Leikhúsmál - 01.06.1998, Side 12

Leikhúsmál - 01.06.1998, Side 12
LEIKHÚSMÁL Um nýtt launakerfi og punktakerfi í Þjóðleikhúsinu Erfiðasti og tímafrekasti þáttur í samn- ingavinnu leikara við Þjóðleikhúsið hingað til hefur oft og tíðum verið sú vinna sem leggja hefur þurft í að útskýra fyrir nýjum og nýjum fulltrúum fjármála- ráðuneytisins, á hverjum tíma, í hverju starf leikarans er fólgið og og hver ábyrgð þeirra sem standa á sviði er, oftast fyrir daufum eyrum. Það hljómaði því ekki svo illa þegar samn- inganefnd ríksisins kynnti nýtt launakerfi fýrir Leikarafélagi Islands í apríl á síðasta ári, þar sem öll útfærsla og dagleg framkvæmd kjarasamninga með hliðsjón af starfi og sér- stöðu skyldi færð inn í þær ríkisstofnanir sem hlut eiga að máli hverju sinni. Taka átti upp nýja og einfaldari launatöflu og henda þeirri gömlu með öllu sem henni fylgdi. Markmiðið með þessu nýja launakerfi, eins og það var kynnt, er þríþætt: í fýrsta lagi að gera það sveigjanlegra með því að færa ákveðið sjálfsforræði frá ríkisvaldinu og til viðkomandi vinnuveitenda; í öðru lagi gagn- scerra með því að fella yfirborganir og til- tekna óunna yfirvinnu, sem margir ríkis- starfsmenn höfðu samið um, einskonar huldulaun, inn í grunntaxtann. Og í þriðja lagi einfaldara með því að fækka launaþrep- um sem miða við lífaldur úr 8 niður í 6, og með því að afnema allar sjálfkrafa starfsald- urshækkanir á starfsævinni. Þannig voru þær almennu Iaunahækkanir sem þetta kerfi felur í sér (16,78% á samningstímanum) hugsaðar til þess að dekka yfirvinnugreiðsl- ur og ýmsar sjálfkrafa hækkanir sem starfs- menn urðu af, en ekki sem beinar launa- hækkanir nema að litlu leyti. Það má orða það þannig að með þessum tillögum sínum í heild hafi ríkisvaldið í raun verið að viðurkenna að opinberir starfs- menn hafi ekki getað fylgt þeim hræringum sem orðið hafa á almennum vinnumarkaði, vegna ósveigjanlegra og niðurnjörvaðra kjarasamninga. Þó markmiðið hljómaði vel var að vísu illmögulegt að sjá fyrir hvað þetta þýddi í raun og veru og hvort, þegar til lengri tíma yrði litið, væri um raunveruleg- an ábata að ræða eða bara dulbúna launa- lækkun, þar sem starfsaldurshækkanir vega þungt þegar líður á starfsævina og því mögulegt að heildarlaun yrðu lægri en ella þegar upp væri staðið. Það kom fljótlega í ljós að margt í þessu nýja kerfi var á huldu og erfitt að fá skýr svör, enda virtust þau í sumum tilfellum alls ekki vera til. Reynslan ein gæti skorið úr um hver hinn raunverulegi ábati yrði, til lengri tíma litið. Samninganefndin - sem upphaflega hafði verið skipuð undirritaðri, Lilju Guðrúnu Þorvaldsdóttur og Gunnari Eyjólfssyni, naut ekki krafta Gunnars lengur en fékk í hans stað til liðs við sig formann FlL, Eddu Þórar- insdóttur - settist nú niður og reiknaði og reiknaði og komst svo sem ekki langt. „Stofnanaþáttur“ samningsins var óskrifað blað og þó félagið samþykkti launakerfið sem slíkt var aðalvinnan eftir, eða það að semja við Þjóðleikhúsið um innröðun í nýja launatöflu og „alla útfærslu samningsins, með hliðsjón af eðli starfa“. Það verður því að viðurkennast að þegar samninganefndin, í samráði við stjórn félagsins, ákvað að fylgja fordæmi ýmissa félaga innan BHMR og SFR og ganga til samninga, hafði hún svo sem ekki mikið annað í höndunum en yfirlýs- ingu þjóðleikhússtjóra um samningsvilja og skilning á slæmum launakjörum leikara, - svo og þá sjálfsögðu yfirlýstu stefnu ríkisins að enginn lækkaði í launum við kerfisbreyt- inguna eina og sér. Öllum tilraunum til að fá bókanir samþykktar við undirritun var vís- að frá, og því ekki annað að gera en treysta á samningsvilja og sveigjanleika yfirstjórnar Þjóðleikhússsins þegar þar að kæmi. Leikarafélag Islands, eins og mörg önnur stéttarfélög á sama tíma og í sömu aðstöðu, varð í raun að treysta á að milliliðalausar viðræður væru vænlegri til árangurs og ákveðinn lykill að betri samningsstöðu en viðræður við fulltrúa fjármálaráðuneytisins höfðu verið áður. „Aðlögunarnefnd" var síðan skipuð í október sl. og átti að ljúka störfum fyrir 1. des. I nefhdinni sátu tveir fulltrúar leikara, undirrituð og Randver Þorláksson, og tveir fulltrúar yfirstjórnar Þjóðleikhússins, Stefán Baldursson og Guðrún Guðmundsdóttir. Nefndin átti að vinna stofnanaþátt samn- ingsins og koma sér saman um forsendur fýrir innröðun leikara inn í hina nýju launa- töflu. Vinnan gekk reyndar ekki þrautalaust. I fyrsta lagi varð nefndin að koma sér saman um hvað henni bæri að gera, hvort kjaravið- ræðum væri lokið og nefndin ætti ekki að gera annað en að raða (,,varpa“) leikurum beint inn í launatöfluna, eða hvort henni bæri að sjá fyrir og tryggja tilfærslur. Þetta var mjög mikilvægt atriði þar sem sjálfkrafa starfsaldurshækkanir í gamla launakerfinu voru 8 á starfsævi leikarans og færðu við- komandi upp um samtals 9 launaflokka. Það var eindreginn skilningur okkar leikaranna í nefndinni að þar sem „enginn ætti að lækka í launum“ væri nauðsynlegt að finna eitt- hvert kerfi sem tryggði kjör leikara þegar til allrar starfsævinnar væri litið. Þegar gagnkvæmur skilningur á þessu at- riði lá fyrir var næsta skref að leita leiða. Rík- ið, sem þegar til kom var með talsvert eftirlit með störfum aðlögunarnefndanna yfirleitt, neitaði alfarið að taka aftur upp kerfi þar sem starfsaldur hefði sjálfkrafa áhrif til launaflokkahækkana, en benti á að ýmis- konar námskeið, sem kæmu til með að auka hæfni starfsmanna, gætu leitt til launa- flokkahækkana, - en sérstök námskeið fyrir leikara eru fátíð og ekki líkleg til þess að skila markvissri launahækkun. Frá yfirstjórn hússins kom hins vegar fram tillaga um að taka upp sérstakt „punktakerfi" þar sem starfið sjálft skilaði punktum. Þetta hljómaði vel, enda má með fúllum rétti halda því fram að hvert hlutverk sem leikari tekst á við verði til að þroska hann og bæta sem listamann og þannig á við starfs- nám eða námskeið í faginu. Hugmyndin var síðan útfærð, prófuð og þróuð og að lokum skilað til menntamála- ráðuneytisins í formi samþykktar. Punktakerfið byggist á því að fyrir hvert hlutverk eða hverja sýningu sem leikari tekur þátt í hjá Þjóðleikhúsinu fær hann einn punkt, sérstaklega stór hlutverk gefa þrjá punkta, og eftir hverja níu punkta færist hann upp um launaflokk, þar til ákveðnu hámarki er náð. Um mat á reynslu úr viðurkenndum atvinnuleikhúsum hefúr þjóðleikhússtjóri síðasta orðið, en leikari getur þó vísað máli sínu til samstarfsnefndar. Reynsla úr kvik- myndum og sjónvarpi og hjá atvinnuleik- hópum gefur einn punkt, en aðeins ef um stór hlutverk eða aðalhlutverk er að ræða. Kerfið er afturvirkt þannig að samanlagður punktafjöldi frá útskrift gildir við innröðun í nýja töflu. Það er auðvitað ljóst að þetta kerfi felur í sér mismunun eins og leikarastarfið yfirleitt. Það er ekki leikarinn sem ákveður hvort hann fær hlutverk eða hversu stór þau eru. Framhald á bls. 31 12

x

Leikhúsmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1744

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.