Fréttablaðið - 21.03.2023, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 21.03.2023, Blaðsíða 20
Helgi Fannar Sigurðsson helgifannar@ frettabladid.is Við eigum að gera kröfur á íslenska landsliðið í komandi leikjum, sem og í undan- keppninni allri. Líklegt er að leikur- inn gegn Bosníu verði sannkallað stríð á erfiðum velli og því dýrkeypt að missa menn eins og Aron og Sverri út þar. Það líður senn að stóra prófi landsliðsþjálfarans Arnars Þórs Viðarssonar. Á fimmtu- dag hefur íslenska karla- landsliðið leik í undankeppni Evrópumótsins 2024 þegar það heimsækir Bosníu og Hersegóvínu í Zenica. Liðið er nú komið saman til æfinga í München. helgifannar@frettabladid.is Fótbolti Arnar Þór Viðarsson hefur haft í nægu að snúast frá því hann tók við sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í lok árs 2020. Framan af voru margir af lykilmönnum liðsins fjarverandi af utanaðkomandi ástæðum. Nú hefur Arnar hins vegar endurheimt marga af lykilmönnum Íslands frá gullaldarskeiðinu svokallaða. Koma þeir inn í hóp spennandi ungra leikmanna sem fengu kallið í landsliðið skömmu eftir komu Arnars og í ljósi alls þess sem gekk á utan vallar. Það má því segja að Arnar hafi aldrei verið með sterkari íslenskan hóp í höndunum en nú þegar líður að undankeppni EM 2024 í Þýskalandi. Auk Íslands og Bosníu eru í undanriðlinum Portúgal, Slóvakía, Lúxemborg og Liechtenstein, en Strákarnir okkar mæta einmitt síðastnefnda liðinu á sunnudag í öðrum leik sínum í undankeppn- inni. Tvö efstu lið undanriðilsins fara beint á EM í Þýskalandi og því ljóst að íslenska liðið á góðan möguleika á að komast þangað ef allt er eðlilegt. Eitt af því sem margir velta fyrir sér í aðdraganda verkefnisins er það hvernig Arnar kemur til með að stilla upp byrjunarliði Íslands. Vantar lykilmenn í Bosníu Þó að hópur Arnars nú sé sterkur hafa skörð verið höggvin í hann í aðdraganda komandi leikja. Lands- liðsfyrirliðinn Aron Einar Gunn- arsson missir af leiknum gegn Bos- níu þar sem hann er í banni. Sverrir Ingi Ingason missir bæði af leikj- unum á fimmtudag og sunnudag. Líklegt er að leikurinn gegn Bos- níu verði sannkallað stríð á erf- iðum velli og því dýrkeypt að missa menn eins og Aron og Sverri út þar. Óvissa með vörn og miðju Sem fyrr segir má búast við erf- iðum leik í Bosníu þar sem baráttan verður í fyrirrúmi. Líklegt er að Arnar velji töluvert varnarsinnaðra byrjunarlið þar en gegn Liechten- stein á sunnudag. Það verður áhugavert að sjá hvernig landsliðsþjálfarinn stillir upp vörn og miðju sinni í ljósi fjarveru Sverris og Arons. Sverrir er lykilmaður í hjarta varnarinn- Hausverkur Arnars fyrir stóru stundina skrifar frá Munchen Arnar Þór Viðarsson, landsliðs- þjálfari Íslands, hefur að mörgu að hyggja fyrir fyrstu leiki liðsins í undan- keppni EM 2024. fréttablaðið/ Getty 1 2 3 Þrjár mögulegar útgáfur af byrjunarliði Íslands gegn Bosníu Rúnar Alex Guðlaugur Victor - Daníel Leó - Hörður Björgvin - Davíð Kristján Jóhann Berg - Aron Elís - Hákon Arnar Arnór Sigurðsson - Alfreð Finnbogason - Jón Dagur Rúnar Alex Alfons Sampsted - Guðlaugur Victor - Hörður Björgvin - Daníel Leó Jóhann Berg - Stefán Teitur - Hákon Arnar Arnór Sigurðsson - Alfreð Finnbogason - Jón Dagur Rúnar Alex Alfons Sampsted - Daníel Leó - Hörður Björgvin - Davíð Kristján Ísak Bergmann - Guðlaugur Victor - Hákon Arnar Jóhann Berg - Alfreð Finnbogason - Jón Dagur ar. Aron hefur einnig spilað þar í undan förnum leikjum en er að upplagi miðjumaður. Guðlaugur Victor Pálsson gæti leyst stöður Arons og Sverris. Frá því að hann kom til DC United í Bandaríkjunum síðasta sumar hefur hann spilað sem miðjumað- ur, miðvörður og hægri bakvörður, en hann hefur töluvert spilað í bakverðinum með íslenska lands- liðinu. Það er nær hægt að full- yrða að Guðlaugur Victor verður í byrjunarliði Íslands í Bosníu. Það verður hins vegar áhugavert að sjá hvar Arnar mun stilla honum upp. Hvað sóknarlínuna og markvarð- arstöðuna varðar er einfaldara að giska á hvaða leikmönnum Arnar teflir fram. Það er þó aldrei hægt að ganga að neinu vísu í þeim efnum. Alfreð Finnbogason er snúinn aftur í landsliðið og hefur verið að standa sig vel með Lyngby. Það má búast við því að hann leiði sóknarlínu Íslands í Bosníu. n Eins og fram kemur hér ofar á íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu mikilvæga leiki fyrir hönd- um í undankeppni Evrópumótsins í Þýskalandi, sem fram fer á næsta ári. Það verður að segjast eins og er að riðill Íslands er ákjósanlegur. Ísland er í dauðafæri á að komast aftur á stórmót. Landsliðsþjálfarinn, Arnar Þór Viðarsson, og aðstoðarþjálfar- inn Jóhannes Karl Guðjónsson hafa heldur ekki farið leynt með það. Portúgal mun án nokkurs vafa hlaupa burt með þennan undan- riðil en annað sætið gefur þátt- tökurétt á EM og við ætlum okkur að taka það. Landslið Slóvakíu og Bosníu og Hersegóvínu fara klárlega með sama hugarfar inn í keppnina. Á okkar degi eigum við hins vegar að geta haft betur gegn þessum liðum. Íslenska landsliðið nú er frábær- lega samsett. Ungir leikmenn hafa öðlast reynslu undanfarin ár eftir að þeir komu inn í liðið á miklum hraða og nokkrir af reynslumeiri mönnunum eru komnir inn á ný. Vissulega er sárt að vera án lykil- mannanna Arons Einars Gunnars- sonar og Sverris Inga Ingasonar í fyrsta leik undanriðilsins gegn Bos- níu. Þessi leikur hefði hentað þeim báðum frábærlega. Þrátt fyrir það ættum við að geta tef lt fram mjög Gerum kröfur en leyfum spennandi landsliði að njóta vafans Utan Vallar | svo samkeppnishæfu byrjunarliði þar ytra og freistað þess að ná í hag- stæð úrslit. Eftir viðureignina við Bosníu ferðast íslenska liðið svo til Liech- tenstein og mætir þar heima- mönnum. Sá leikur á að vera algjört formsatriði fyrir Strákana okkar að klára og væri allt annað en sann- færandi sigur þar vonbrigði. Við eigum að gera kröfur á íslenska landsliðið í komandi leikjum, sem og í undankeppninni allri. Kröfurnar koma til þar sem leikmenn liðsins eru margir hverjir að standa sig vel úti um allan heim og liðið er vel samsett. Við eigum líka að vera spennt fyrir þessu landsliði, vera jákvæð í garð þess og hvetja það til dáða. Arnar Þór hefur átt erfitt upp- dráttar frá því hann tók við sem landsliðsþjálfari af ýmsum ástæð- um. Margar voru þær vegna ein- hvers sem hann hafði enga stjórn á. Það hefur vissulega gengið brösug- lega að vinna fótboltaleiki undan- farið en nú er komið að stóra prófi hans. Það eru komandi leikir og undankeppni sem skipta máli. Við vitum ekki hvernig fer í komandi leikjum gegn Bosníu og Liecht enstein eða hvernig liðið mun spila. Þangað til annað kemur í ljós skulum við hins vegar leyfa því að njóta vafans. n 16 íþróttir FRÉTTABLAÐIÐ 21. mARs 2023 þriÐJUDAGUr

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.