Fréttablaðið - 21.03.2023, Qupperneq 14
Nudd Nudd Nudd
Slökunarnudd í miðbæ
Reykjarvíkur. Lausir tímar.
Sími 694 7881, Janna.
Kynntu þér dreifinguna
www.frettabladid.is/stodsidur/dreifing
Ole Anton
Bieltvedt
samfélagsrýnir og
alþjóðlegur kaup-
sýslumaður
1. Ein kenninga Alberts Einstein var
að ef menn gerðu sama hlutinn
aftur og aftur og væntu breyti-
legra, eða annarra og kannske
betri, niðurstaðna mætti telja það
andlega skerðingu, vitfirru. Nú
ert þú og þið búin að hækka stýri-
vexti ellefu sinnum til að reyna að
slökkva verðbólgubálið, en verð-
bólgan bara eykst. A. Hvað skyldi
Einstein hafa sagt um þessa við-
leitni þína? B. Getur verið, að yfir-
keyrðar stýrivaxtahækkanir virki
sem olía á eldinn í stað vatns?
2. Það er þekkt eðlisfræðilegt fyrir-
brigði, staðreynd, að sum efni eða
læknislyf virka til betrunar og
lækningar heilsubresti eða sjúk-
dómi í litlu og hæfilegu magni, en,
við aukið magn, snúist áhrif við,
valda vaxandi vanlíðan og veik-
indum, og, við enn stærri skammt,
verði þau banvæn. Heldur þú að
stýrivaxtahækkunaraðferðin lúti
kannske ekki sama lögmáli?
3. Ef grípa á inn í hagkerfi, draga úr
verðbólgu, heldur þú ekki að það
væri siðferðislega og jafnvel laga-
lega réttara að láta aðgerðina gilda
eingöngu fram á við; ekki vera
afturvirka!? Bara fyrir ný lán!?
Með því að láta eða leyfa við-
skiptabönkunum að hækka vexti
umsaminna og frágenginna,
tekinna lána, er um afturvirk
áhrif að ræða; lántakendur eru
keyrðir upp að vegg með aukin,
eða stóraukin, útgjöld, sem aldrei
var samið skýrt og skorinort um;
þarna er gengið hart á hagsmuni
þeirra og afkomu með afturvirk-
um og íþyngjandi hætti. Finnst
þér þetta standast?
4. Skv. 72. grein stjórnarskrár er
eignarrétturinn friðhelgur og það
er meginregla íslenzks réttarfars
að afturvirkni laga eða stjórn-
sýsluaðgerða sé bönnuð. Telur
Ásgeir Jónsson, að vaxtahækk-
anir með alvarlega íþyngjandi
afturvirkum áhrifum standizt
þessa stjórnarskrárgrein og þessa
meginreglu íslenzks réttarfars?
Hér má kannske minna hagfræð-
inginn á skilgreiningu Garðars
Gíslasonar í bók hans „Eru lög
nauðsynleg“: „Lög frá lagasetning-
arvaldi (ég segi stjórnsýsluvaldi)
skulu vera skýr og skiljanleg, gerð
kunnug með opinberri birtingu,
og þau skulu gilda eftirleiðis, fram
í tímann og ekki aftur í tímann“.
Hvað skyldi fyrrverandi for-
seti Hæstaréttar, Garðar Gísla-
son, segja um þessar afturvirku
vaxtahækkanaaðgerðir þínar,
nú alls ellefu á tæpum tveimur
árum, allar með afturvirkum og
alvarlega íþyngjandi áhrifum!? Er
þetta kannske allt kolólöglegt hjá
þér og ykkur, ef ekki lagalega, þó
sennilega sé það líka svo, þá alla
vega siðferðislega!?
5. Hvað heldur þú með Mannrétt-
indasáttmála Evrópu, gr. 7, mgr.
2, sem gengur hart gegn aftur-
virkni!? Skyldu þessar ellefu geð-
veikislegu (Einstein) stýrivaxta-
hækkanir allar standast hann!?
6. Ef launahækkanir hjá brauðgerð
leiða til þess, að framleiðslu-
kostnaður brauðsins hækkar
um 10%, þá segir þú, að þarna
séu launahækkanir að kynda
upp verðbólguna, séu olía á verð-
bólgueldinn. Þegar þú og þið
hækkið vexti, þannig, að brauð-
gerðarkostnaðurinn hækki um
10%, þá fullyrðið þið, að þið séuð
að draga úr verðbólgu; nú sé hinn
aukni framleiðslukostnaður,
vegna vaxtahækkunarinnar,
vatn á verðbólgueldinn; þið séuð
að slökkva hann.
Viltu vera svo vænn að útskýra
fyrir okkur hvernig þetta virkar?
Ég er reyndar enginn Einstein,
en fyrir mér er þessi framgangur
og aðferðafræði, þessi hagspeki
og peningastefna, aðferðafræði
fáránleikans.
7. Fannst þér það heiðarlegt og rétt,
að verja verðbólguna hér fyrir
efnahags- og viðskiptanefnd
Alþingis með tilvitnunum í háa
verðbólgu í Eystrasaltslöndum og
öðrum Evrópulöndum, í ESB eða
utan, með evru eða án, sem þú
veizt vel, að stafar mest af marg-
földun orkuverðs vegna innrásar
Pútíns í Úkraínu, af tímabund-
inni orkukreppu þeirra landa
sem hafa mest byggt sína orku á
gasi og olíu, en þessi orkukreppa
er ekki til staðar hér? Raforkan
okkar og heita vatnið hefur ekki
hækkað! Varstu þarna ekki að
reyna að smeygja þér út úr verð-
bólguvandanum hér, sem fyrir
mér er nú orðinn vítahringur
víxlhækkana vaxta og verðlags,
með fals-samanburði?
8. Í eina tíð héldu færustu vís-
indamenn, að jörðin væri f löt.
Læknavísindin byggðu líka á
því, á sínum tíma, að blóðtaka af
sjúklingi væri allsherjar lækning
og lausn. Eins og stýrivaxtahækk-
anir ykkar nú.
Gæti það verið, að hagspeki
þín, sem reyndar byggist nokkuð
á aldargömlum kenningum
Keynes (ekki Georges, heldur
Johns Maynard), fædds 1883, og,
jafnvel, fræðum og kenningum
Adams Smith, fædds 1723, sé að
nokkru eða verulegu leyti úr takt
við tímann; byggist á allt annarri
þjóðfélagsgerð og allt öðru hag-
kerfi, en nú er?
9. Að lokum þessi spurning: Í við-
tali við Morgunblaðið í júlí 2019,
þegar þú tókst við embætti seðla-
bankastjóra, sagðir þú: „Réttur-
inn til að gefa út eigin mynt er
grundvallarhluti af fullveldi hvers
lands“. Trúirðu þessu virkilega
enn!? Hafa ríkin 26, sem nýta sér
nú evruna sem sitt grundvallar
gjaldmiðilsverkfæri, þá afsalað
sér fullveldi sínu!? n
Nokkrar spurningar til Ásgeirs
Jónssonar seðlabankastjóra
Viðar Eggertsson
varaþingmaður
Samfylkingarinn-
ar, jafnaðarflokks
Íslands
„Heimskt er heimaalið barn“, segir
gamall málsháttur. Það er í eðli
skapandi fólks að þurfa hleypa heim-
draganum og leita á nýjar lendur
til að takast á við nýjar og gefandi
áskoranir.
Það hefur vart farið fram hjá
nokkrum Íslendingi hversu öflug
íslensk menning og listsköpun hefur
orðið á síðustu árum og áratugum.
EES-samningurinn, sem við undir-
rituðum árið 1994, hefur opnað
fyrir íslenska listamenn áður lokuð
hlið og rutt úr vegi ókleifa múra, til
menningarlegra landvinninga í Evr-
ópu. Hin skapandi stétt listamanna
hefur nýtt sér þau miklu tækifæri
sem þá gáfust með ótrúlega gefandi
hætti. Og uppskorið ríkulega.
Gott orðspor íslenskrar listar og
menningar hefur aukist gífurlega
vegna þessa.
Ófáir íslenskir listamenn hafa
rennt styrkum stoðum undir starf
sitt sem listamenn, eftir að samn-
ingurinn tók gildi, víða um Evrópu
og þannig hefur atvinnugrund-
völlur þeirra ef lst til muna vegna
samningsins og ýmissa tækifæra
sem hafa gefist í samstarfi við önnur
þau 26 Evrópulönd sem samningur-
inn nær til.
Fyrir þann tíma var Ísland ekki
bara eyland úti í hafi heldur var
engu líkara en ókleifur múr hefði
verið reistur af okkur eyjarskeggj-
um umhverfis okkur sjálf, sem
bitnaði illilega á möguleikum ein-
staklinga og stofnana til að eflast í
samstarfi við aðra.
EES samkomulagið hefur brotið
niður múra og gert Evrópu aðgengi-
lega fyrir stórhuga listamenn. Því
samningurinn felur í sér ótal tæki-
færi til listsköpunar fyrir frjóa
Íslendinga. Samningurinn nær
til náinna samstarfsverkefna á
ýmsum sviðum – ekki síst menn-
ingu. Þar gefast margvísleg tæki-
færi ef vandað er til verka og til
staðar er árvökulir aðstoðarmenn
á vettvangi – í iðu ákvarðana og
framfara.
Það eru enn gífurleg sóknarfæri
fyrir okkur fólgin í menningu ekki
síður en viðskiptum og því brýnt að
að halda áfram að sækja fram okkur
öllum til heilla.
Því er það með ólíkindum að
menningar- og viðskiptaráðuneytið
eigi ekki einn einasta starfsmann á
sendiráðsskrifstofu okkar í Brussel
eins og öll önnur ráðuneyti hafa
þegar þar, til að vinna að hagsmuna-
málum og tækifærum sem okkur
gefast. n
Íslenskir listamenn án landamæra
Það eru enn gífurleg
sóknarfæri fyrir okkur
fólgin í menningu ekki
síður en viðskiptum og
því brýnt að að halda
áfram að sækja fram
okkur öllum til heilla.
Telur Ásgeir Jónsson,
að vaxtahækkanir með
alvarlega íþyngjandi
afturvirkum áhrifum
standizt þessa stjórnar-
skrárgrein og þessa
meginreglu íslenzks
réttarfars?
14 skoðun FRÉTTABLAÐIÐ 21. mARs 2023
ÞRIðJuDAGuR