Fréttablaðið - 21.03.2023, Qupperneq 28
Ég er hreinlega dol-
fallin yfir því hvað við
eigum flotta krakka.
Sigrún Grendal,
tónlistarkennari
Áhugasamir auglýsendur hafi samband við:
Jóhann Waage, sími 550-5656 /waage@torg.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
SJÁLFBÆR REKSTUR
Miðvikudaginn 29. mars gefur Fréttablaðið,
í samstarfi við Festu – miðstöð um samfélagsábyrgð,
út sérblaðið Sjálfbær rekstur.
Fimm hundruð börn fluttu
tónlist í Hörpu um helgina.
Lokaviðburðurinn var frum-
samið verk sem á annað
hundrað barna tóku þátt í að
skapa. Unnið er kerfisbundið
að auknum þætti barna í
húsinu.
bth@frettabladid.is
Óhætt er að segja að vel hafi tekist
til þegar 132 nemendur úr fjöl-
mörgum tónlistarskólum víða um
land f luttu í Hörpunni síðastliðinn
sunnudag nýtt tónverk sem hópur-
inn samdi saman, Óð til tónlistar.
Verkið var lokaviðburður Nót-
unnar, uppskeruhátíðar tónlistar-
skólanna. Áhorfendur létu sér
ekki nægja að fagna börnunum og
Sigrúnu Sævarsdóttur-Griffiths,
aðalleiðbeinanda sem stjórnaði
f lutningnum skörulega í lok tón-
leikanna, heldur tók salurinn þátt
í verkinu með söng.
Sigrún Grendal tónlistarkennari
er potturinn og pannan í skipu-
lagningu Nótunnar. Hún segir
hátíðina hafa verið þá umfangs-
mestu frá upphafi.
„Þetta er langfjölmennasta hátíð
okkar frá upphafi, það voru hátt í
500 krakkar sem komu fram.“
Sigrún segist þakklát öllum
sem komu að, ekki síst starfsfólki
Hörpu. Um ræðir alls tólf tón-
leikaviðburði, ótal vinnustofur og
lokaatriði sem áhorfendur hafa
sagt í samtölum við Fréttablaðið
að muni ekki gleymast.
„Ég er hreinlega dolfallin yfir því
hvað við eigum flotta krakka,“ segir
Sigrún.
Spurð hvernig henni hafi liðið
á hliðarlínunni þegar f lutningur
hins f jölmenna lokaatriðis fór
fram, segir Sigrún:
„Mig langaði að dansa, ég sveif og
brosti út að eyrum. Það er þrekvirki
hjá nöfnu minni Sigrúnu að ná
svona ótrúlega miklu út úr krökk-
unum á knöppum æfingatíma. Mér
finnst Sigrún einstök, hún er sér-
lega verðmæt manneskja.“
Nótan hefur verið haldin frá
2010. Sjaldan hefur reynt eins
mikið á sköpunarkraft nemenda
og í ár. Margar fjölskyldur utan af
landi þurfa að leggja töluvert á sig
en afraksturinn er gleði. Til marks
um metnaðinn og kraftinn má
nefna að sum börn mættu í hljóð-
prufu í Hörpu fyrir klukkan átta á
sunnudagsmorgun.
Svanhildur Konráðsdóttir, for-
stjóri Hörpu, segir að gaman hafi
verið að sjá tónlistarskólana blása
aftur til hátíðarinnar eftir Covid-hlé.
„Ég hef sjaldan vitað annað eins
líf og fjör baksviðs, það ómaði allt af
tónlist og kátínu barnanna. Okkur
þykir sannast sagna mjög vænt um
þennan viðburð.“
Svanhildur segir það markvissa
stefnu að opna Hörpuna upp á gátt
fyrir börnum þannig að þau geti
skapað, tekið þátt og uppgötvað
töfra tónlistarinnar – enda sé tón-
listarmúsin Maxímús Músíkús inn-
blásturinn í barnastarfinu.
Hún nefnir Hljóðhimna, sem er
nýtt rými fyrir börn og fjölskyldur
og fagnaði árs afmæli um helgina,
árvissa Barnamenningarhátíð í
Reykjavík, Big Bang-hátíðina, Upp-
taktinn – tónsköpunarverðlaun
unga fólksins, þátttökusmiðjur,
leiðsagnir og leiksýningar. Þetta sé
allt til viðbótar við framúrskarandi
barna- og uppeldisstarf Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands. n
Einstakt þrekvirki á fjölmennustu Nótuhátíðinni
Nótuhátíðin í ár var sú langfjölmennasta frá upphafi en þar komu fram hátt í fimm hundruð krakkar.
Sigrún Sævars-
dóttir-Griffiths
er sögð hafa
unnið þrekvirki
á sunnudag
þegar hún leiddi
132 börn og
heilan Eldborg-
arsal í gegnum
frumflutt verk.
fréttablaðið/
anton brink
Nótan hefur verið haldin frá árinu 2010 en aldrei með sama móti og í ár.
Blásturshljóðfærin voru munduð í öllum sínum fjölbreytileika.
24 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 21. mARs 2023
ÞRiðJUDAGUR