Fréttablaðið - 21.03.2023, Qupperneq 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Það kannast líklega flestir mat-
gæðingar við Önnu Mörtu enda
hefur vörumerki hennar vakið
mikla athygli fyrir eitt besta pestó
sem fæst í matvörubúðum. Anna
Marta segir mataráhugann hafa
kviknað fyrst fyrir um 25 árum
síðan þegar hún fór að huga betur
að heilsunni. „Ég gerði breytingu
á matarvenjunum og byrjaði
að hreyfa mig, en umfram allt
hlustaði ég á þarfir líkamans, bæði
andlegar og líkamlegar,“ segir hún.
Heilsan segir Anna að hafi
marga anga. „Maður getur verið
við góða líkamlega heilsu á sama
tíma og andlega hliðin er niðri, og
svo öfugt. Minn lykill er að finna
heilsutengt og almennt jafnvægi
í lífinu. Sjálf hef ég verið báðum
megin línunnar, með slæma líkam-
lega heilsu eða ekki í andlegu
jafnvægi. Ég hef svo líka verið, og er
þeim megin í lífinu núna, líkam-
lega heilsuhraust og líður líka vel
andlega. Ég ver því mínu lífi í að
hjálpa fólki að finna sinn takt í
lífinu og efla lífsgæði sín í góðri
og fallegri næringu,“ segir Anna
Marta, sem býður meðal annars
upp á matarþjálfun.
Vill næra landann fallega
„Ég er menntaður þjónn en minn
lærdómur hefur þó hvað mest
falist í því hlusta á þarfir mínar og
annarra. Þannig hef ég lært á lífið
og í dag starfa ég við heilsu á mjög
breiðan máta. Ég er í matarþjálfun,
býð upp á þjálfun á netinu og er
hóptímaþjálfari hjá World Class,“
segir Anna Marta.
„Þegar ég hóf mína heilsuvegferð
upplifði ég hve mikið góð og falleg
næring gerði fyrir mig og fannst
það þess virði að deila því með
öðrum. Ég fann að ef ég ætlaði að
vera á þessum stað í lífinu yrði ég
að vera skipulögð og vinna mér í
haginn. Þegar það small saman þá
varð allt tengt næringu svo auð-
velt og tímaskortur hætti að vera
vandamál. Í dag leyfi ég bragðlauk-
unum að dansa í eldhúsinu með
ólíkum en umfram allt einföldum
hætti,“ segir Anna Marta.
Faraldur verður að framleiðslu
Í framhaldi af hugleiðingum Önnu
og tilraunum í eldhúsinu varð til
námskeiðið Ævintýraferð bragð-
laukanna. „Þetta er skemmtileg
kvöldstund í heimahúsi þar sem ég
leiðbeini fólki inn á fallega og nær-
ingarríka braut með mat sem ég
útbý. Ég vinn eingöngu með hreint
og ferskt hráefni þar sem aðal-
uppistaðan er grænmeti, sósur og
hráfæðisbitar. Fólk fær líka að upp-
lifa nokkrar tegundir af pestói og
sósum sem unnar eru úr hreinum
vörum.
Þegar ég fór að sjá hvað fólki
fannst best af því sem ég bauð
upp á kviknaði hugmyndin að
kannski ættu mínar vörur heima í
verslunum. Faraldurinn mætti og
ég ákvað að koma tveimur vörum
á markað: pestói og döðlumauki.
Salan á þessum tveimur vörum fór
langt fram úr mínu væntingum.
Eitt af mörgu sem ég er að stúss-
ast í núna er því framleiðsla á
bragðgóðum og næringarríkum
vörum undir vörumerkinu Anna
Marta, sem ég rek með eiginmanni
mínum og tvíburasystur minni
Lovísu. Merkið byggir á bragðgóðri
litríkri og fallegri næringu sem
kemur í krukkum og svo erum við
með dásamlega súkkulaðihringi,“
segir Anna.
Stórir hringir og hjartalaga
Anna Marta verður fimmtug á
þessu ári og er fjögurra barna
móðir. „Ég á fjögur börn hér hjá
mér, þrjú þeirra eru á jörðu og
einn er engill,“ segir hún og bætir
við: „Ég er svo nýlega orðin amma
Anna Marta fékk óbilandi ástríðu
fyrir næringarríkum, fallegum og
góðum mat þegar hún hóf að huga
betur að heilsunni fyrir 25 árum.
MyndiR/AnnA MARtA
Þorskhnakkar með kirsuberjatómötum, pestói og döðlumauki er alger nær-
ingarsprengja í kvöldmatinn.
Anna Marta gefur uppskrift að girni-
legum og einföldum snittum.
Súkkulaðihringur með berjum og súkkulaðihúðuðum fíkjum er einfaldur og fallegur eftirréttur.
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
sem er alveg stórkostlegt hlutverk.
Súkkulaðihringirnir eiga sér ein-
staklega fallega sögu. „Þegar ég og
maður minn giftum okkur báðum
við gesti að aðstoða okkur í því að
koma af stað góðgerðarverkefni
sem heitir Vinir Hrings. Í stað þess
að gefa okkur gjafir báðum við fólk
um að leggja upphæð að eigin vali
inn á reikning sem við notuðum til
að stofna félagið.
Góðgerðarfélagið býður Barna-
spítala Hringsins upp á gleði-
stundir fyrir stór og lítil hjörtu
með ísbirninum Hringi. Hringur
er núna orðinn sextán ára og
hefur verkefnið gengið mjög vel.
En til þess að Hringur haldi áfram
að mæta á Barnaspítalann þarf
fjármagn. Einn daginn var ég í
miklum pælingum um hvernig
hægt væri að fjármagna verkefnið
áfram. Ég og krakkarnir vorum að
dunda okkur í að gera jóla gotterí
í desember og þá fékk ég þá hug-
mynd að gera súkkulaði og vita
hvort fólk hefði áhuga á að kaupa
svoleiðis.
Viðtökurnar fóru langt fram
úr væntingum. Úr varð að ég og
allir í fjölskyldunni hjálpuðumst
við að gera súkkulaði sem heitir
Dásemd, að veruleika. Allur ágóði
af Dásemd rann í verkefnið með
Hring ísbjörn. Í janúar 2022 barst
mér tölvupóstur frá manni sem
vinnur hjá stórri verslanakeðju
hér á landi og hafði fengið gefins
poka af Dásemd. Þá fór súkkulaði-
boltinn að rúlla.“
Skyndibiti A-manneskjunnar
Frumkvöðullinn Anna Marta
hefur alltaf verið A-manneskja. „Ég
byrja daginn klukkan 05.00 og gef
mér tíma til að hugleiða inn í dag-
inn. Svo þjálfa ég kroppa í World
Class frá klukkan 06.00 til 08.00.
Við systur leigjum svo aðstöðu í
frumkvöðlaeldhúsinu Eldstæðinu
til að framleiða okkar vörur. Ef
við erum ekki þar þá erum við að
dreifa vörum í búðir og fylgja þeim
eftir. Við fjölskyldan reynum svo
alla daga að eiga saman gæða-
stund yfir kvöldmatnum. Flesta
daga vikunnar er ég svo komin
upp í rúm milli 21.30 til 22.00 en
svefninn er mjög mikilvægur fyrir
mig eins og alla aðra.“
Þegar kemur að máltíðum segist
Anna hafa mest gaman af því að
útbúa falleg og matarmikil salöt
og grænmetisskálar. „Þá nota ég
mikið kjúkling, rækjur, naut og
önd til að gera skálarnar matar-
meiri.“ Aðspurð hvort hún reiði sig
nokkurn tíma á skyndibita segist
Anna alls ekki viss um hvað það sé.
„En ef ég á að velja eitthvað þá yrði
pitsa fyrir valinu. Pitsa með extra
miklum kjúklingi. Ég myndi svo
alltaf hafa ferskt salat með, græn-
meti og besta pestó í heimi, sem
er að mínu mati pestóið frá Önnu
Mörtu,“ segir hún.
Bragðmiklar uppskriftir
Það er ekki úr vegi að fá matar-
frumkvöðulinn Önnu til að deila
nokkrum fallegum, næringar-
ríkum og litríkum uppskriftum
með lesendum. „Þessi uppskrift að
þorskhnökkum er í algeru uppá-
haldi hjá mér, og ég nota auðvitað
alltaf pestó og döðlumauk úr minni
eigin framleiðslu,“ segir Anna.
Þorskhnakkar með pestó
og döðlumauki
1 kg þorskhnakkar, einnig hægt að
nýta kjúkling
3 msk. pestó
3 msk. döðlumauk
1 box kirsuberjatómatar
½ krukka fetaostur, taka olíu af
Sítrónupipar
Setjið bökunarpappír í eldfast
mót og raðið þorskhnökkunum
á pappírinn. Setjið svo allt annað
hráefni yfir þorskhnakkana. Bakið
í ofni við 200°C í 20 mínútur. Berið
fram með fersku salati, sætum
kartöflum og/eða hrísgrjónum.
Einfalt og hollt á fermingarborðið
Anna mælir líka með þessum
dásemdarrétti á fermingarborðið.
„Þessi réttur er bæði einfaldur og
virkilega bragðmikill,“ segir hún.
„Það má nota hvaða hrökkbrauð
eða kex sem er í réttinn en sjálf
nota ég Utvalda-súrdeigskex.
Einnig nota ég pestó og döðlumauk
frá Önnu Mörtu.
1 krukka grænt pestó
1 krukka döðlumauk
Kirsuberjatómatar, skornir til
helminga
Smyrjið smá döðlumauki á litlar
hrökkbrauðssneiðar og smá pestó
ofan á döðlumaukið. Setjið svo
hálfan tómat ofan á, raðið á bakka
og stráið klettasalati yfir.
Súkkulaði í eftirrétt
Súkkulaðihringirnir frá Önnu
Mörtu eru dásamlega fallegir á
eftirréttadiskinn. „Ég mæli með
að brjóta þá niður og setja á bakka
með berjum. Mér finnst líka ótrú-
lega gott að að fá mér ís og brjóta
Nordic- eða Asíatic-hringinn yfir.
Ég hef líka nýtt Nordic-hringinn
í marengstoppa sem ættu að vera
með lakkrís og súkkulaði. Einnig
hef ég bakað brownie og sett Nor-
dic-hring í þá köku.“n
2 kynningarblað A L LT 21. mars 2023 ÞRIÐJUDAGUR