Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1981, Side 3
3
m SKIPULAGS-
höfuðborgarsvæðisins MAL
3. TBL. 2. ÁRG. NÓV. 1981
Fréttablaðið SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS er gefið út
af Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins, Hamraborg 7, 200
Kópavogi, sími 45155 og kemur út fjórum sinnum á ári.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gestur Ólafsson.
efnisyfirlit:
4 ÚTIVIST OG FRÍTÍMAIÐJA.
18 ÚTIVIST OG FRÍTÍMAIÐJA í AÐALSKIPULAGSGREINAR-
GERÐUM.
25
Kristberg Ó.
Pétursson.
RÁÐSTEFNAN í HANSTHOLM.
HUGMYNDASAMKEPPNI UM SKIPULAG 1 SOGAMÝRI.
AÐALSKIPULAGSGREINARGERÐIR; FRAMSETNING OG KYNNING.
Forsíðumynd er eftir Kristberg Ó. Pétursson. Kristbergur
er fæddur í Hafnarfirði 1962. Að loknu grunnskólanámi
starfaði hann við almenna verkamannavinnu og sótti kvöld-
námskeið í Myndlista og handíðaskóla íslands samhliða því.
Árið 1979 hóf hann fullt nám í MHÍ og stundar nú nám þar,
i grafikdeild. Hann hefur tekið þatt í tveimur samsýningum; -
í Hafnarfirði og í "Hámeenlinnan" í Finnlandi, - báðum á
þessu ári.
Útivistarmál.
Sú skoðun er nú almennt ríkjandi að mjög mikil aukning
muni eiga sér stað meðal vestrænna þjóða á frítíma á
næstu árum, og þar af leiðandi muni þörf á aðstöðu til
útivistar, íþrótta og tómstundastarfs aukast verulega.
Allt bendir til þess að á Islandi verði um svipaða
þróun að ræða. Megin ástæður fyrir þessum breytingum
eru taldar aukin tölvunotkun og fjarskipti, auknar ráð-
stöfunartekjur, styttri vinnutími, aukin bifreiðaeign
og meiri menntun.
Þótt erfitt sé að meta þessa auknu eftirspurn eftir að-
stöðu til útivistar og frítímaiðju sem nú virðist fyrir-
sjáanleg, er samt mjög mikilvægt að það sé gert. Það
land á höfuðborgarsvæðinu sem er ákjósanlegt til úti-
vistar er mjög takmarkað og því ekki hægt að koma fylli-
lega til móts við allar óskir um aðstöðu á svæðinu.
Landkostum er einnig mjög misjafnlega skipt eftir
sveitarfélögum, en talsverður vilji er þó fyrir því að
nýta sérstæða landkosti sameiginlega, fyrir alla íbúa
þessa svæðis. 1 þessu blaði er kynnt fyrsta þrepið
í athugun a útivistar- og frítímaiðju á höfuðborgar-
svæðinu, en ákveðið hefur verið að taka þessi mál til
sérstakrar athugunar á næstu mánuðum.