Leikhúsmál - 01.06.1998, Qupperneq 31
LEIKHÚSMÁL
Innrás í Finnland
Samstarf íslenskra og finnskra leikhúsmanna hefnr
löngum verið heilladrjúgt. Margir finnskir leikhús-
listamenn hafa komið hingað með athyglisverðar
sýningar og í Finnlandi hefur verið tekið vel á móti fjöl-
mörgum íslenskum leiksýningum. Það teljast þó tíðindi að
íslenskur leikari skuli ráðinn á finnskan leikarasamning.
Sigurður Karlsson verður næsta vetur í leyfi frá Leikfélagi
Reykjavíkur og ræðst til starfa hjá Vaasa-leikhúsinu í sam-
nefndri borg, þar sem hann hefur raunar leikið tvö hlut-
verk í vetur. Eitt verkefna hans á næsta leikári er í þokkabót
Sigurður Karlsson
íslenskt. Sigurður mun leika eina burðarrulluna í Meistar-
anum eftir Hrafnhildi Guðmundsdóttur Hagalín, sem sló eftirminnilega í gegn hjá Leikfélagi
Reykjavíkur fyrir fimm árum. Leikstjóri sýningarinnar verður enginn annar en Ásdís Skúla-
dóttir (fjölskyldan er að meika það).
Það er ennfremur líklegt að Hilmar Jónsson, leiðtogi Hafnaríjarðarleikhúss, setji næsta
vetur upp verk Árna Ibsen, Himnaríki, sem sló í gegn í Firðinum í hitteðfyrra.
Sú sýningin á að koma upp í sænska leikhúsinu í Ábo.
Internetið og leikhúsið
Framhald afbls. 10
í upphafi verður um einfalda upplýsinga-
síðu að ræða. Þegar fram í sækir má síðan
bæta við fundargerðum, greinum sem birta
á í Leikhúsmálum, auglýsingar um fundi á
vegum félagsins og sýningar á vegum félags-
manna, svo fátt eitt sé nefht. Eins má sjá fyr-
ir sér skoðanaskipti félagsmanna um ýmis
málefni.
Að mínu mati er ef til vill stærsti kostur-
inn við samning FtL og Skímu hf. stærð
heimasvæðisins. Það gerir félaginu kleift að
setja inn á netið upplýsingar um félags-
menn, ekki ósvipað myndabókinni góðu.
Ólíkt bókarforminu þá verður vefútgáfan
aðgengileg leikstjórum og framleiðendum
út um allan heim. Hér er kannski kominn
vísir að íslenskri umboðsskrifstofu sem er
opin allan ársins hring!
Hvað þarftil að tengjast?
Til að tengjast Internetinu þarf ekki endilega
stærstu og flottustu tölvuna á markaðnum.
Flestar heimilistölvur geta tengst svo fram-
arlega sem mótald er fyrir hendi. Mótald er
símtæki sem tölvan getur stýrt og tengist
hefðbundnum símalínum. Þegar tengst er
netinu er símalínan upptekin rétt eins og
um hefðbundið símtal sé að ræða. Vissulega
er hægt að fá sér aukalínu, eða jafnvel staf-
ræna ISDN-tengingu sem gefur meiri hraða.
En hér er um aukakostnað að ræða sem ekki
er nauðsynlegur svona í fyrstu atrennu.
Ef þú hefur ekki þegar aðgang hjá þjón-
ustuaðila þá bíður Skíma félagsmönnum
FÍL aðgang á tilboðsverði. Verðið er 1190 kr.
á mánuði og nýir notendur fá geisladisk sem
meðal annars inniheldur vefskóla fyrir byrj-
endur. Skíma er staðsett í Brautarholti 1,
sími 511-7000. Og ef þú, lesandi góður, vilt
skoða Internetið án þess að leggja út í stofn-
kostnaðinn þá er ekkert einfaldara en að
skreppa í næsta útibú Borgarbókasafnsins
eða kíkja inn hjá netkaffihúsinu X-net, Nóa-
túni 17. Þeir hjá X-neti bjóða ennfremur
upp á stutt námskeið fyrir byrjendur jafnt
sem lengra komna.
Svona í lokin þá vil ég minna á heimasíðu
FÍL. Veffang hennar er http://www.actors-
union.is. Fyrir þá sem vilja leita aðeins
lengra þá rakst ég á fjári góða síðu um dag-
inn sem heitir Scott's Theatre Link
(http://www.theatre-link.com). Þar er að
finna allskyns upplýsingar um leikhús í
heiminum og tengla á aðrar síður. Góða
skemmtun.
Vilhjálmur Hjálmarsson
Leikari (og tölvubóndi!)
webmaster@actors-union.is
vh@centrum.is
Um nýtt launakerfi...
Framhald afbls. 12
Þó má segja að kerfið feli í sér það réttlæti að
fyrir þá sem vinna mikið skilar það fyrr
launahækkunum. Annað mál og öllu alvar-
legra er sú kynjamismunun sem kerfið
býður upp á, þar sem karlhlutverk eru yfir-
leitt fleiri eins og allir vita.
Endanlegar niðurstöður um kjarabætur í
einstöku tilfellum ættu að liggja fyrir mjög
fljótlega, ef allt gengur upp. Þó eru enn
nokkrir lausir endar sem verið er að vinna í,
svo sem punktar í barnsburðarleyfi og orða-
lagsbreytingar og leiðréttingar á texta samn-
ingsins. Það má þó sjá útkomuna nokkuð
ljóst fyrir: Mestar kjarabætur fá þeir yngstu
og nema þær í sumum tilfellum allt að 50%
hækkun launa á samningstímanum. Það lít-
ur ef til vill út fýrir að vera mikið við fýrstu
sýn, en þýðir í raun að lægstu laun rétt lafa í
100 þúsund krónum um aldamót.
Að meðaltali er heildarhækkun grunn-
launa 24%, og má segja að Þjóðleikhúsið
hafi komið verulega til móts við leikara
hússins með því að taka á sig 8% hækkun
launa, umfram það sem kjarasamningur
segir til um, vegna tilkomu samkomulagsins
um punktakerfi. Þar sem sýningarkaupið
hækkar líka eru heildarkjarabætur fýrir leik-
ara í starfi að meðaltali 28%. Hitt er stað-
reynd að þeir sem mesta starfsreynslu hafa
hækka minnst, eða aðeins um hinar um-
sömdu grunnkaupshækkanir sem kerfið
býður upp á, vegna þess að áherslan var á
lægstu launin og þak sett á launaflokka-
hækkanir.
Það er auðvitað öllum ljóst að grunnlaun
sem hljóða upp á 100 til 150 þúsund krónur
á mánuðu eru hvorki til þess fallin að auka
sjálfsvirðingu leikarans né virðingu hans úti
í samfélaginu, en mjakast þó að hægt fari.
Tinna Gunnlaugsdóttir
Formaður Leikarafélags íslands
(1. deild leikara við Þjóðleikhúsið)
Frumvarp að nýjum leiklistarlögum var lagt
fram á Alþingi fyrir jól. Ekki er beinlínis hægt
að segja að listageirinn hafi séð Ijósið í þeim
plöggum. Leikhúsfólk tók sig til og tætti þetta
frumvarp í sig af grimmd. Sama gerði raunar
Bandalag íslenskra listamanna.
( frumvarpinu stendur varla steinn yfir
steini, ef dæma má álitsgerðir listamanna-
samtakanna. Spurningin er: Hver samdi þetta
frumvarp og fyrir hvern?
31