Fréttablaðið - 07.03.2023, Blaðsíða 20
Íslenski atvinnu- og lands-
liðsmaðurinn í knattspyrnu
Alfreð Finnbogason hefur
fundið gleðina á ný í leiknum
fagra. Alfreð var hetja Lyngby
á dögunum og horfir nú fram
á að geta hjálpað íslenska
landsliðinu í sinni baráttu.
Fótbolti Alfreð skoraði sigurmark
liðsins í leik gegn Bröndby á dög-
unum. Að hans sögn var geggjað að
sjá boltann í netinu. Á sama tíma
var um að ræða fyrsta heimasigur
Lyngby á tímabilinu og stemningin
eftir því í leikslok.
„Eins klikkað og það er þá var
þetta jú okkar fyrsti heimasigur.
Fyrst þurftum við að bíða lengi
eftir því að vinna fyrsta sigurinn í
deildinni, sem kom í 15. umferð og
svo náðum við inn fyrsta heima-
sigrinum núna. Þetta er náttúrlega
alveg gjörsamlega galin staða en
við fögnuðum þessum sigri eins og
menn í gær.“
Fá góðan stuðning
Það skipti þó máli að fagna ekki um
of. Lyngby situr enn á botni dönsku
úrvalsdeildarinnar, nokkuð langt
frá öruggu sæti. Sigurinn geti þó
fært liðinu trú í framhaldinu.
„Staðan hefur verið erfið, hún er
enn mjög erfið. Venjulegt fólk hefur
enga trú á því að við getum haldið
sæti okkar í deildinni en það sem
skiptir mestu máli fyrir okkur er sú
trú sem stuðningsmenn félagsins
hafa á okkur.“
Því þrátt fyrir að gengi Lyngby
hafi verið brösótt á tímabilinu var
uppselt á leikinn gegn Bröndby, um
tíu þúsund manns mættu á leikinn.
„Stuðningsmennirnir styðja við
bakið á okkur í blíðu og stríðu og
mér finnst mjög góður bragur yfir
liðinu núna eftir áramót. Það er
stígandi í þessu núna og hlutirnir
á leið í rétta átt. Lyngby-stuðnings-
mennirnir eru náttúrulega þekktir
fyrir það að vera mjög stoltir af sínu
liði og fara ekkert í felur þegar að
illa gengur. Vanalega hafa verið að
mæta um fimm þúsund manns á
leiki hjá okkur en það mættu tíu
þúsund á leikinn gegn Bröndby.
Það voru öll í kringum félagið stað-
ráðin í að gera þetta að leik ársins
sem hann svo sannarlega varð. Það
var geggjuð stemning á vellinum og
gaman að við gátum gefið stuðn-
ingsmönnum þennan langþráða
heimasigur.“
Fann gleðina á nýjan leik
Alfreð gekk til liðs við Lyngby á
síðasta ári og skrifaði undir eins árs
samning.
Hvernig hefur verið að aðlagast
lífinu í Danmörku?
„Bara mjög vel, það er mjög auð-
velt finnst mér að aðlagast lífinu í
Skandinavíu. Þetta er mjög líkt líf-
inu á Íslandi og það er náttúrulega
mikið af Íslendingum hérna sem og
í Kaupmannahöfn. Við fjölskyldan
höfum ekki yfir neinu að kvarta.
Hvað félagið varðar þá var ég nátt-
úrulega að æfa með Lyngby í júní í
fyrra og skrifa svo undir samning
hér í ágúst sama ár. Þetta voru því
mjög þægilegir tímar, ég þekkti nú
þegar alla hjá félaginu með nafni
þegar að ég loksins krotaði undir
samninginn. Það var ekkert sérstakt
markmið hjá mér að vinna mér inn
samning hérna en hlutirnir þróuð-
ust bara þannig og ég er ánægður
með þá þróun. Fyrst og fremst kom
ég hingað til þess að njóta þess að
spila fótbolta og hjálpa liðinu eftir
erfiða tíma hjá mér áður þar sem
gleðin var aðeins farin hjá mér. “
Þannig að gleðin er komin til baka
hjá Alfreð Finnbogasyni?
„Já, það mætti segja það. Það tekur
alltaf tíma að koma sér aftur í gang
og í þann mund sem ég var að koma
mér aftur í gang hér hjá Lyngby fyrir
áramót lenti ég í því að viðbeins-
Hefur fundið gleðina þrátt fyrir krefjandi tíma
Freyr Alexand-
ersson er þjálfari
Lyngby og að
sögn Alfreðs
hefur honum
tekist vel til á
krefjandi tímum.
fréttablaðið/
getty
Alfreð Finnbogason reynir að gera sitt til þess að hjálpa Íslendingaliðinu Lyngby í sinni baráttu á fallsvæði dönsku úrvalsdeildarinnar. fréttablaðið/getty
brotna. Ég varð klár á nýjan leik í
janúar og setti mér háleit markmið
fyrir seinni hluta tímabilsins og er
mjög ánægður hvernig þetta hefur
farið af stað. Á sama tíma er þetta
bara byrjunin og margir leikir fram
undan. Ég er mjög ánægður með það
hvernig þetta hefur gengið, bæði hjá
liðinu og mér persónulega.“
Að ná tökum á dönskunni
Alfreð hefur spilað hjá félagsliðum
víða um Evrópu og er umtalað
hversu vel honum hefur tekist að
læra þau tungumál sem eru ríkjandi
í þeim löndum sem hann hefur
spilað í.
Hefurðu náð tökum á dönskunni?
„Já, ég myndi segja að ég sé far-
inn að skilja allt það sem fer fram
á æfingum sem og þegar liðsfélag-
arnir eru að tala saman í klefanum.
Þetta er kannski það land sem er
minnsta þörfin á því að maður byrji
að læra að tala tungumálið þar sem
danska þjóðin talar á heildina litið
mjög góða ensku. Svo þegar maður
reynir að tala dönsku fær maður
oftast svar á ensku. Þetta hefur
dregist á langinn hjá mér en maður
er að leggja sig fram, vonandi verður
þetta komið fyrir sumarið.“
Stressar sig ekki á framhaldinu
Talandi um sumarið. Samningur
þinn við Lyngby rennur út í sumar.
Ertu eitthvað farinn að hugsa út í
það hvað tekur við á ferlinum?
„Ég tók bara ákvörðun um það
snemma í janúar að ég ætlaði ekk-
ert að pæla í þessu hlutum fyrr en
undir lok tímabilsins. Ég var í sömu
stöðu í fyrra og fann þá hversu
mikla orku það tekur af manni að
vera spá í þetta á hverjum degi í
hverri viku. Svo er óhjákvæmilegt
að fá þessa spurningu en í raun er
þetta eitthvað sem mun bara skýr-
ast almennilega í maí eða júní. Nú
ætla ég bara njóta þess að vera inni
á vellinum og gera mitt til þess að
hjálpa félaginu í sinni baráttu.“
Geta framkvæmt kraftaverk
Lyngby er sem stendur í neðsta sæti
dönsku úrvalsdeildarinnar.
Býr kraftur í liðinu til þess að gera
atlögu að því að halda sætinu í efstu
deild?
„Ekki spurning. Það er langtíma-
markmið okkar en gerist náttúru-
lega bara þegar að við erum að
vinna leiki. Þetta verður mjög erfitt,
það er enn þá langt í það svæði þar
sem við erum öruggir. Við þurfum
bara að setja svipaða vinnu og kraft
í leikina fram undan líkt og við
gerðum í síðasta leik.“
Fagmaðurinn Freyr
Freyr Alexandersson er þjálfari
Lyngby og kom félaginu upp í
úrvalsdeild á síðasta tímabili. Hann
hefur verið að ganga í gegnum meira
krefjandi tíma núna en Alfreð er
ánægður með þjálfarann sinn.
„Þetta hefur ábyggilega verið
mjög krefjandi tími fyrir Frey ef við
berum þetta saman við síðasta ár.
Svona gengi, þar sem að liðinu var
í upphafi tímabils bara fyrirmunað
að vinna leiki, hefur náttúrulega
mikil áhrif á andlegu hliðina, hjá
leikmönnum og Frey sjálfum. Það
hefur verið mjög gaman að sjá
hvernig Freyr hefur tæklað þessar
aðstæður. Hann hefur verið í þessum
bransa lengi, er mikill fagmaður og
þá hefur verið sérstaklega gaman að
sjá hvernig samskipti hann á við ein-
staka leikmenn. Ég hugsa að margir
þjálfarar væru búnir að missa vitið
við svona aðstæður en Freyr hefur
aldrei misst stjórn á þessari skútu.“
Vill í landsliðið
Það er óhjákvæmilegt að spyrja
Alfreð út í íslenska landsliðsins og
landsliðsferil hans. Fram undan eru
fyrstu leikir liðsins í undankeppni
EM, keppni sem Alfreð vill vera hluti
af.
„Vandamálið síðustu ár varðandi
landsliðið hefur verið mín meiðsla-
saga, ég hef ekki verið heill heilsu
fyrir landsliðsverkefnin. Ég sneri
aftur í landsliðið í september á síð-
asta ári, það var gríðarlega gaman
þó svo að það væri eins og ég væri að
koma inn í nýtt lið. Það voru margir
nýir leikmenn og margt sem hafði
breyst frá því síðast. Það eru bara
virkilega spennandi tímar fram
undan hjá landsliðinu, auðvitað
er mikill munur á yngstu og elstu
leikmönnum en ég held að þetta
sé blanda sem geti orðið til þess að
góðir hlutir gerist. Ég er mjög spennt-
ur fyrir næstu landsleikjum sem og
landsleikjaárinu fram undan.“
Forsendur séu til staðar að
íslenska landsliðið geti gert góða
hluti.
„Það eru möguleikar í stöðunni.
Það eru bara tíu leikir í þessari
undankeppni og þetta mun ráðast
á smáatriðum, eitt mark til eða frá
í mikilvægum leikjum getur orðið
rosalega dýrt á endanum. Þess vegna
er þessi fyrsti leikur í keppninni
gríðarlega mikilvægur, án þess þó
að ég sé að ýkja það eitthvað rosa-
lega mikið. Grunnurinn er sá sami
og alltaf. Við verðum að vinna okkar
heimaleiki, fá sem flest stig þar og
reyna að kroppa í sem flest stig á
útivelli.“ n
Aron
Guðmundsson
aron
@frettabladid.is
16 íþróttir FRÉTTABLAÐIÐ 7. mARs 2023
þriÐJUDAGUr