-
ins. Auk þess að hýsa timbrið
tók Daði efnin úr því, vigtaði og
pakkaði samkvæmt beiðni.
Jóhannes Páll Durr
1994
Sagði þátttöku sína afar veiga-
litla. Hann hefði verið blankur
og að það hefði ekki verið neitt
launungarmál. Aðili, sem hann
vildi þó ekki nafngreina, hefði
komið og boðið honum lítinn
þátt í verkefni fyrir fimm millj-
ónir króna, sem hann þáði.
Jóhannes sagðist ekki vita
hverjir stæðu að baki innflutn-
ingnum. „Ég gerði mér grein fyrir
að það væri eitthvað ólöglegt
en ég vildi vita sem allra minnst.
Mér leið ekki vel með mína þátt-
töku,“ sagði Jóhannes aðspurður
hvenær hann áttaði sig á því að
sendingin innihéldi fleira en
timbur.
Birgir Halldórsson
1995
Hefur áður hlotið dóm fyrir
fíkniefnalagabrot, fyrir um það
bil sex árum. Hann sagðist hafa
lofað sjálfum sér að koma ekki
að neinu ólögmætu. „Ég neitaði
með öllu að koma að þessu máli.
Ég hef engar upplýsingar um
hverjir koma að því og hvað átti
að flytja inn til landsins.“
Birgir sagðist þó hafa látið
tilleiðast þegar honum bauðst
greiðsla að upphæð fimm millj-
ónir króna. „Ég sé óendanlega
mikið eftir því að hafa látið draga
mig inn í þetta. Hlutur minn í
málinu er óverulegur,“ sagði Birgir
og bætti við að án hans hefðu
hlutirnir samt átt sér stað. Hann
hefði brugðist fjölskyldu sinni.
„Það ætti að vera bergreinilegt að
þeir sem sitja hérna inni eru ekki
höfuðpaurar í þessu máli,“ sagði
Birgir sem telur málið vanrann-
sakað og að lögreglan hafi málað
óraunverulega mynd af sér.
Tímalína málsins
2020 (október)
Páll pantar einingahús frá Brasilíu
að beiðni Birgis.
2019
Samskipti Birgis og Páls hófust en
þau snéru að leigu á húsnæði.
2021
Seinni gámurinn pantaður en
komu hans seinkaði talsvert
vegna kórónuveirufaraldursins.
2022 (febrúar)
n Fyrri gámur-
inn kom til
landsins
með ein-
ingahúsinu
sem Birgir
pantaði.
n Lögreglan
hafði fengið
vísbend-
ingar um
sendinguna
og möguleg
fíkniefni
innanborðs.
n Lögreglan leitaði í gámnum en
fann ekkert. Húsið í gámnum
var hins vegar aldrei sótt.
2022 (maí)
n Lögreglan
fékk vísbend-
ingar um að
annar gámur
væri á leið til
landsins og
voru hollensk
yfirvöld látin
vita.
n Lögreglan
hóf að hlera
síma þriggja
sakborninga
málsins, Páls
Birgis og Jó-
hannesar.
2022 (júlí)
n Gámurinn lenti í Hollandi þar
sem tollverðir í Rotterdam
fundu tæplega hundrað kíló
af kókaíni í timbrinu og var því
skipt út fyrir gerviefni áður en
gámurinn hélt af stað til Íslands.
n Daði skrifaði undir leigusamn-
ing á iðnaðarhúsnæðinu við
Gjáhellu í Hafnarfirði þar sem
trjádrumbarnir áttu að
fara í geymslu og
efnin sótt.
2022 (ágúst)
n Gámurinn kom til landsins 2.
ágúst en í honum var meðal
annars timbrið þar sem kóka-
ínið var falið.
n Þann 4. ágúst sótti Páll efnin í
gáminn og kom fyrir í bíl ásamt
félögum sínum. Hann keyrði
bílinn svo sjálfur að N1 í
Hafnarfirði þar sem Daði tók við
bílnum og keyrði að Gjáhellu.
n Daði fjarlægði efnin úr drumb-
unum, vigtaði og pakkaði.
n Fjórmenningarnir voru svo
handteknir um kvöldið og hafa
setið í gæsluvarðhaldi fram til
dagsins í dag.
2022 (nóvember)
Þingfesting
málsins í Héraðs-
dómi Reykjavíkur.
Mönnunum er
gefið að sök að
hafa flutt inn
tæp hundrað kíló
af kókaíni auk
peningaþvættis
að upphæð sam-
tals tæpar 63 milljónir króna.
Sakborningar ýmist neituðu sök
eða neituðu að taka afstöðu til
málsins.
2023 (janúar)
Aðalmeðferð málsins hófst 19.
janúar og fjölmiðlabann tók gildi.
Dómari tjáði fjölmiðlum að ekki
mætti fjalla um málið fyrr en
vitnaleiðslum væri lokið.
2023 (febrúar)
Framhald
aðalmeðferðar
átti að fara
fram 9. og 10.
febrúar. Henni
var frestað
vegna tafa hjá
hollenskum
yfirvöldum.
Tafirnar snéru
að framkvæmd skýrslutökunnar
yfir Hollendingunum. Þann 17.
febrúar fóru fram skýrslutökur í
málinu yfir lögreglumönnum og
sérfræðingum.
2023 (mars)
n Í gær, 6. mars, lauk vitna-
leiðslum í málinu í Héraðs-
dómi Reykjavíkur og þar með
lauk margra vikna fjölmiðla-
banni.
n Næstkomandi miðvikudag
fer fram munnlegur málflutn-
ingur ákæruvalds og verjenda
í málinu. Vænta má dómsupp-
kvaðningar að fjórum vikum
liðnum.
Vitnaleiðslum í stærsta kóka-
ínmáli Íslandssögunnar lauk
í gær og um leið fjölmiðla-
banni. Sakborningarnir fjórir
játa aðild að málinu en segjast
hafa gegnt litlu hlutverki. Þeir
séu ekki höfuðpaurar og viti
ekki hverjir skipulögðu það.
helenaros@frettabladid.is
dómsmál Sakborningarnir fjórir í
stærsta kókaínmáli Íslandssögunn-
ar játa allir aðild að málinu en þeir
telja sig þó aðeins vera peð í stóra
samhenginu. Hlutverk þeirra sé
óverulegt og að þeir hafi ekki staðið
að skipulagningu innflutningsins.
„Mér finnst þetta mál hafa verið
vanrannsakað og að enginn mikil-
vægur maður sitji hér inni í réttar-
sal,“ sagði Birgir Halldórsson, einn
sakborninga málsins, meðal ann-
ars við skýrslutöku í Héraðsdómi
Reykjavíkur í janúar síðastliðnum
þegar aðalmeðferð málsins hófst.
„Menn geta svo sem gert lítið úr
sínu hlutverki ef þeir vilja en send-
ingin er 98 kíló. Þeir virðast vera
meðvitaðir um það að þetta sé stór
sending,“ sagði lögreglumaður fyrir
dómi.
Dómari setti fjölmiðlabann á
fréttaf lutning úr dómsal þar til
vitnaleiðslum í málinu lyki og því
ekki hefur mátt fjalla um málið
fyrr en nú. Vitnaleiðslum lauk í gær
þegar hollensk yfirvöld gáfu skýrslu
í gegnum fjarskiptabúnað. Menn-
irnir fjórir hafa setið í gæsluvarð-
haldi í tæpa átta mánuði, allt frá því
að þeir voru handteknir að kvöldi til
þann 4. ágúst í fyrra.
Fjórmenningunum er gefið að sök
að hafa staðið að innflutningi á um
hundrað kílóum af kókaíni frá Bras-
ilíu auk peningaþvættis upp á sam-
tals tæpar 63 milljónir króna. Lög-
reglan lýsti því fyrir dómi hvernig
skoðun á gögnum í saltdreifara-
málinu svokallaða, einu stærsta
fíkniefnamáli sinnar tegundar hér
á landi, hefði orðið til þess að þeir
komust á snoðir um þetta mál.
Lögreglan telur innflutninginn
þaulskipulagðan og að hver og einn
ákærðu hafi haft ákveðið hlutverk.
Samkvæmt lögreglu virðist hlut-
verkaskipting sakborninga málsins
hafa verið á þá leið að Páll hafi séð
um að koma gámnum og timbrinu
til landsins frá Brasilíu, Jóhannes
hafi haft það hlutverk að tala við
Pál og koma framvindu mála áleiðis
til Birgis. Birgir hafi svo átt að til-
kynna þær upplýsingar til Nonna
á samskiptaforritinu Signal, ekki er
vitað hver sá aðili er, og Jóhannesar.
Nonni gaf svo Daða fyrirmæli. Ljóst
er að ýmsum spurningum málsins
er enn ósvarað og þar á meðal hver
téður Nonni er.
Munnlegur málflutningur ákæru-
valds og verjanda fer fram á mið-
vikudaginn næstkomandi. Dóms-
uppkvaðningar í málinu er svo að
vænta innan fjögurra vikna frá
þeim degi. Verði mennirnir dæmdir
sekir eiga þeir yfir höfði sér þunga
dóma. n
Ekki höfuðpaurar,
aðeins peð sem
létu tilleiðast
Fjórmenningarnir við upphaf aðalmeðferðar málsins í janúar. FréttaBlaðið/anton Brink
stóra kókaínmálið 2022 |
Mér finnst þetta mál
hafa verið vanrann-
sakað og að enginn
mikilvægur maður sitji
hér inni í réttarsal.
Birgir Halldórsson,
einn sakborninga málsins
8 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 7. mARs 2023
ÞriÐJUDAGUr