Fréttablaðið - 21.03.2023, Page 30
Við erum heppin með
riðil, finnst mér. Ekki
að það þurfi því við
erum með frábært lag.
En við erum örugg
áfram. Ég er sannfærð
um það.
Inga Rós
Vatnsdal
Það sem þátttakendur uppskera:
• Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu
• Hugrekki til að segja sína skoðun óháð áliti annarra
• Kjark til að tala um eigin líðan og annarra
• Leiðir til að eignast vini, bæta samskipti og styrkja sambönd
• Þor til að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa áhrif
• Betra skipulag og skýrari markmið
• Jákvætt viðhorf og kvíða/streitustjórnun
Skráning á dale.is eða 555 7080
Ókeypis kynningartími dale.is/ungtfolk
*Hægt er að nota frístundastyrki bæjarfélaga sem greiðslu - Youth_Ad_031323
Námskeið hefjast:
10 til 12 ára 12. júní 9.00 -13.00 átta virka daga í röð
13 til 15 ára 12. júní 13.30 - 17.00 níu virka daga í röð
16 til 19 ára 9. ágúst 18.00 -22.00 tvisvar í viku, 9 skipti
20 til 25 ára 1. júní 18.00 -22.00 tvisvar í viku, 9 skipti
Skráning á sumarnámskeiðin hafin
lovisa@frettabladid.id
Hönnuðirnir Rakel Sólrós Jóhanns
dóttir og Þórdís Claessen hjá
66°Norður eiga heiðurinn af Mottu
mars sokkunum í ár, þar sem brimrót
hafsins er í aðalhlutverki.
Þær segja að þær hafi sótt inn
blástur sinn í hafið sem á sér beina
tengingu í arfleifð 66°Norður en frá
stofnun vörumerkisins árið 1926 á
Suðureyri hefur klæðnaður þess veitt
Íslendingum skjól í sudda og súld.
„Þetta er okkar erfðaefni, og erfða
efni og grunnur fyrirtækisins. Þetta
er okkur mjög hugleikið og það
er ákveðinn kraftur í sjónum. Við
höfum dregið upp úr sjónum okkar
lífsbjörg,“ segir grafíski hönnuður
inn Þórdís en Rakel er fatahönnuður.
„Innblásturinn kom auðveldlega
til okkar, varðandi okkar sögu og
hvernig sjórinn tengist þar inn í er
eins eðlislægt og fyrir hvern annan
Íslending,“ bætir Þórdís við.
Sokkarnir eru bláir, hvítir og
rauðir og vísar rauði liturinn í baujur
á úthafi en tvíeykið notaði fána
litina sem litapallettu, líkt og hefð
hefur myndast fyrir þegar kemur að
Mottumarssokkunum.
„Hællinn, rauða baujan í ólgusjón
um, er svolítið vegvísirinn. Það er
eitthvað sem sjómenn og Íslendingar
þekkja vel. Þegar þeir sjá baujuna eru
þeir á réttum stað. Þetta er áminning
um að halda utan um heilsuna, og að
vita að maður er á réttri leið,“ segir
Þórdís að lokum.
Mottumars, árlegt árvekni og fjár
öflunarátak Krabbameinsfélagsins,
er tileinkað baráttunni gegn krabba
meinum hjá körlum. Sokkarnir
eru fáanlegir í verslunum og á vef
Krabbameinsfélagsins. n
Krafturinn í
sjónum innblástur
Sokkarnir eru fáanlegir í verslunum
víða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hönnuðirnir Rakel Sólrós Jóhanns-
dóttir og Þórdís Claessen hjá
66°Norður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Laginu Power er ekki spáð
upp úr seinni undanriðlinum
samkvæmt veðbönkum en er
þó spáð betra gengi en flestum
lögum sem etja kappi við það
þegar heildin er skoðuð. Því
þarf trúlega ekki að hætta við
undirbúninginn fyrir stórt
Eurovisionpartí 13. maí.
benediktboas@frettabladid.is
Eurovision World, sem reiknar
saman spár allra helstu veðbanka
fyrir Eurovisionsöngvakeppn
ina, spáir laginu Power, sem Diljá
Pétursdóttur f lytur, í fjórtánda og
þriðja neðsta sæti í síðari riðli Euro
visionkeppninnar. Það myndi þýða
að lagið færi ekki áfram á úrslita
kvöldið.
Kosningakerf inu í Eurovisi
on hefur verið breytt en stærsta
breytingin er að nú munu einungis
atkvæði áhorfenda gilda í undan
úrslitakeppnunum tveimur, í stað
þess að þær séu helmingaðar með
atkvæðum dómnefndar eins og
verið hefur áður. Þá mun allur
heimurinn geta kosið í fyrsta sinn
en hingað til hafa einungis þátt
tökuþjóðir getað kosið. Það þýðir að
Norðmenn, Svíar og jafnvel Finnar,
sem hafa oftar en ekki verið okkur
hliðhollir í stigagjöf geta engu að
síður kosið Power. Svo það er trú
lega ekkert að marka veðbankana
og undirbúningur fyrir vorboðann
ljúfa, risastórt Eurovsionteiti á
lokakvöldinu 13. maí, getur haldið
áfram af fullum þunga.
Lagið Power hefur fengið mikið
lof erlendra Eurovisionsérfræðinga
og hefur Diljá verið á töluverðu flugi
síðan hún vann Söngvakeppnina
hér á Fróni. Alls eru 16 þjóðir í síðari
riðlinum og er Austurríki spáð upp
úr riðlinum með lagið sitt, Who the
hell is Edgar, sem er alveg stórgott
og skemmtilegt lag. Jafnvel að dans
inn í laginu muni festast við sumar
djammið hér heima. Armenum er
einnig spáð góðu gengi með Future
Lover.
Þegar veðbankarnir eru skoðaðir
nánar má sjá að Diljá er spáð neðar
en til dæmis Kýpur, Slóvenum og
Litáum á síðara kvöldinu. Þegar
heildin er skoðuð er Ísland langt
fyrir ofan þessar þjóðir enda með
mun betra lag og ef Diljá neglir
sviðsframkomuna eru henni allir
vegir færir.
Samkvæmt nýju reglunum mun
atkvæðagreiðsla fara fram í gegnum
netið og munu þeir sem vilja kjósa
þurfa að skrá kreditkort frá sínu
landi. Verður svo þeim stigum
splæst saman og talin saman líkt
og um eina þjóð væri að ræða.
Inga Rós Vatnsdal, sem stýrir
Facebookhópnum Júróvisjón 2023,
segir að það verði fróðlegt að sjá
hvað reglubreytingarnar um stigin
muni gera. „Maður vill jú eiginlega
alltaf lenda í riðli með Norður
löndunum og Eistum til að eiga
einhverja vini. En það skiptir ekki
máli lengur og það er kannski bara
fínt,“ segir hún.
Inga segist fara sjálf fram og til
baka varðandi hvort þessar breyt
ingar á stigagjöfinni séu til góðs
eða ekki. En eitt sé víst; þetta verði
mjög spennandi að sjá. Þá telur hún
engar líkur á að Diljá fljúgi ekki inn
í úrslitin. „Við erum heppin með
riðil, finnst mér. Ekki að það þurfi
því við erum með frábært lag. En við
erum örugg áfram. Ég er sannfærð
um það.“
Inga er á því að Loreen fari með
sigur af hólmi en henni hefur verið
spáð velgengni frá því hún tilkynnti
að hún myndi snúa aftur á stóra
sviðið. Reyndar er Finnum og Norð
mönnum einnig spáð góðu gengi.
„Það er nú það skemmtilega við
þessa keppni að maður veit aldrei
hvað gerist. Og þetta er bara spá hjá
ve ðb ön k u m ,“
segir Inga. n
Veðbankar í ruglinu með lagið Power
Diljá Pétursdóttur mun flytja lagið Power þann 11. maí á stóra sviðinu í Liverpool. Mynd/MuMMI Lú
Spá Eurovisionworld
1 Austurríki
2 Armenía
3 Georgía
4 Ástralía
5 Slóvenía
6 Kýpur
7 Eistland
8 Litáen
9 Grikkland
10 Belgía
11 Pólland
12 Albanía
13 Danmörk
14 Ísland
15 Rúmenía
16 San Marínó
Who The
Hell Is Edgar?
spyrja þær
Teya og
Salena frá
Austurríki.
26 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 21. mARs 2023
ÞRiðJUDAGUR