Fréttablaðið - 14.03.2023, Qupperneq 21
Ég var mjög svekktur
út í hugarfar Alberts í
síðasta glugga.
Arnar Þór Viðarsson,
í september 2022
Arnar Þór Viðarsson, lands-
liðsþjálfari Íslands í knatt-
spyrnu, hefur rétt fram
sáttarhönd í deilum við Albert
Guðmundsson, leikmann
Genoa. Þetta herma öruggar
heimildir Fréttablaðsins en
nýr landsliðshópur verður
kynntur á morgun.
hordur@frettabladid.is.
FÓTBOLTI Albert Guðmundsson
sem leikur í næstefstu deild á Ítalíu
gæti komið aftur inn í landsliðs-
hóp Íslands í knattspyrnu. Forsaga
málsins er sú að síðasta haust ákvað
Arnar Þór að hætta að velja Albert í
landsliðshópinn. Sagði hann sókn-
armanninn hafa sýnt slæmt hugar-
far í verkefnum á undan og að hann
ætti ekki skilið sæti í hópnum á
meðan hann væri ekki til í að leggja
sig allan fram, sama í hvaða hlut-
verki hann væri.
Frá þeim tíma sem Arnar tók
þessa ákvörðun höfðu engin sam-
skipti átt sér stað á milli þeirra
fyrr en á dögunum. Samkvæmt
öruggum heimildum hafði Arnar
Þór frumkvæðið og hringdi í Albert
sem spilað hefur frábærlega síð-
ustu vikur á Ítalíu. Kannaði Arnar
hug leikmannsins til mögulegrar
endurkomu í landsliðshópinn fyrir
leiki gegn Bosníu og Liechtenstein
í undankeppni Evrópumótsins.
Miðað við fyrri orð Arnars er mögu-
leg endurkoma Alberts á þeim for-
sendum að hann sé reiðubúinn að
leggja sig allan fram, sama hvort
hann sé í byrjunarliðinu eða á vara-
mannabekknum. Arnar tekur lík-
lega endanlega ákvörðun í dag um
hvort hann velji Albert í 23 manna
leikmannahóp sinn.
Albert í góðu formi
Sóknarmaðurinn spilar í næstefstu
deild á Ítalíu með Genoa en hann
hefur verið í herbúðum félagsins í
rúmt ár. Genoa er í harðri baráttu
um að komast upp í efstu deild og
situr um þessar mundir í öðru sæti
deildarinnar. Albert hefur á þessu
tímabili spilað 29 leiki og skorað í
þeim níu mörk og lagt upp fimm.
Hann hefur því komið að marki
að meðaltali á 154 mínútna fresti.
Sóknarmaðurinn hefur fengið mikið
lof fyrir frammistöðu sína og reyndu
félög í efstu deild á Ítalíu að kaupa
hann frá Genoa í janúar.
Albert, sem er fæddur árið 1997,
hefur spilað 33 A-landsleiki en
honum hefur þó mistekist að verða
algjör lykilmaður í liðinu. Albert
hefur í heildina skorað sex mörk
fyrir landsliðið en þrjú af þeim
mörkum komu í leik gegn Indó-
nesíu þar sem fólk þar í landi fékk
að velja í liðið, tvö mörk komu gegn
Liechtenstein og eitt gegn Ísrael.
Þessi hæfileikaríki leikmaður hefur
því aðeins skorað í þremur lands-
leikjum. Albert hefur hins vegar
Arnar Þór tók upp símann og hringdi í Albert
Arnar Þór virðist
ætla að reyna
að ná sáttum
við Albert Guð-
mundsson eftir
að hafa hent
honum úr lands-
liðshópnum
síðasta haust.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
aldrei spilað betri fótbolta en núna
og ákveði Arnar Þór Viðarsson að
velja hann aftur gæti hann komið
inn með mikið sjálfstraust og reynst
sterkt vopn þegar ný undankeppni
fer af stað.
Hverjir verða í hópnum?
Ef Albert Guðmundsson verður í
hópnum yrðu það stærstu tíðindin
en f leiri endurkomur eru í kort-
unum. Eftir meiðsli hefur Alfreð
Finnbogason náð vopnum sínum
og hefur spilað vel með Lyngby í
dönsku úrvalsdeildinni. Allar líkur
eru á því að hann verði í hópi Arn-
ars sem kynntur verður á morgun.
Óvissa er í kringum Birki Bjarna-
son sem ekki hefur spilað í rúman
mánuð með Adana Demirspor í
Tyrklandi. Birkir hefur ekki verið
í leikmannahóp liðsins í síðustu
leikjum eftir að stór jarðskjálfti reið
yfir landið. Hann hefur sést æfa í
Noregi undanfarið, Birkir hefur
verið í litlu hlutverki hjá Adana á
þessu tímabili og aðeins byrjað tvo
deildarleiki af þeim 24 sem búnir
eru. Birkir er leikjahæsti leikmaður
í sögu Íslands. n
Tímalína málsins
Júní 2022
Í verkefni landsliðsins
síðasta sumar fara að heyrast
sögur úr herbúðum liðsins
um að ósætti sé milli þjálfara-
teymisins og Alberts. Hann er
sakaður um leti á æfingum og
spilatími hans í verkefninu er
miklu minni en í verkefnum
á undan. Út á við neitar Arnar
Þór því að nokkuð sé að en
síðar átti eftir að koma á
daginn að sögurnar voru á
rökum reistar.
September 2022
Arnar Þór tilkynnir landsliðs-
hóp fyrir komandi verkefni og
Albert er settur út úr hópn-
um. Þjálfarinn segist ekki
velja leikmenn sem leggja sig
ekki fram.
„Ég var mjög svekktur út
í hugarfar Alberts í síðasta
glugga. Það er mikill heiður
að vera valinn í landsliðið og
menn þurfa að vera 100%
með, eða ekki. Þetta er
ákvörðun sem ég tek fyrir
þennan glugga en ég loka
ekki neinu í framtíðinni. Þegar
Albert er tilbúinn að vinna
innan þess ramma sem ég set
þá er pláss fyrir hæfileikaríka
menn eins og hann,“ sagði
Arnar Þór þá.
Nóvember 2022
Aftur velur Arnar Þór lands-
liðshóp og Albert er ekki í
hópnum, hann lætur hafa
eftir sér að honum þætti
eðlilegra að frumkvæðið að
endurkomu væri hjá Albert.
Arnar útilokar þó ekki að eiga
frumkvæðið sjálfur en ítrekar
að möguleg endurkoma
verði að vera á forsendum
þjálfarans og með hag liðsins
í fyrirrúmi.
Mars 2023
Arnar Þór tekur upp símann
og hringir til Alberts á Ítalíu,
rætt er um stöðu mála og það
kemur í ljós á morgun hvort
þessi sáttafundur í gegnum
síma hafi borið árangur.
Arnar Þór Viðarsson mun á morg-
un opinbera nýjan landsliðshóp
sinn fyrir komandi verkefni í und-
ankeppni Evrópumótsins. Undan-
keppnin fer öll fram á þessu ári og
í boði er farmiði á lokamótið sem
fram fer í Þýskalandi sumarið 2024.
Eins og fram kemur hér að ofan
hefur Arnar Þór opnað dyrnar fyrir
endurkomu Alberts Guðmunds-
sonar. Mál Alberts hefur fengið
mikla umfjöllun síðustu mánuði
eftir að Arnar Þór sagði hugarfar
Alberts ekki nógu gott og sökum
þess ætti hann ekki skilið sæti í
landsliðshópnum. Hvort Arnari
hafi tekist að bera klæði á vopnin
og fá Albert til að breyta hugarfari
sínu gagnvart landsliðinu kemur í
ljós á morgun.
Miðsvæðið er líklega stærsti
hausverkurinn fyrir Arnar Þór
farandi inn í þetta verkefni. Birkir
Bjarnason hefur ekki spilað í
rúman mánuði í Tyrklandi og er
því ekki í góðri leikæfingu, Birkir
verður 35 ára gamall innan tíðar
en hann er leikjahæsti leikmaður
í sögu landsliðsins. Aron Einar
Gunnarsson er í leikbanni í fyrsta
leiknum gegn Bosníu og þá hefur
Ísak Bergmann Jóhannesson fengið
Staða lykilmanna á miðsvæðinu áhyggjuefni
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
UTAN VALLAR |
fá tækifæri hjá FC Kaupmannahöfn
á undanförnum vikum. Fróðlegt
verður að heyra svör Arnars um
það hvernig leysa skal málin á mið-
svæðinu.
Elías Rafn Ólafsson, markvörður
FC Midtjylland í Danmörku, spilar
ekkert þessa dagana. Elías var fyrsti
kostur Arnars í markið framan af
en meiddist og hefur ekki náð að
koma sér aftur í liðið í Danmörku.
Allar líkur eru á því að Rúnar Alex
Rúnarsson verði maðurinn sem
Arnar treystir á áfram enda hefur
hann spilað mjög vel í Tyrklandi á
þessu tímabili.
Íslenska landsliðið vantaði á síð-
asta ári afgerandi markaskorara,
Alfreð Finnbogason ætti að geta
leyst það vandamál en marka-
maskínan er komin á fulla ferð með
Lyngby í Danmörku eftir meiðsli.
Munar um minna fyrir íslenska
liðið.
Fyrir utan Birki Bjarnason eru
allir aðrir lykilmenn liðsins á mjög
góðum stað og hafa spilað mikið
og vel síðustu vikurnar. Miði á Evr-
ópumótið í Þýskalandi er ekki svo
fjarlægur draumur ef liðið fer vel af
stað í næstu viku en fyrsti leikurinn
gegn Bosníu er ansi mikilvægur. n
FRÉTTABLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR 1714. MARS 2023
ÞRIÐJUDAGUR