Fréttablaðið - 14.03.2023, Side 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Aþena Þölll er alin upp í Hafnarfirði og lærir nú bakstur hjá Gulla bakara sem getið hefur sér gott orð fyrir gómsætar kökur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kokkalandsliðið með Aþenu sem aðstoðarmann stóð sig vel í Lúxemborg í
desember og náði sjötta sætinu.
Boltastelpa sem
ætlaði sér alla
leið í knatt-
spyrnu.
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Aþena Þöll er aldamótabarn, fædd
árið 2000. Hún byrjaði ung að spila
fótbolta með FH og lék með liðinu
til sextán ára aldurs þegar hún
færði sig yfir til Hauka en síðan
lá leiðin á Álftanesið. Í stað þess
að fara alla leið í íslenska kvenna-
landsliðið helgaði hún kokkalands-
liðinu krafta sína sem aðstoðar-
maður. Hún hefur aðstoðað
landsliðið á nokkrum mótum, nú
síðast á heimsmeistaramótinu í
matreiðslu í Lúxemborg í desember
þar sem liðið hafnaði í sjötta sæti.
Hún stefnir á að fylgja landsliðinu
alla leið á Ólympíuleikana í Stutt-
gart sem haldnir verða í febrúar
2024 og er undirbúningur þegar
hafinn. Aþena Þöll er yngsti með-
limur landsliðsins.
Ætlaði í arkitektúr
Það var fyrir einskæra tilviljun að
Aþena hóf nám í matreiðslu. Hún
var nemandi í Tækniskólanum og
hugðist stefna á nám í innanhúss-
arkitektúr. Meðfram náminu réð
hún sig til starfa hjá veitingahúsinu
Fiskfélaginu. Þar uppgötvaði hún
kokkaheiminn og féll gjörsamlega
fyrir honum. „Það var allt skemmti-
legt við þetta starf,“ segir hún. „Mig
langaði rosalega mikið að verða
einn af kokkunum í eldhúsinu og
elda mat. Það hafði ekki verið plan
hjá mér áður,“ segir hún.
Aþena komst fljótt á samning hjá
Fiskfélaginu og hefur klárað námið
með glæsibrag. „Mig hefur lengi
langað til að læra að verða bakari
og var alltaf að baka kökur þegar ég
var yngri á milli þess sem ég spilaði
fótbolta. Þetta tvennt átti hug minn
allan. Ég lauk matreiðslunáminu
síðastliðið vor en ákvað fyrir stuttu
að slá til og láta gamla bakara-
drauminn rætast,“ segir hún en
Aþena fékk samning hjá Gunnlaugi
Arnari Ingasyni bakara sem rekur
bakaríið Hjá Gulla í Hafnarfirði.
Aþena Þöll er Hafnfirðingur og af
mikilli Gaflarafjölskyldu en afi
hennar er Þórarinn Jón Magnússon,
fyrrverandi ritstjóri og eigandi
Samútgáfunnar.
Þurfti að velja á milli
Aþena þurfti að velja á milli fótbolt-
ans og kokkastarfsins því það fór
ekki vel saman. „Það er mikil kvöld-
og helgarvinna á veitingahúsum
sem er sami tími og í boltanum.
Mig langar samt mikið að halda
áfram í boltanum og vona að ég geti
spilað eitthvað með bakaranáminu
í sumar. Ég sakna boltans mikið,“
segir hún. „Ég er komin með góðan
grunn fyrir bakaranámið og þarf
einungis að taka tvö ár í verklegu
námi og tvær annir í bóklegu. Það
er nokkuð mikill munur að vinna
í bakaríi eða á veitingastað. Hvað
ég geri síðan er óvíst en hugurinn
stefnir til útlanda að læra konditori,
til dæmis í Danmörku,“ segir þessi
metnaðargjarna stúlka en henni
finnst mjög gaman að útbúa eftir-
rétti. „Mér finnst reyndar öll vinna í
eldhúsi vera mjög skemmtileg.“
Starf matreiðslumanns var lengi
vel karllægt starf en það hefur
breyst mikið undanfarin ár enda
hefur konum fjölgað ört í stétt-
inni. Aþena segir að sér hafi alltaf
verið mjög vel tekið á Fiskfélaginu.
Staðurinn er þekktastur fyrir
sjávarrétti og sushi en býður einnig
upp á ýmsa kjötrétti. Aþena segist
hafa verið mikið í að gera sushi sem
henni þykir virkilega gaman að
gera.
Aþena er morgunkona og kvíðir
því ekki að vakna nánast um miðja
nótt til að fara í vinnu og baka
brauð og kökur. „Ég hef unnið á
mismunandi vinnutíma og allt
venst þetta,“ segir hún en mikið
hefur verið að gera hjá Aþenu á
undanförnum árum. „Ég er mikil
fjölskyldumanneskja, vil bara
Marsípankaka með saltkaramellu
200 g smjör
4 egg
200 g marsípan
120 g púðursykur
80 g sykur
20 g hveiti
100 g möndlumjöl
Best væri að nota matvinnsluvél en hrærivél
virkar líka. Stillið ofninn á 180°C. Skerið marsípan
í bita og blandið saman við möndlumjölið þar til
marsípan er ekki lengur í bitum. Öllu þurrefni er
bætt við og blandað saman við. Bræðið smjörið
og bætið við. Loks fara eggin út í, eitt í einu, og
hrært á milli. Smyrjið formið sem þið ætlið að
nota. Deigið ætti ekki að vera hærra en um 2 cm.
Bakið kökuna í 30 mínútur.
Saltkaramella
200 g sykur
50 g vatn
150 g rjómi
70 g smjör
2 tsk. gróft salt
Sykur og vatn er sett saman í pott, passa að
vatnið hylji allan sykurinn. Potturinn fer svo á
hæsta hita. Gott er að reyna sleppa því að hræra
í sykrinum. Meðan sykur og vatn karamellast er
gott að sigta rjóma og smjör sitt í hvora skálina.
Þegar sykurinn er orðinn að karamellu eða
næstum brúnn er rjómanum bætt við og tekið af
hitanum. Notið sleikju til að blanda rjómanum
saman við. Smjörinu er bætt við ásamt saltinu,
byrjið á einni teskeið og smakkað, ef þið viljið
meira saltbragð þá bætið við teskeið af saltinu.
Karamellan fer ofan á marsípankökuna. Toppað
með ristuðum möndluflögum og flórsykri.
Marsípankökuna má bera fram volga og kara-
melluna líka. Hægt er að bera kökuna fram með
rjóma, ís, berjum eða hverju því sem ykkur dettur
í hug.
Ég er komin með
góðan grunn fyrir
bakaranámið og þarf
einungis að taka tvö ár í
verklegu námi og tvær
annir í bóklegu.
Aþena Þöll Gunnarsdóttir
hanga heima með fjölskyldunni
þegar ég er í fríi enda er samheldnin
mikil. Ég fer þó alltaf í ræktina,“
bætir hún við.
Eftirréttur ársins
Aþena ætlar að gefa lesendum
uppskrift að marsipantertu með
saltkaramellu sem hún segir að
sé mjög einfalt að gera. „Þetta er
kaka sem allir geta gert og hægt
að bera fram við hvaða tækifæri
sem er, upplögð um páskana eða
á fermingarborðið,“ segir hún. „Ég
gerði þessa köku þegar ég tók þátt
í keppninni Eftirréttur ársins 2018
og hlaut þriðja sætið. Það var fyrsta
keppnin sem ég tók þátt í sem
kokkanemi. Ég stefni á að taka aftur
þátt í þessari keppni á næsta ári og
líka Köku ársins,“ segir Aþena sem
er alveg með metnaðinn í lagi. n
2 kynningarblað A L LT 14. mars 2023 ÞRIÐJUDAGUR