Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Blaðsíða 70
(töflur 6-12). Að þunga til var veiðin
einnig mest á Vesturlandi um 50 tonn en
næst mest á Norðurlandi vestra um 28
tonn.
Flestir laxar veiddust í Þverá og Kjarrá
2.314 en næst flestir í Laxá í Aðaldal
2.295 og í þriðja sæti var Hofsá í
Vopnafirði með 2.238 veidda laxa. Röð
10 efstu laxveiðiánna er sýnd í töflu 3.
í veiðiskýrslur voru í heild skráðir
38.334 silungar. Samkvæmt veiðiskýrsl-
um veiddust flestir silungar á Norðurlandi
eystra (töflur 6-12) og á það bæði við um
bleikju og urriða. Alls voru skráðir 17.054
urriðar og 21.280 bleikjur. Af einstökum
ám veiddust flestir urriðar á silungasvæði
Laxár á Ásum 3.911 (tafla 4) og flestar
bleikjur í Eyjaljarðará 3.095 (tafla 5).
Af stangveiddum löxum voru 30.676
(73%) sem verið höfðu eitt ár í sjó en
11.633 (27%) tvö ár eða lengur (tafla 13).
í stangveiði voru 2,6 smálaxar á móti
hverjum einum stórlaxi, í netaveiði voru
þeir 2,2 og 5,7 í hafbeit. (tafla 14).
Veiðiálag af völdum stangveiði hefur
verið metið í Elliðaánum og verið frá 34 -
47%, en um 41% að meðaltali (Þórólfur
Antonsson og Sigurður Guðjónsson
1993). Líklegt er að stangveiðiálag í
íslenskum laxveiðiám sé á bilinu 30 - 80%
(Þór Guðjónsson 1986).
Nokkuð bar á eldis- og hafbeitarlaxi í
stangveiði í ám einkum við Faxaflóa.
Hlutdeild þeirra hefur þó minnkað frá
fýrra ári. Veiðin í þessum ám er nokkru
hærri en hún hefði verið ef eingöngu væri
um náttúrulega framleiðslu þessara áa að
ræða. (Friðjón Már Viðarsson og Sigurð-
ur Guðjónsson 1993). Þannig var fjöldi
veiddra laxa af náttúrulegum uppruna í
Elliðaánum 1.066 af þeim 1.393 sem
veiddust. Hlutfall laxa af eldisuppruna
var því 23% árið 1992 en var tæp 38%
1991. Líkt og gert hefur verið undan-
farin ár er gefín veiði valinna áa frá 1974
ásamt reiknuðu meðaltali, minnstu- og
mestu veiði tímabilsins (tafla 15).
Netaveiðin
Heildarlaxveiði í net í ám á Islandi
1992 var 12.062 laxar sem vógu 35,4
tonn. í net veiddust flestir laxar á Suður-
landi 6.572. í Ölfusá veiddust 2.435 laxar,
2.043 í Hvítá, 2.055 í Þjórsá og 39 í
Skaftá (Magnús Jóhannsson munnl.
uppl.). í Borgarfirði veiddust nú 155 laxar
í net á vatnasvæði Hvítár sem er mikil
minnkun á veiði frá fyrri árum, en þar er
nú annað árið í röð, einungis veitt í fá net,
(Sigurður Már Einarsson, munnl. uppl.).
Netaveiði í ám var einhver í öllum lands-
hlutum nema á Reykjanesi (tafla 1). I
netaveiði í sjó veiddust 4.797 laxar sem
vógu 13,1 tonn. Þeir veiddust allir í net
við Vesturland en lögleg sjávarveiði er
stunduð þar frá fímm jörðum. Laxveiði í
sjó var svipuð því sem var 1991.
Hafbeit
í hafbeit endurheimtust alls 140.763
laxar sem vógu 460,5 tonn. Flestir laxar
endurheimtust í hafbeitarstöðvar á Vestur-
landi og á Reykjanesi (tafla 1). Fjöldi
endurheimtra laxa í hafbeit 1992 var sá
mesti ffá upphafí. Árið 1990 var sleppt
5,6 milljónum gönguseiða og um 5,7
milljón gönguseiðum var sleppt 1991 til
hafbeitar, en sú slepping stendur að
stórum hluta undir endurheimtum 1992.
Á árinu 1992 mun um 4,6 milljónum seiða
hafa verið sleppt til hafbeitar (Stefán
Eiríkur Stefánsson 1993), en þau seiði
eiga að skila heimtum 1993.
UMRÆÐUR
Nýting laxveiði á Islandi hefur verið
með mjög líku sniði undanfarin ár og
segja má að veiðin endurspegli nokkuð
vel laxgengd í ámar. Sumarið 1992 var
68
VEIÐIMAÐURINN