Fréttablaðið - 14.03.2023, Síða 12

Fréttablaðið - 14.03.2023, Síða 12
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi, Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS Ef það er 10% verð- bólga en fjárfram- lög eru aukin um 5% er það alla jafna skerðing á fjárfram- lögum. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2023 á að koma út eftir 2 vikur, ef allt gengur tímanlega. Þar verður sennilega margt forvitnilegt að finna, en í ljósi sögunnar ættum við að geta spáð fyrir um ýmsa þætti áætlunarinnar. Til að mynda ætla ég að spá því að þar verði ríkisútgjöld aukin að einhverju leyti. Ráðherrar munu stæra sig af stórauknum framlögum, að aldrei hafi verið settur jafn mikill peningur í heilbrigðisþjón- ustu og menntakerfið og svo framvegis og framvegis. Samt sem áður verða þessar útgjaldaaukningar sennilega innihaldslausar. Í fyrsta lagi vegna þess að það er óvíst að þessi áætlun standist yfir höfuð vegna efnahagsástandsins, og í öðru lagi vegna þess að nema að aukningarnar haldi í við og fari umfram verðbólgu ársins í ár og þess næsta kemur allt út á núlli í besta falli eða í mínus í versta falli. Íslenska krónan verður verðlausari með hverju árinu sem líður og þá þarf hærri krónutölu til þess að kaupa sömu vörur og þjónustu. Síðasta þjóðhagsspá gerði ráð fyrir 1,8% hagvexti á árinu 2023 og 2,5% hagvexti árið 2024, en hann mældist nokkuð hærri árið á undan, 2022, eða 6,4%. Það mun hækka öll útgjöld ríkisins, sem er nokkuð undarlegt. Verðbólga átti að verða 5,6% á árinu og 3,5% á næsta, sem er ólíklegt að standist – í ljósi þess að verðbólga mælist nú 10,2%. Það mun auka ríkisútgjöld í krónum talið, sem er eðlilegt. En það þýðir ekki aukin útgjöld í verðmætum talið. Ef það er 10% verðbólga en fjárframlög eru aukin um 5% er það alla jafna skerðing á fjárframlögum – þegar litið er á stóru myndina, að minnsta kosti. Svo er tals- vert flóknara að meta hvar og hvernig fjárframlög rík- isins aukast eða hjaðna – því það eru ekki allir útgjalda- liðir háðir verðbólgu. Stór hluti er til að mynda háður launaþróun. Í því ljósi er vert að merkja að nú þegar hafa talsmenn verkalýðsfélaga lýst því yfir að forsendur þeirra kjarasamninga sem gerðir voru í desember 2022 séu í raun brostnar; að í rauninni sé um kjaraskerðingu að ræða í ljósi verðbólgunnar. Við sjáum hvað setur þegar fjármálaáætlun birtist – en þegar hún verður kynnt þurfum við að passa að leyfa yfirlýsingaglöðum ráðherrum að selja okkur hana ekki dýrar en þeir keyptu hana. Það eru allar líkur á að þeir hafi fengið hana á slikk. n Sel ekki dýrar en keypti Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata benediktboas@frettabladid.is gar@frettabladid.is Múlbundnir ríkisstarfsmenn Gary Lineker, þáttarstjórnandi á BBC, hefur gagnrýnt bresk stjórnvöld harðlega á samfélags- miðlum og neitað að biðjast afsökunar á að hafa líkt flótta- mannastefnu stjórnvalda við stefnu Þýskalands árið 1930. Hann var settur til hliðar fyrir og stýrði ekki vinsælasta fótbolta- þætti heims um helgina. Fannst mörgum það skrýtið enda England ekki Norður-Kórea eða Kína. Ekki er þó langt síðan Helgi Seljan, sem þá starfaði hjá RÚV, var skammaður fyrir sína notkun á samfélagsmiðlum. Starfsfólk RÚV er nefnilega líka múlbundið á samfélagsmiðlum. Svipleg örlög Katrín Jakobsdóttir hefur í fimm ár veitt ríkisstjórn Íslands forstöðu. Á þeim tíma hefur ýmislegt borið til tíðinda. Covid lék þjóðina og fjárhirslur ríkisins grátt og Rússar réðust inn í Úkraínu með tilheyrandi áhrif- um á efnahagskerfi heimsins. Þó hafa umsvif hér aukist ásamt því að vistvæn orkuframleiðsla hér innanlands fer aðallega til þungaiðnaðar. Af þeim sökum hefur innflutningur á mengandi olíu til landsins aldrei verið meiri. Sem eru svipleg örlög fyrir hinn græna framboðsflokk forsætisráðherrans. Og þrátt fyrir göfug markmið íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum virðist síst þokast í rétta átt í þeim efnum. n Kynntu þér dreifingu Fréttablaðsins Skannaðu kóðann í snjalltækinu þínu Nánari upplýsingar www.frettabladid.is/stodsidur/dreifing Í gær, 13. mars, voru fjörutíu ár liðin frá stofnfundi Kvennalistans. Fjórir áratugir virðast bæði stuttur og langur tími. Langur í ljósi þeirra miklu breytinga sem orðið hafa á samfélagi okkar – en stuttur þegar rætt er við þær konur sem að stofnun Kvenna- hreyfingar og Kvennalista komu, sem ég gerði við vinnslu greinar fyrir helgarblað Frétta- blaðsins. Eftir fjögurra áratuga baráttu vita þessar konur að henni er ekki lokið – en hún hefur breyst. Kvennalistakonur bentu á sínum tíma á hrópandi misrétti launa, erfiðar aðstæður kvenna á vinnumarkaði, fá leikskólapláss og ósýnileika kvenna í stjórnmálum. Þær höfðu sannarlega tölulegar staðreyndir máli sínu til stuðnings, en nú liggur munurinn meira í menningarbundnum þáttum sem geta verið duldari. Konur hafa fyrir margt löngu til jafns við karla fyllt störf á vinnumarkaði þó enn greinist óleið- réttur launamunur kynjanna rúm 10 prósent. Ein helsta skýring launamunar kynjanna er kynbundin skipting í störf en einnig eru karlar oftar í hæsta launastigi og vinna fleiri yfir- vinnustundir. Á meðan enn er munur á launum kynjanna reynist mörgum erfitt að nýta sér fæðingarorlof sem skipta skal jafnt á milli for- eldra, að fullu, enda laun skert á meðan á orlofi stendur. Eins getur einhleyp móðir sem á barns- föður á lífi ekki nýtt hlut föður þó að framlags hans njóti ekki við. Um fjörutíu prósent hjónabanda á Íslandi enda með skilnaði og eru sambúðarslit þá ekki talin með. Í meirihluta skilnaða færast lögheim- ili barna til móður og það er enn samþykktara að faðir sé vanvirkur eða fjarverandi í uppeldi barna sinna en móðir. Tilkynningum um ofbeldi í nánum sambönd- um fjölgaði um tæplega 13 prósent fyrstu sex mánuði liðins árs, samanborið við árin á undan. Í um 80 prósentum tilfella er árásaraðilinn karl og í tæplega 80 prósentum tilfella er brotaþolinn kona. MeToo-bylgjan hefur heldur betur varpað ljósi á meinsemd sem lengi hefur grasserað í skjóli þagnar, kynferðislega áreitni og ofbeldi þar sem konur eru oftar en ekki þolendur. Svo er það álagið á heimilinu, þriðja vaktin: yfirsýn og ábyrgð á skipulagi fjölskyldulífsins, ósýnilegu verkefnin sem ansi víða eru enn á herðum kvenna, sem auka á streitu enda varla að ástæðulausu að meirihluti þeirra sem leita til starfsendurhæfingarsjóðsins VIRK séu konur. Meirihluti þeirra sem útskrifast úr háskóla eru konur. Það er að mörgu leyti dæmi um frá- bæran árangur baráttu undanfarinna ára – en það er bara ekki nóg. n Ekki komið nóg Meirihluti þeirra sem útskrifast úr háskóla eru konur. Það er að mörgu leyti dæmi um frábær- an árangur baráttu undan- farinna ára – en það er bara ekki nóg. 12 SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 14. MARS 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.