Fréttablaðið - 21.03.2023, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 21.03.2023, Blaðsíða 15
KYNN INGARBLAÐ ALLT ÞRIÐJUDAGUR 21. mars 2023 Páll Óskar Hjálmtýsson skemmtir í Þróttarheimilinu í Laugardal. gummih@frettabladid.is Í dag er alþjóðlegi Downs- dagurinn en Sameinuðu þjóðirnar lýstu því formlega yfir árið 2011 að 21. mars væri alþjóðadagur Downs-heilkennis. Tilgangurinn er að vekja almenning til vitundar um fólk sem fæðist með þetta heil- kenni, þarfir þess, óskir, drauma og vanda sem það þarf að glíma við en eitt barn af hverjum sjö hundruð sem fæðast í heiminum er með Downs-heilkenni. Talið er að 5–6 börn fæðist með Downs- heilkennið á Íslandi á hverju ári. Downs-heilkenni, stundum nefnt heilkenni þrístæðu 21, er litningafrávik sem veldur þroska- hömlun. Fólk með Downs-heil- kenni hefur þrjú eintök af litningi 21 eða alls 47 litninga. Heilkennið er kennt við enska lækninn John Langdon Down sem árið 1886 benti á lík einkenni einstaklinga með þroskahömlun. Árið 1959 sýndi franski prófessorinn Jéróme Lejeune að fólk með Downs-heil- kenni hefði aukalitning í frumum sínum. Páll Óskar tekur lagið Félag áhugafólks um Downs-heil- kenni á Íslandi ætlar að halda upp á daginn með skemmtun í Þróttar- heimilinu í Laugardal frá klukkan 17 til 19. Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson mætir á svæðið og syngur nokkur lög eins og honum er einum lagið og f lottar veitingar verða í boði. n Alþjóðlegi Downs-dagurinn Tvíburasysturnar Lovísa (t.v.) og Anna Marta eru samrýmdar og öflugt teymi. Saman reka þær matvælafyrirtækið Önnu Mörtu ásamt eiginmanni Önnu. Mynd/anna Marta Rétt hugarfar bætti lífsgæðin Matarfrumkvöðullinn Anna Marta Ásgeirsdóttir deilir uppskriftum að fallegum og nær- ingarríkum réttum í kvöldmatinn, í desert og á fermingarborðið. 2 Alla daga gegn kulda og sól Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.