Fréttablaðið - 21.03.2023, Blaðsíða 2
Notuð voru tölvulíkön
til að greina rek olíu-
agna á yfirborðinu.
Fólk er farið að nota
föstu sem megrunar-
kúra.
Karim Askari,
formaður Stofn-
unar múslima á
Íslandi
Göppingen undirbýr sig fyrir Val
Þýska úrvalsdeildarliðið Göppingen æfði stíft í gær þar sem undirbúningur fór fram fyrir leikinn gegn Valsmönnum í kvöld. Valsliðið hefur komið mörgum
stórliðum á óvart en Göppingen verður að teljast erfiður andstæðingur þrátt fyrir að það sé í fjórtánda sæti í þýsku úrvalsdeildinni. Fréttablaðið/Ernir
Íslenskir múslimar hafa
lengstu ramadan-föstu heims
en veðráttan er óvæntur
bandamaður. Formaður
Stofnunar múslima segir
föstuna ekki hættulega.
kristinnhaukur@frettabladid.is
trúmál Formaður Stofnunar mús-
lima á Íslandi segir föstuna á ramad-
an ekki leggjast þyngra á múslima
hér þó að hún sé sú lengsta í heimi.
Það er nærri 17 klukkutímar á dag.
Veðráttan sé með þeim í liði.
„Þetta er ekki erfitt,“ segir for-
maðurinn, Karim Askari. „Ástæðan
er sú að veðrið hérna á Íslandi er
svo svalt. Víðast hvar þar sem mús-
limar búa er 40 stiga hiti en hérna er
mínus 1 eða 2 gráður. Þess vegna er
þetta létt,“ segir hann.
Ramadan, hinn helgi mánuður
múslima, hefst annað kvöld þann
22. mars og lýkur að kvöldi föstu-
dagsins 21. apríl. Á þeim tíma mega
múslimar ekki borða, drekka,
stunda kynlíf eða aðrar líkamlegar
nautnir frá sólarupprás til sólseturs.
Vegna legu landsins er fastan lengst
á Íslandi af þeim stöðum þar sem
múslimar eru með moskur, eða
16 klukkutímar og 50 mínútur.
Ramadan er þó fyrr á árinu en á
undanförnum árum og því bæri-
legri að sögn Karims.
Karim segir mikilvægt að undir-
búa sig vel fyrir föstuna. „Það
skiptir ekki síður máli að vera vel
undirbúin andlega en líkamlega á
þessum helga mánuði,“ segir hann.
„Við erum með fleiri bænastundir
og það skiptir máli að huga að öllu.“
Samkvæmt Karim er fastan til-
mæli sem guð ætlast til að múslimar
fylgi. „Ef við neitum okkur ekki um
neitt allt árið um kring getum við
ekki fundið samkennd með þeim
sem búa við skort,“ segir hann. Til-
gangurinn sé að stórum hluta að
fólk geti fundið til með fólki sem
býr við hungur, svo dæmi sé tekið.
„Reglurnar eru þær sömu alls
staðar í heiminum,“ segir Karim
um hvort fastan sé algild. Hins vegar
eru það aðeins fullorðnir sem fasta.
Þá eru undanþágur fyrir veikt fólk
og fatlað, sem og konur sem eru á
blæðingum eða barnshafandi.
„Fastan er ekki hættuleg,“ segir
Karim. „Þvert á móti þá er hún góð
fyrir heilsuna. Fólk er farið að nota
föstu sem megrunarkúra,“ segir
hann.
Stofnun múslima, sem rekur stór-
moskuna í Ýmishúsinu, er annað
tveggja félaga múslima á Íslandi og
eru 415 í félaginu. Hitt er Félag mús-
lima á Íslandi sem telur 456 manns
og er með mosku í Ármúla. Þriðja
félagið, Menningarsetur múslima á
Íslandi, var lagt niður árið 2021 en
eftir það fjölgaði mikið í Stofnun
múslima. n
Lengsta fasta veraldar sé
hvorki erfið né hættuleg
Frá ramadan hjá Félagi múslima árið 2019. Fréttablaðið/anton brink
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af
borðstofuborðum frá CASÖ
Embla hrinborð 120 cm og 140 cm reykt eik og nature eik.
kristinnpall@frettabladid.is
Ísafjörður „Auðvitað verður þetta
álag á innviði sveitarfélagsins, en
það verða ekki þrettán þúsund
manns í miðbænum,“ segir Arna
Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar, spurð út í fyrirhugaða
komu allt að 13.700 ferðamanna til
Ísafjarðar þann 7. júlí næstkomandi.
Á síðasta fundi bæjarstjórnar var
tekin fyrir fundargerð hafnarstjórn-
ar þar sem ræddur var möguleikinn
á að setja hámarksfjölda farþega
úr skemmtiferðaskipum á einum
degi. 7. júlí í sumar er gert ráð fyrir
skipunum Star Legend, Norwegian
Prima, Azamara Journey, Zuider-
dam og hinu gríðarstóra MSC Gran-
diosa í höfn. Þessi skip taka samtals
13.643 farþega og hafa 4.500 í áhöfn.
„Við getum ekki farið yfir þol-
mörk íbúa. Það þarf að koma í veg
fyrir að of bjóða fólki og finna ein-
hvern jafnvægispunkt. Þó að við
séum miklir gestgjafar og finnist
gaman að fá fólk í bæinn,“ segir Arna
og bætir við að atvinnustarfsemi í
höfninni þurfi einnig svigrúm.
„Það er hætt við því að það verði
allt fullt af fólki, en það má ekki
gleyma því að f lestir af þessum
farþegum dreifast vel. Það eru tví-
skiptar ferðir allan daginn, fyrir og
eftir hádegi, og það er verið að keyra
fólk út um allt,“ segir Arna Lára. n
Fjórtán þúsund á Ísafirði á sama degi
Arna Lára
Jónsdóttir,
bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar
benediktboas@frettabladid.is
Náttúruvá Hafrannsóknastofnun
hefur reynt að finna olíuleka við
suðurströnd landsins að beiðni
Umhverfisstofnunar. Ástæðan var
talsverður fjöldi olíublautra fugla.
Greining var gerð á reki olíu við
suðurströndina á tímabilinu 2020-
2022. Samk væmt tilkynningu
reyndist ekki mögulegt að segja
nákvæmlega til um hvaðan meng-
unin kæmi en líklegt er að um sé að
ræða olíu sem lekur úr skipsflaki á
hafsbotni.
Niðurstöður greiningarinnar
benda til þess að mestar líkur séu á
að uppruni mengunarinnar sé á haf-
svæði innan við 12 sjómílur austan
eða suðaustan við Vestmanna-
eyjar. n
Flak á hafsbotni
lekur líklega olíu
Margir olíublautir fuglar hafa fundist
að undanförnu við Vestmannaeyjar.
Fréttablaðið/anton brink
2 Fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 21. mARs 2023
ÞriÐJUDAGUr